Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Qupperneq 39
ORYGGISMAL
Leiöigaröar rétt ofan byggöarinnar sem tengjast saman í toppnum. Myndina tók Páll
Geirdal úr lofti 11. febrúar 1998.
lega í farvegi sínum þar sem hraði
þeirra er þetta mikill. Bein reynsla
fyrir virkni garða gegn svo stórum
flóðum er því mjög takmörkuð. Við
hönnun garðanna hefur hins vegar
verið leitast við að nýta bestu þekk-
ingu og reynslu sem til er í heimin-
um hvað varðar eðli snjóflóða og
virkni vamargarða gagnvart þeim.
Nauðsyn vandaðs undirbúnings
Vanda ber sem mest til snjó-
flóðatæknilegs undirbúnings slíkra
framkvæmda, enda eru þar settar
grundvallarforsendur fyrir virkni
vamarvirkja og stærð þeirra og um-
fang ákvörðuð. Um leið er nauð-
synlegt að gera sér grein fyrir því
að óvissa við slíka hönnun er langt-
um meiri en fylgir flestri annarri
verkfræðilegri hönnun mannvirkja.
A þessu stigi undirbúningsins er rétt að nýta þekkingu
og reynslu erlendra sérfræðinga um snjóflóð og snjó-
flóðavarnir, en jafnframt þekkingu innlendra aðila á
þeim sérstöku aðstæðum sem vissulega em til staðar í
snjóflóðamálum hér á landi.
Nauðsynleg samvinna við heimamenn
Virk þátttaka heimamanna allt frá fyrstu stigum undir-
búnings er nauðsynleg, bæði til þess að heimamenn
fylgist með ferlinu allt frá byrjun, en ekki síður til þess
að þekking þeirra á aðstæðum nýtist sem best og sér-
stakar óskir þeirra komist til skila við undirbúningsvinn-
una, t.d. hvað varðar skipulagsmál. Sérstaklega þarf að
huga að umhverfismálum í tengslum við undirbúning og
byggingu vamarvirkja, enda má búast við miklu um-
hverfisraski í tengslum við flestar slíkar framkvæmdir.
Best er ef hægt er að tengja umhverfisbætandi aðgerðir
við framkvæmdina, likt og t.d. á Flateyri, þar sem gert
er ráð fyrir að rækta upp skemmtilegt útivistarsvæði inn-
an vamargarðanna. Fylgja þarf slíkum áformum eftir og
standa eins vel og kostur er að frágangi svæðisins að
framkvæmdum loknum. Með þessu fær framkvæmdin
að einhverju leyti á sig jákvæða mynd m.t.t. umhverfis-
ins og fólk á auðveldara með að sætta sig við óumflýj-
anleg neikvæð áhrif hennar.
Nauðsynleg kynning varnartillagna
Kynning á framkvæmdinni á öllum stigum hennar er
mjög mikilvæg. Fólki er þá gefinn kostur á að fylgjast
með undirbúningi og ákvarðanatöku og koma skoðun-
um sínum og athugasemdum á framfæri. Slíkt getur
komið í veg fyrir oft ónauðsynlegan misskilning vegna
ónógra upplýsinga. Með þessu móti er líklegra að fólk
verði sátt við mannvirkin og öðlist tiltrú á virkni þeirra,
en það er einmitt meginforsenda þess að vamarvirkin
hafi tilætluð jákvæð áhrif á samfélagið neðan þeirra.
Nauðsyn góðs undirbúningstíma
Nauðsynlegt er að ætla nægan tíma í undirbúnings-
vinnuna. Snjóflóðatæknileg hönnun vamanna tekur að
lágmarki nokkra mánuði; þar þarf að afla ýmissa gagna
og hafa samskipti við erlenda aðila og skoða margar
mismunandi útfærslur varnarvirkja, sem getur verið
tímafrekt. í langflestum tilfellum þarf að fara fram mat á
umhverfisáhrifum vegna þessara framkvæmda og það
ferli allt saman tekur a.m.k. þrjá mánuði. Ætla þarf góð-
an tíma til kynningar á niðurstöðum á ýmsum stigum
undirbúningsins þannig að fólk geti áttað sig á tillögun-
um og gert við þær athugasemdir. Að lokum þarf að
verkhanna vamarvirkin og bjóða framkvæmdina út. Á
Flateyri fór þessi vinna fram við nokkuð sérstakar að-
stæður í kjölfar hins mannskæða slyss og þess þrýstings
sem skapaðist að gera eitthvað vegna komandi vetrar.
Undirbúningurinn hófst í febrúar 1996 og samið var við
verktaka í ágúst sama ár. Æskilegt er að ætla mun rýmri
tíma fyrir þessa undirbúningsvinnu í komandi verkefn-
um.
Lokaorð
Nú er að ljúka framkvæmdum við gerð fyrstu vamar-
virkja vegna snjóflóða síðan verulegar breytingar voru
gerðar á lögum um snjóflóðavamir í kjölfar hörmulegra
atburða á árinu 1995. Stjómvöld hafa tekið myndarlega á
málinu og em miklar vonir bundnar við að öryggi íbúa á
snjóflóðahættusvæðum verði komið í viðunandi horf í
byrjun næstu aldar.
33