Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Síða 17

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Síða 17
SKIPULAGSMÁL Framtíðarskipulag miðhálendis íslands Jóhann Már Maríusson, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar Erindi um orkuvinnslu í ljósi skipulagstillögu að miðhálendinu flutt á ráðstefnu á vegum Félags skipulagsfræðinga og Verkfræðistofnunar Háskóla íslands í Háskólabíói laugardaginn 20. september 1997 1. Inngangur Eins og flestir vita er Island ákaflega vel sett samanborið við aðrar þjóðir hvað varðar mögu- leika til orkuvinnslu úr endur- nýjanlegum orkulindum sem eru einkum vatnsaflið og jarðhitinn. Miðbik landsins er hálent og lægðimar sem ganga yfir landið flytja með sér mikla úrkomu sem síðan rennur af landinu og þar sem vatnið fellur fram af há- lendisbrúninni skapast afar hag- stæð skilyrði til virkjunar vatns- aflsins. Af þessum sökum eru því flestir hagstæðustu vatnsafls- virkjunarkostir landsmanna á því svæði sem tillagan að fram- tíðarskipulagi landnýtingar á miðhálendi íslands nær til. Nú- verandi áætlanir um vatnsafls- virkjanir á Islandi gera því ráð fyrir að um 75% af nýtanlegri vatnsorku landsins verði virkjuð innan skipulagssvæðisins. Island situr klofvega á mótum Ameríku- og Evrópu- jarðflekanna sem toga hvor í sína áttina með þeim af- leiðingum að mikil eldvirkni á sér stað á flekamótunum sem ganga eftir Reykjanesskaganum og austur og upp gegnum miðhálendið og mynda á leið sinni yftr landið allmörg virkjanleg háhitasvæði. Þau háhitasvæði sem menn hafa áætlað að nýta mætti til raforkuvinnslu liggja því mörg innan skipulagssvæðis miðhálendisins og er áætlað að raforkuvinnsla á þessum svæðum geti numið allt að 25% af því sem talið er virkjanlegt af jarðhita til raforkuframleiðslu á Islandi. Af öllu þessu má því sjá að það er mikið í húft fyrir þessa þjóð að vel takist til með skynsamlega landnýt- ingu á miðhálendinu hvað varðar möguleika hennar til að nýta hinar verðmætu hreinu orkulindir sem landið býr yfir. Landsvirkjun hefur við ýmis tækifæri ítrekað vakið athygli á gagnsemi þess að koma upp yf- irliti sem sýndi virkjunarkosti í vatnsafli sem áætlað er að megi virkja hér á landi í framtíðinni og þeir greindir með tilliti til fjárhagslegrar hagkvæmni og verndargildis þess landsvæðis sem virkjanimar hafa áhrif á. Þessi vinna er nú hafin undir forystu Orkustofnunar fyrir hönd stjórnvalda þar sem grunnrannsóknir á þessu sviði falla undir verksvið hennar og hefur Orkustofnun samráð og samvinnu við Landsvirkjun og önnur orkufyrirtæki landsins um þetta verkefni. Ætlunin hefur verið að þetta mat megi síðan nota til stýring- ar á því í hvaða röð virkjunar- kostimir verði nýttir þannig að fremst í röðinni verði að öðm jöfnu þeir kostir sem em fjárhagslega hagkvæmast- ir og hafa minnst náttúruvemdargildi. Augljóst er að þetta verkefni er brýnt og ber að leggja sérstaka áherslu á að því verði lokið sem fyrst. Allmargir af þeim virkjunarkostum vatnsafls hér á landi, sem til em hugmyndir um, hafa verið rannsakaðir að nokkru marki og em þeir framtíðarvirkjunarkostir sem Landsvirkjun hefur einkum haft til umfjöllunar að undanfömu lengst komnir í þeim efnum. Þetta er eðlilegt þar sem þessir kostir eru helst taldir koma til álita til að fullnægja vax- andi raforkuþörf í náinni framtíð. Þótt meirihluti þeirra virkjunarhugmynda sem fram hafa komið teljist vera kominn á það rannsóknarstig að hægt sé að greina þær í flokka hvað varðar fjárhagslega hagkvæmni og náttúru-

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.