Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Blaðsíða 52
RÁÐSTEFNUR
Setiö tyrir svörum. Á myndinni eru, taliö trá vinstri, Halldór Guömundsson arkitekt, Vil-
mundur Gíslason sveitarstjóri, Guörún Jónsdóttir arkitekt, Ingibjörg R. Guölaugsdóttir
sviösstjóri, Ólafur Stefánsson deildarstjóri og Vilhjálmur P. Vilhjálmsson ráöstefnu-
stjóri. Ólafur Jensson tók myndina.
ferlimál fatlaðra við meðferð
mála hjá byggingarnefndum
sveitarfélaga. Stefán Thors,
skipulagsstjóri ríkisins, kynnti
nýju skipulags- og byggingar-
lögin og Ásdís Hlökk Theo-
dórsdóttir, sviðsstjóri hjá
Skipulagi ríkisins, kynnti síðan
drög að nýrri skipulagsreglu-
gerð. Magnús Sædal Svavars-
son, byggingarfulltrúi Reykja-
víkurborgar, fjallaði einnig um
ný drög að byggingarreglugerð.
Fjölmargar athugasemdir og
ábendingar hafa verið gerðar
við reglugerðardrögin og upp-
lýsti umhverfisráðherra í ávarpi
sínu að frestað yrði um hálft ár
að setja reglugerðimar.
Sigurður Harðarson, arkitekt
FAI, skýrði frá gerð handbókar-
innar „Aðgengi fyrir alla“ sem
hefur verið í vinnslu í nokkur
ár og er nú beðið eftir að nýjar
skipulags- og byggingarreglu-
gerðir öðlist gildi til unnt sé að
fullgera handbókina. Með út-
gáfu á þessari handbók verða
samankomnar á einn stað
grundvallarupplýsingar fyrir
hönnuði varðandi ferlimál.
Fjallað var um þarfir vegna
aðgengi frá sjónarhóli hreyfi-
hamlaðra, blindra og sjón-
skertra, heyrnarlausra og
heymarskertra, þroskaheftra og
aldraðra. Þeir sem um þetta
fjölluðu voru þau Ólöf Ríkarðs-
dóttir, Helga Einarsdóttir,
ADL-umferliskennari, Sigurlín
Margrét Sigurðardóttir, ritari
Félags heyrnarlausra, Kristján
Sigurmundsson þroskaþjálfi og
Sveinn Bjömsson verkfræðing-
ur.
Nú var komið að lausnum um
aðgengi og hvað hafi verið
gert. Ingibjörg R. Guðlaugs-
dóttir, skýrði frá starfsemi
ferlinefndar Reykjavíkurborgar
og átaki sem nú er unnið að í
stofnunum borgarinnar varð-
andi aðgengi. Ólafur Stefáns-
son, deildarstjóri hjá embætti
gatnamálastjóra, fjallaði um
átak í niðurfellingu götukanta í
höfuðborginni sem hefur verið
unnið að með skipulögðum
hætti síðustu ár. Vilmundur
Gíslason, sveitarstjóri á Vopna-
firði, sagði frá hverju lítið
sveitarfélag getur komið í verk
í þessum efnum og Guðrún
Jónsdóttir, arkitekt FAI og for-
maður ferlinefndar félagsmála-
ráðuneytisins, kynnti starfsemi
og hlutverk nefndarinnar. Að
lokum lýsti Halldór Guð-
mundsson, arkitekt FAI, hvað
nokkrir einkaaðilar hafi gert til
að bæta aðgengi.
Á ráðstefnunni voru sýnd tvö
myndbönd, annars vegar danskt
myndband um hremmingar
manns í hjólastóli og hins vegar
íslenskt myndband um aðgengi
blindra og sjónskertra en efni
þeirra beggja var í góðlátlegum
tón.
Fyrirlesarar sátu fyrir svömm
og fyrirspumum ráðstefnugesta
og urðu líflegar umræður um
efni ráðstefnunnar. I lok henn-
ar gerði Ingimar Sigurðsson
grein fyrir samantekt á því sem
fram hafði komið á ráðstefn-
unni. Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son sleit síðan ráðstefnunni og
þakkaði öllum fyrir þátttökuna
og undirbúningsnefnd fyrir
hennar störf.
Erindum fyrirlesara var dreift
á ráðstefnunni. Þau er hægt að
fá á skrifstofu sambandsins.
46