Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Blaðsíða 27
YMISLEGT
Móttaka flóttamanna til
Isafjarðar
Jón A. Tynes, félagsmálastjóri Isafjarðarbœjar
Inngangur
Ríkisstjórn íslands samþykkti í
september 1995 tillögu félagsmála-
ráðherra um að ísland tæki á móti
25 flóttamönnum frá fyrrum
Júgóslavíu. Þegar þessi frétt barst út
kom fram í hópi stjómmálamanna á
ísafirði sú hugmynd að ísafjarðar-
kaupstaður skyldi bjóðast til að taka
á móti flóttamönnunum og veita þá
þjónustu sem flóttamönnum er veitt
í umboði ríkisins. Bæjarstjóri skrif-
aði félagsmálaráðherra bréf þann
25. september 1995 þar sem fram
kom þessi vilji bæjarfélagsins og
ósk um viðræður.
I október sama ár var þáverandi
formaður flóttamannaráðs, Bragi
Guðbrandsson, við störf á ísafirði. í
tengslum við komu hans til Isafjarð-
ar skipulagði Jón Tynes félagsmála-
stjóri heimsóknir hans í þjónustu-
stofnanir og fyrirtæki svo hann gæti
kynnt sér aðstæður og viðhorf þess-
ara aðila til móttöku flóttamanna.
Bragi átti þar að auki viðræður við
forystumenn bæjarins. Eftir þessa
heimsókn skilaði þáverandi formað-
ur flóttamannnaráðs skýrslu til fé-
lagsmálaráðherra. Þar kom fram að
margt mælti með því að Isfirðingar
tækju að sér móttöku á flóttamönn-
um, hins vegar þyrfti að fjölga leik-
skólaplássum og bæta sálfræðiþjón-
ustu.
Það sem gerist næst er að á vor-
dögurn 1996 óskar Berglind Ás-
geirsdóttir, nýskipaður formaður
flóttamannaráðs, eftir því að skipu-
lögð sé heimsókn flóttamannaráðs
til Isafjarðar svo að ráðið geti kynnt
sér aðstæður og átt viðræður við
stjómendur bæjarins. Flóttamanna-
ráð heimsótti síðan Isafjörð. Að
loknum umræðum við stjómendur
bæjarfélagsins kynnti ráðið sér
helstu þjónustustofnanir á heilbrigð-
is- og félagssviði, skólamál og hús-
næði sem í boði var og ræddi við þá
aðila sem helst myndu að þessu
verkefni koma.
Segja má að eftir þessa heimsókn
flóttamannaráðs hafi það skýrst að
Isfirðingum yrði falið verkefnið.
Hófst þá lokaundirbúningur þar sem
allt var gert til að tryggja örugga
móttöku flóttamanna.
Undirbúningur
Hinn 8. maí 1996 var stofnaður
samstarfshópur félagsþjónustu, heil-
brigðisþjónustu og Rauða krossins á
Isafirði, sem skyldi stjóma og sam-
ræma þá vinnu sem tengdist mót-
töku flóttamannanna. Ákveðin
verkaskipting var gerð milli aðila og
skýrðar línur um ábyrgð hvers aðila.
Áður hafði undirbúningur aðallega
falist í því að taka saman þá þætti
sem þyrftu að vera til staðar og
kanna færni þeirra aðila sem að
verkefninu kæmu. Húsnæði var
fengið, kennsla í íslensku tryggð,
heilsugæslan undirbúin, skólar og
leikskólar, svo eitthvað sé nefnt.
Auk beinna undirbúningsstarfa var
verkefnið kynnt bæjarbúum eftir því
sem hægt var og reynt að skapa það
andrúmsloft í bæjarfélaginu sem var
nauðsynlegt til þess að móttaka
flótttamannanna gæti heppnast vel.
Það síðastnefnda var auðvelt því
ljóst var fljótlega að bæjarbúar
stóðu heilshugar að baki bæjarstjóm
Komiö til ísafjaröar aöfaranótt 28. júií 1996 eftir langt og strangt feröalag.
2 1