Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Síða 29
ÝMISLEGT
Auk íslenskukennslu fengu full-
orðnir kynningu á réttindum og
skyldum þeirra sem búa í íslensku
samfélagi. Ýmsir aðilar héldu
fræðsluerindi, t.d. lögregla, heilsu-
vemdarhjúkrunarfræðingur, félags-
ráðgjafi og sálfræðingur. Stofnanir
og fyrirtæki voru heimsótt og voru
flóttamennimir fræddir um þá starf-
semi sem þar fór fram.
Heilbrigðisskoðanir gengu vel og
var lítið um sjúkdóma utan þess
sem búist hafði verið við. Tann-
heilsa þeirra var hins vegar afar
slæm. Þörf á sálfræði og geðlæknis-
þjónustu reyndist lítil. Lítið þurfti
að leita til sérfræðinga utan þeirra
sem starfa á Fjórðungssjúkrahúsinu
á ísafirði. Ekki reyndist þörf á inn-
lögn á sjúkrahús.
Félagsráðgjöf var þannig fram-
kvæmd að reglulegir fundir voru
með hópnum þar sem almennum
spumingum var svarað. Jafnframt
var rætt við hjónin sér þar sem fjall-
að var um mál þeirra og þeim leið-
beint og þau aðstoðuð.
í gmnnskólanum var sett upp sér-
stök námsskrá fyrir bömin sem mið-
aði að því að auðvelda þeim ís-
lenskunámið. Námsefni var keypt
og búið til og fenginn kennari sem
gat talað móðurmál þeirra. Töluvert
bar á óróa og ofbeldi meðal bam-
anna í upphafi, en það lagaðist þeg-
ar leið á skólaárið. Eitt bamanna er
þroskaheft og hefur fengið aðstoð
Greiningarstöðvar ríkisins og Svæð-
isskrifstofu málefna fatlaðra. Það
bam fær nú liðveislu frá sveitarfé-
laginu auk sértækrar aðstoðar í skól-
anum. Almennt gengur bömunum
vel í skólanum. Tekin var upp sú
nýjung í íslensku skólastarfi að
móðurmálskennsla var tekin upp í
stundaskrá barnanna í skólanum.
Lögð er áhersla á tvítyngi og hversu
móðurmálskennslan auðveldar þeim
skilning á íslensku tungutaki.
Mjög fljótlega komu fram óskir
um að fara að vinna, mun fyrr en
undirbúningsaðilar
reiknuðu með. Það
gekk mjög greiðlega
að útvega fólki
vinnu þegar það
óskaði þess. Störf
voru fundin í stál-
iðnaði, byggingar-
iðnaði, þjónustu-
stofnunum og fisk-
iðnaði. Flestir eru
starfandi hjá sama
aðila og þeir hófu
störf hjá fyrir u.þ.b.
ári.
Fjárhagsaðstoð
var þannig fram-
kvæmd að skipt var
upphæð, sem fjöl-
skyldunni var ætluð,
milli hjónanna og
lagt inn á banka-
reikninga þeirra.
Dregið var úr fjár-
hagsaðstoð til flótta-
mannanna í sam-
ræmi við reglur
flóttamannaráðs.
Fyrsta fjölskyldan
Myndlrnar meö
Svelnbjörnsson.
sem festl kaup á elgln húsnæöl á Isafiröl.
greininnl tók Bæjarlns Besta/Halldór
Þegar leið á árið
komu upp vandamál
vegna þess að hópurinn bjó allur í
sama stigahúsi. Það kallaði á að
flýta úrlausnum í húsnæðismálum
til framtíðar. Nú eru allir að undan-
skilinni einni fjölskyldu fluttir í eig-
ið húsnæði, flestir í íbúðir í félags-
lega húsnæðiskerfmu.
í heildina séð verður elcki annað
sagt en að vel hafi tekist með að
hjálpa flóttamönnunum að aðlagast
ísfirsku samfélagi. Það er að vísu
munur milli einstaklinga. Stýrihóp-
urinn tók jafnharðan á þeim vanda-
málum sem upp komu. Þau vanda-
mál voru aldrei stórvægileg og
reyndist auðvelt að greiða úr þeim.
Lokaoró
Skipulag verkefnisins á þann hátt
að fela sveitarfélagi og Rauða
krossinum að vinna saman er gott.
Samstarfið á Isafirði var gott en
ekki alveg hnökralaust. Samskiptin
við félagsmálaráðuneytið voru mjög
góð og greinilegt að ráðherra var
mjög annt um að verkefnið gengi
sem best.
Móttaka flóttamanna með þessum
hætti var ný hér á landi og því um
visst brautryðjendastarf að ræða.
Reynslan á Isafirði kemur fram í
gerð reglna sem flóttamannaráð hef-
ur gert vegna móttöku flóttamanna.
Reynslan hefur líka skilað sér til
Hornafjarðarbæjar sem nú fetar í
fótspor ísafjarðarbæjar.
Þeir sem komu sem flóttamenn til
ísafjarðar fyrir rúmu ári eru íbúar í
ísafjarðarbæ. Þeir skera sig ekkert
úr fjöldanum. Þeir bera höfuðið hátt
inn í framtíðina og Isafjarðarbær er
ríkari af mannlífi en áður.
23