Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Blaðsíða 18
SKIPULAGSMÁL
vemdargildi eru enn allt of margar á því rannsóknarstigi
að þetta er ekki unnt að gera með viðunandi nákvæmni
og því verður að ráða hér bót á með sérstöku átaki. Eins
og áður sagði er verkið þegar hafið en stjómvöld verða
að sjá til þess að fjárveitingar til rannsókna dugi til
myndarlegs átaks í þessum efnum á allra næstu ámm.
Svipuðum tökum og hér hefur verið lýst þyrfti einnig
að taka nýtingu jarðhitans en því miður era rannsóknir á
þeim þætti komnar mun styttra en rannsóknir á vatnsafl-
inu og einnig eru slíkar rannsóknir mjög kostnaðarsam-
ar. Því má búast við að enn líði drjúgur tími áður en
hægt verði að gera sams konar yfirlit yfir kostina í virkj-
un jarðhitans eins og nú er verið að vinna að fyrir vatns-
aflið.
Stefán Thors hefur í grein í 4. tbl. Sveitarstjómarmála
í ár gert ágæta grein fyrir tildrögum að skipulagi miðhá-
lendisins og Trausti Valsson hefur á öðram vettvangi,
m.a. í erindi á ráðstefnunni 20. september sl., rakið á at-
hyglisverðan hátt hvernig stefnumótun stjórnvalda í
orkumálum, samgöngumálum, ferðamálum, náttúru-
vemdarmálum og öðram þeim málum sem varða land-
nýtingu er nauðsynlegur undanfari skipulagsvinnunnar.
Áður en ég sný mér að athugasemdum Landsvirkjunar
um fyrirliggjandi skipulagstillögu langar mig að lýsa
stuttlega þeim virkjunarhugmyndum á miðhálendinu
sem hafa verið til athugunar nú um nokkurt skeið. Mun
ég þá einnig gera grein fyrir hugsanlegri þróun í orkueft-
irspum á gildistíma skipulagsins og áhrifum tillögunnar
á virkjunaráform og möguleika okkar Islendinga að nýta
okkur aflið sem býr í okkar dýrmætu orkulindum.
2. Áætlanir Landsvirkjunar og Orku-
stofnunar um virkjanir á mióhálendinu
Á 1. mynd má sjá þær vatnsaflsvirkjanir á miðhálend-
inu sem áætlanir era til um. Á myndinni sjást þær virkj-
anir sem þegar hafa verið byggðar, þ.e.a.s. Sigalda,
Hrauneyjafoss, Sultartangi og Blanda. Kvíslaveitan og
Hágöngumiðlun era í byggingu. Það liggur fyrir virkj-
unarleyfi fyrir Fljótsdalsvirkjun og segja má að þar hafi
framkvæmdir þegar hafist. Þá liggur fyrir samkomulag
við hið gamla náttúruverndarráð um Norðlingaöldu-
miðlun á þann veg að í hana mætti ráðast að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum um að náttúravemdargildi Þjórsár-
vera mundi ekki rýma óhæfilega. Virkjanir við Búðar-
háls og Vatnsfell era ekki taldar hafa mikil vandamál í
för með sér hvað varðar umhverfið en náttúravemdar-
gildi flestra annarra virkjunarkosta hefur ekki verið
greint með skipulegum hætti.
Á 2. mynd má sjá hvar skipulagstillagan leyfir virkj-
anir á áranum fram til 2015 og eins og sjá má greinir
skipulagið á milli þess sem virkja má til og með árinu
2005 og þess sem virkja má á skipulagstímanum eftir
það. Athygli vekur að skipulagið gerir ráð fyrir virkjun í
Skjálfandafljóti við Fljótshnjúk en hvorki Landsvirkjun
né Orkustofnun hafa gert áætlanir um þá virkjun. Þá má
einnig sjá að virkjunarhugmyndum á allmörgum vatna-
svæðum er úthýst á skipulagstímabilinu, þar með talinni
veitu af svokölluðu Hraunasvæði til Eyjabakkalóns sem
virkjunarleyfi er fyrir hendi að hluta til. Þá má nefna að
skipulagstillagan gerir ráð fyrir Norðlingaöldumiðlun
með lægri lónhæð en gert er í virkjunaráætlunum Lands-
virkjunar. Þá er ekki gert ráð fyrir neinni nýtingu háhita-
svæðanna á skipulagstímabilinu.
Ég kem nánar að þessu síðar þegar athugasemdir
Landsvirkjunar við skipulagstillöguna verða raktar, en
mun fyrst gera grein fyrir því hvemig menn hafa hugsað
sér virkjunarfyrirkomulagið á þeim stöðum sem sýndir
era á yfirlitsmyndinni og lýsa hvemig þær virkjunaráætl-
anir sem lengst era komnar í undirbúningi era hugsaðar.
Á 3. mynd á bls. 15 era sýndar virkjunaráætlanir norð-
an Vatnajökuls og má þar sjá að reiknað er með því að
virkja Jökulsá í Fljótsdal og Jökulsá á Brú sýna í hvora
lagi niður í Lagarfljót. Vamsvegir verða að mestu jarð-
göng og mynduð verða miðlunarlón upp við jökul á
Eyjabökkum og við Háls en þessi svæði era nánast einu
raunhæfu miðlunarkostir í þessum ám. Jökulsá á Fjöllum
mætti síðan virkja í þrepum með því að veita ánni einnig
í Lagarfljót um miðlunarlón og jarðgöng. Áætlanir
benda til að hér sé um mjög hagkvæma kosti að ræða frá
fjárhagslegu sjónarmiði en um vemdargildi þessara fall-
vatna stendur nokkur styr, einkum um veituna úr Jökulsá
á Fjöllum.
Á 4. mynd á bls. 15 er sýnt áætlað virkjunarfyrirkomu-
lag á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu ofan Búrfells. Hér er
sýnt hvemig menn hugsa sér að mynda lón í Þjórsá við
Norðlingaöldu og veita vatninu til Þórisvatns og þar með
í gegnum Tungnaárvirkjanimar. Þá era sýndar áætlaðar
virkjanir við Búðarháls og Vatnsfell. Þessar hugmyndir
era orðnar nokkuð fastmótaðar og eins og áður sagði er
reiknað með að náttúruverndarsjónarmið muni ekki
raska þessum virkjunarhugmyndum mikið.
Ekki er ástæða til að birta hér fleiri myndir af þessu
tagi enda varla tímabært þar sem aðrar virkjunarhug-
myndir á miðhálendinu era styttra komnar í undirbúningi
og verið er að leita hagkvæmustu leiða til virkjunar þar.
Ég fjalla ekki frekar um þetta efni en sný mér að því
að ræða orkuvinnslumöguleika á miðhálendinu og hugs-
anlega þróun raforkumarkaðsins á íslandi.
3. Orkuvinnsla og markaösmál
Eins og sýnt er á 5. mynd á bls. 16 er reiknað með að
hægt verði að vinna um 28.000 GWh af raforku úr orku-
lindunum á miðhálendinu, þar af er áætlað að um 23.000
fáist úr vatnsafli eða um 75% af því vatnsafli sem núver-
andi áætlanir gera ráð fyrir að nýta megi hér á landi.
Samkvæmt skipulagstillögunni er gert ráð fyrir að ein-
ungis tæp 50% af þessu afli megi nýta á skipulagstíman-
um og sé bara litið á það sem eftir er að virkja þá megi
aðeins nýta um 37% af því á sama tíma.
Ef síðan er vikið að hugsanlegum orkumarkaði sem
1 2