Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Síða 40

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Síða 40
oryggismAl Snjóflóðavarnir á Flateyri - uppgræðsla Pétur Jónsson landslagsarkitekt Á komandi sumri hefst upp- græðsla vamargarðanna við Flateyri og þess svæðis umhverfis varnar- garðana sem notað var til efnistöku. Heildarstærð uppgræðslusvæðisins er um 27 hektarar. Vamargarðamir mynda bókstafinn A, tveir leiði- garðar og svo þvergarður sem tengir leiðigarðana. Flatarmál garðanna er um 7 hektarar. Milli garðanna myndast því stórt rými sem tengist byggðinni með göngum í gegnum þvergarðinn. Þetta rými er um fjórir hektarar að stærð. Síðan er efnis- tökusvæðið sjálft um 16 hektarar. Við verkfræðilega hönnun varn- argarðsins er vamargildi hans núm- er 1. Stærð garðsins og bratti hans er miðaður við að hann þjóni til- gangi sínum sem snjóflóðavörn. Aftur á móti má móta þann hluta garðsins sem snýr að byggðinni þannig að útlit og notagildi nýtist fyrir íbúa svæðisins sem útivistar- svæði, t.d. sleðabrekka, gróðursetn- ingarsvæði og gönguleiðir sem tengjast þessu. Rétt við vamargarð- inn er kirkjugarður bæjarins, hugs- anlegur bæjargarður og fyrirhugað- ur minningarreitur. Göng sem koma í gegnum þvergarðinn opna fyrir nýtingu svæðis milli leiðigarða sem útivistarsvæðis, en einnig er gert ráð fyrir útsýnispalli á leiðigarðinum þaðan sem skynja má stærð mann- virkisins og njóta útsýnis yfir bæ- inn. Þessi svæði verða eitt útivistar- svæði og tengjast saman með stíg- um. Lykilatriði er að uppgræðsla svæðisins takist sem best sem fyrst til þess að loka sárum í landinu og færa svæðið í samt horf. Upp- græðslan felst í áburðargjöf, sán- ingu grasfræs og gróðursetningu trjáa, runna og lúpínu. Með grassáningu er tilgangurinn að loka yfirborði jarðvegsins og hindra þannig rof í yfirborðinu og útskolun fínefna. Grasið myndar sinu og hef- ur þannig áhrif á jarðvegsmyndun og nærveður. Ásýnd svæðisins verður heildstæð. Áburðargjöf er nauðsynleg ásamt sáningu og er ráðgert að gefa áburð a.m.k. fyrstu tvö árin. Þegar áburðargjöf lýkur dregur úr grasvexti en aðliggjandi gróðursamfélag, mosar, lyng og jarðvegslífverur, aðlagað vistkerfi svæðisins berst inn á svæðið. Við val á fræi er leitast við að nota gras- tegundir sem em þolnar en em jafn- framt kröfulitlar og sem mest sjálf- Yfirlitið sýnir snjóflóðavarnargarðana viö Flateyri og fyrirhugaða uppgræöslu þeirra. Uppdráttinn geröi greinarhöfundur, Pétur Jónsson landslagsarkitekt. 34

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.