Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Blaðsíða 56

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Blaðsíða 56
Kirkjukór Ólafsfjarðar og tvöfaldur kvartett koma fram á útihátíð í skemmtigarði í Lovisa. var um 20 stiga hiti á íslandi, og mönnum varð ljóst, að víðar getur snjóað að sumarlagi en í Ólafs- firði. Innar í landinu snjóaði, og næturfrost eyðilögðu gróður; skordýr og fuglar drápust. Ekki var ástandið svo slæmt í Lovisa, sem er 10 þús. manna bær nálægt suðurströndinni með fjölmennt að- liggjandi hérað. Hafnarbær Lovisa heitir Valkorn, og íslcndingar þekkja hann úr skipafréttunum, og litlu austar er borgin Kotka. í Lovisa hafa sænskumælandi menn verið fjöl- mennari en þeir finnskumælandi þar til nú. A bæjarstjórnarfundum og á mannamótum flytja menn mál sitt á sænsku fyrst, en síðan aftur á finnsku, og öll skilti í bænum eru á báðum málun- um. Okkur var tjáð, að á næsta ári yrði öllu snúið við. Finnska verður fyrsta mál, en sænska kemur á eftir. Finnar tóku okkur mjög elskulega og flestum, sem kunnu eitthvert hrafl í „skandinavisku“, gekk vel að komast í samband við sænskumælandi Finna. Verra var mcð þá, sem aðeins töluðu finnsku, en þeir virtust ekki margir þar um slóðir. Mótsdagarnir 118 Vinabæjamótið sjálft stóð frá 10, —12. júní, og SVEITARSTJÓRNARMÁL munu 3—400 gestir hafa sótt það auk heimamanna. Var það ein samfelld stórhátíð. Hófst það með hátíðlegri mótssetningu á hinu veglega torgi bæjar- ins og messu í sænsku kirkjunni, sem fór fram á finnsku, sænsku, norsku, dönsku og íslenzku, og annaðist sóknarprestur okkar, séra Hannes Örn Blandon, íslenzka þáttinn. Kirkjukór Ólafsfjarðar söng við mcssuna. Síðdegis sama dag voru sérstakir kirkjutónleikar, þar sem kórinn söng undir stjórn SofRu M. Egg- ertsdóttur, söngstjóra. Á söngskránni voru íslenzk lög, kirkjuleg tónlist, þjóðlög og ættjarðarlög. Eékk kórinn ágæta aðsókn og undirtektir, og ítarlega var fjallað um söng hans í blöðum héraðs- ins. Þess má geta, að allar konur í kórnum komu fram í íslenzka þjóðbúningnum, og vakti það mikla athygli. Mikið bar einnig á þjóðbúningum ann- ars staðar frá Norðurlöndum, meðan á mótinu stóð. Auk kórsins komu fram á tónleikum þessum danskur orgelleikari og þrír Einnar, orgelleikari, trompetleikari og einsöngvari. Síðari dag mótsins kom kórinn enn fram á útihá- tíð í skemmtigarði bæjarins ásamt tvöföldum kvart- ett karla. Var söngur kórsins hljóðritaður, og heyrðu einhverjir kórfélagar hann síðar alveg óvænt í útvarpinu í Helsinki. Margt var gert til að skemmta gestum þessa daga og sífelldar veizlur hinna ýmsu félagasamtaka og stofnana á kvöldin. Sérstök ástæða er til að lofa þátt safnaðanna í Lovisa í móttökunum, en ílestir Ólafsfirðinganna voru gestir þeirra. Farið var í skoðunarferðir m.a. í keisaravilluna í Langinkoski, en þar var fyrrum laxveiðisetur Rússakeisara. Kirkjurnar í Perná og Pyttis frá 14. öld voru skoðaðar og einnig kjarnorkuverið í Hást- holmen nálægt Lovisa, en það hefur þá sérstöðu að hafa aldrei verið umdeilt, enda buðu heimamenn fram land undir það til að fá það í nágrennið. Lokahóf vinabæjamótsins var stórkostleg „samnorræn" veizla með skemmtiatriðum, dans- sýningum, hljómlist og dansi á eftir, og verður veizla þessi viðstöddum ógleymanleg. Næsta mót verður á næsta ári í Horten í Noregi, en 1986 má búast við, að röðin komi að Ólafsfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.