Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Page 32
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
Peningaleg staða sveitarfélaganna 1996
(Sveitarsjóðir og stofnanir þeirra)
Þús. kr.
150.000
100.000
50.000
0
-50.000
-100.000
-150.000
Neskaupstaður Eskifjörður Reyöarfjörður Samtals Sameinað
kröfum.
• Mikilvægt er að sveitarfélög hafi sterka stöðu gagn-
vart ríkisvaldinu vegna þeirrar þjónustu sem rikið
veitir og þeirra verkefna sem ríki og sveitarfélög
sinna í sameiningu. Fjölmenn sveitarfélög eiga auð-
veldara með að hafa áhrif innan ríkiskerfisins.
• Stærri sveitarfélög eiga auðveldara með að hafa áhrif
á þróun atvinnumála og stuðla að nýjungum á því
sviði.
• Þróunin er sú að sveitarfélög víða um land eru að
sameinast og því fyrr sem sameining á sér stað því
betra. Að hika er sama og tapa.
Allir þessir framangreindu þættir voru hafðir að leið-
arljósi í kynningarstarfi undirbúningsráðsins. Ráðið
lagði sérstaka áherslu á að
áherslupunktarnir veittu ein-
ungis innsýn í hvernig nýtt
sveitarfélag gæti verið upp-
byggt en það yrði verkefni
sveitarstjórnar í sameinuðu
sveitarfélagi að útfæra í smáat-
riðum einstök atriði hvað
skipulag og starfshætti áhrærir.
Ohætt er að fullyrða að sú
kynning sem undirbúningsráð-
ið stóð fyrir var ítarleg. Ráðið
gaf út tvo kynningarbæklinga
þar sem áherslupunktamir voru
teknir til umfjöllunar og upp-
lýsingar veittar um einstaka
þætti og þá einkum fjárhags-
lega stöðu sveitarfélaganna.
Einnig tryggði ráðið umfjöllun
um sameiningarmálin í héraðs-
fréttablöðum sem dreift var inn á hvert heimili í sveitar-
félögunum auk þess sem stuðlað var að umfjöllun dag-
blaða um hugmyndimar sem lágu að baki sameining-
unni. Áhersla var lögð á kynningu og umfjöllun um mál-
ið á útvarpsstöðvum, einkum svæðisútvarpi, og leitað
samstarfs við sjónvarpsstöðvar um að gera sameining-
unni góð skil. Síðast en ekki síst bauð ráðið upp á við-
talstíma á öllum þéttbýlisstöðunum ásamt því að fjöl-
mennir borgarafundir voru haldnir skömmu fyrir at-
kvæðagreiðsluna.
I tengslum við kynningarstarfið veitti kynningarfyrir-
tækið Menn og málefni ehf. nauðsynlega ráðgjöf og
gegndi mikilvægu hlutverki hvað það varðaði að tryggja
umfangsmikla umfjöllun stærstu fjölmiðla landsins.
Þegar dró að atkvæða-
greiðslunni var áhugi íbúa
sveitarfélaganna á henni orðinn
mikill og sýndi mikil aðsókn
að borgarafundunum það með
skýrum hætti. Eins og gera
mátti ráð fyrir voru skoðanir
manna á sameiningunni skiptar
og létu andstæðingar samein-
ingar svo sannarlega frá sér
heyra. Einkum var áberandi
hörð andstaða gegn samein-
ingu á Eskifirði en Norðfirð-
ingar virtust vera hvað sáttastir
við sameiningarhugmyndimar.
Fyrir atkvæðagreiðsluna töldu
sumir fjölmiðlar líklegt að til-
laga um sameiningu yrði felld
á Eskifirði, samþykkt með
naumum meirihluta á Reyðar-
firði en samþykkt með miklum
kr. á ibúa
Peningalegar eignir og skuldir á íbúa 1996
(Sveitarsjóðir og stofnanir þeirra)
Neskaupstaður Eskifjörður Reyðarfjörður
Samtals
Sameinað
2 6