Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Qupperneq 59
Opinber móttaka fyrir Ólafsfirðinga í ráðhúsinu í Lovisa.
Gildi norræns samstarfs
Þrátt fyrir að Ólafsfjörður hafi verið aðili að
vinabæjasamstarfi síðan 1977, hefur þátttaka af
okkar hálfu verið lítil, þar til nú. Að vísu hafa
fulltrúar bæjarstjórnar sótt afmælishátíð í Karls-
krona í Svíþjóð og skíðamcnn farið til þjálfunar og
keppni í Lovisa, en ferðin í sumar var fyrsta þátt-
taka í vinabæjamóti, og var að mínum dómi mynd-
arlega af stað farið. Ég held, að eftir svo vel heppn-
aða og vandræðalausa ferð hafi okkur skilizt, að
þrátt fyrir smæð okkar þurfum við enga minnimátt-
arkcnnd að hafa gagnvart samstarfsaðilum okkar.
Okkur var tekið sem jafningjum; til okkar voru
gerðar sömu kröfur og annarra, og framlag okkar til
mótsins var meira en margra annarra.
rungumálaeríiðlcikar reyndust minni en ætlað
var. Menn hugðust fyrirfram grípa til ensku, cf allt
um þryti, en það reyndist ckki nauðsynlegt, þegar á
hólminn var komið, og allt að því óviðeigandi í
norrænu samstarfi. Ahugi ferðafélaganna á Norður-
landamálunum hefur stóraukizt við kynnin, sem
voru mjög persónuleg, því auk sameiginlcgrar,
opinberrar dagskrár skiptist hópurinn mjög oft upp
og sótti samkvæmi og fundi á vegum bæjar-
stjórnanna, safnaðanna, unglinga- og íþróttasam-
takanna, kvenfélaganna, sparisjóðanna, Rótary-
klúbbanna og fleiri samtaka.
Einnig bjuggu margir á heimilum gestgjafanna.
Góð kynni tókust við fulltrúa f'rá Horten, Karls-
krona og Hilleröd, sem þarna voru. Lciddu þau til
þess, að áður en ferðinni lauk, höfðum við heimsótt
þrjá af fjórum vinabæjum okkar, þótt ekki væri það
ætlunin í upphaíi f'erðar.
Sá mikli áhugi og sómi, sem okkur og landi okkar
var sýndur í þessari ferð, hefur opnað augu okkar
fyrir gildi norræns samstarf's og nauðsyn þcss að
rækta það og efla tengsl við þá menningarheild, sem
Norðurlöndin eru og við tilheyrum fyrst og f'remst.
Við Olafsfirðingar hyggjum því gott til þátttöku í
vinabæjamóti í Horten í Noregi á næsta ári og
stefnum ótrauðir að því að bjóða hinum norrænu
vinum okkar heim til okkar árið 1986. Jafnframt
hvetjum við önnur bæjarfélög, sem ekki haí'a reynt
slíkt samstarf, að gcra það. Það er þess virði.
121