Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Blaðsíða 36

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Blaðsíða 36
ÖRYGGISMÁL Skollahvilft ofan byggöarinnar á Flateyri. Myndina tók Jón Gunnar Egilsson af Goöhóll. Tölvulnn- setnlng varnargaröa er unnin á VST hf. og ísgrafi hf. Undirbúningur framkvæmda Undirbúningur framkvæmda við fullnægjandi snjó- flóðavarnir fyrir þorpið hófust strax eftir snjóflóðið í október. Flateyrarhreppur fól VST hf. undirbúning framkvæmdanna í samvinnu við snjóflóðasérfræðinga Norsku jarðtæknistofnunarinnar (NGI). VST hefur í tæplega áratug unnið að verkefnum á sviði snjóflóða- vama og hættumats, m.a. fyrir Isafjarðarbæ (hættumat og vamartillögur), Vesturbyggð (vamartillögur), Súða- vík (hættumat eftir flóðið vegna ákvarðana um uppkaup húsa) og Neskaupstað (vamartillögur), auk tillagna og hönnunar vama fyrir Flateyri. Starfsmenn verkfræðistof- unnar hafa sótt námskeið og ráðstefnur á þessu sviði bæði hérlendis og erlendis og sinnt rannsóknunt á snjó- flóðum, m.a. við Háskóla Islands og í samvinnu við Veðurstofu Islands. Einnig hafa starfsmenn verkfræði- stofunnar skoðað vamarvirki á ýmsum stöðum erlendis, m.a. í Austurriki, Sviss og í Frakklandi. NGI er mjög virt stofnun á alþjóðamælikvarða á sviði snjóflóðavama og þar fara fram snjóflóðarannsóknir og undirbúningur snjóflóðavama í Noregi. Starfsmenn NGI eru margir á meðal þekktustu snjóflóðasérfræðinga heims. Aðstæður í Noregi eru að mörgu leyti líkar aðstæðum hér og reynsla Norðmanna nýtist okkur því vel í uppbyggingu snjóflóðavama hér á landi. Auk þess var mikið og náið samstarf við snjóflóðasérfræðinga Veðurstofu Islands við undirbúning framkvæmdanna, en þar er nú unnið að uppbyggingu þekkingar og að rannsóknum á íslenskum snjóflóðum. Kröfur um öryggi Strax í upphafi mörkuðu stjórnvöld, í samvinnu við Veðurstofu, stefnu varðandi þær öryggiskröfur sem gerðar skyldu til varnar- virkjanna. Ahætta íbúa neð- an garðanna af völdum snjóflóða skyldi verða sam- bærileg eða minni en áhætta landsmanna af völdum ann- arra slysa, svo sem umferð- arslysa. Akveðið var að miða við áhættuna 0,2 • 10'4 á ári, þ.e. líkur á því að farast í snjó- flóði séu I á móti 50.000 á ári. Til samanburðar má geta þess að áhætta vegna um- ferðarslysa er u.þ.b. fimm sinnum meiri, eða 1 á móti 10.000 á ári. Að sumu leyti er erfitt að bera þessar kröf- ur saman við þær kröfur sem gerðar eru í öðrum löndum þar sem snjóflóðahætta er, t.d. í Noregi og Ölpunum. Þó er ljóst að þessar örygg- iskröfur eru með þeim allra ströngustu sem gerðar eru í heiminum. Aöstœöur til snjóflóöavarna Á Flateyri eru að sumu leyti ákjósanlegar aðstæður til byggingar snjóflóðavama, þótt byggðin sé vissulega á miklu snjóflóðasvæði og hættan með því mesta sem ger- ist á byggðu svæði í heiminum. Ofan byggðarinnar er nægilegt pláss til byggingar leiðigarða til þess að beina snjóflóðum frá henni yfir á óbyggð svæði, en leiðigarðar eru yfirleitt hagkvæmusta form snjóflóðavama þar sem þeim verður við komið. Stoðvirki á upptakasvæðum snjó- flóða, þ.e. grindur eða net, sem koma í veg fyrir að snjó- flóð skríði af stað, koma hins vegar ekki til greina á Flat- eyri. Ástæðan er fyrst og fremst kostnaður, enda er stærð upptakasvæðisins mjög mikil, en einnig erfiðar jarðvegs- aðstæður, grjóthmn, óreglulegt landslag og fleira. Bygg- ing þvergarðs, þ.e. stíflugarðs til þess að stoppa snjóflóð- ið, kemur ekki til greina á Flateyri vegna mikils hraða snjóflóðsins þegar það skellur á slíkum garði. SkriÖlengd flóös sem miöa skal varnir viö (hönnunarflóö) Til þess að ná því öryggi sem krafist er er nauðsynlegt að miða hönnun vamarvirkjanna við enn stærra snjóflóð en það sem féll í október 1995, enda er ekkert sem bend- 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.