Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Page 10

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Page 10
AFMÆLI Séö yfir hátíðarsvæðið á Hóteltúni föstudaginn 4. júlí. Byggðarlag í sókn Eitt hundrað ára afmælis byggðar á Höfn í Hornafirði minnst á árinu 1997 Gísli Sverrir Arnason, forseti bœjarstjórnar Hornafjarðar íbúar Homafjarðar héldu upp á eitt hundrað ára af- mæli byggðar á Höfn á þessu ári með nágrönnum sínum og gestum. Stóðu hátíðarhöldin allt árið en náðu há- marki dagana 4. - 6. júlí þegar humarhátíð, forsetaheim- sókn og vinabæjamót settu svip sinn á dagskrána. Byggðin á Höfn hefur verið í sókn fyrsta árhundraðið og enn stefna íbúar þar ótrauðir að nýjum og háleitum markmiðum. Hér á eftir verður saga byggðar á Höfn í hundrað ár rakin í annálsformi og síðan lítillega sagt frá hátíðarhöldum afmælisársins. Forsaga Aðdraganda byggðar á Höfn má rekja til kaupstaðar- ins á Papósi í Lóni sem var fyrsti löggilti verslunarstað- urinn í Austur-Skaftafellssýslu. Verslun hófst á Papósi árið 1861 og stóð til 1897 að verslunarhúsin voru flutt til Hafnar. Hornafjarðarós öðlaðist löggildingu sem verslunar- staður nokkru síðar en Papós, eða árið 1880, og þá fóru kaupskip að hafa viðkomu þar. Um svipað leyti hófst árabátaútgerð við Hornafjarðarós eftir langt hlé og strandferðaskip tóku upp reglubundnar siglingar þangað. Varð samkeppni við verslunina á Papósi fljótlega nokk- ur, meðal annars frá Kaupfélagi Austur-Skaftafellssýslu sem rak verslun á Homafirði á árunum 1895-1896. Brautryðjendur Búseta hófst á Höfn árið 1897 þegar Otto Tulinius 4

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.