Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Side 57

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Side 57
FRA LANDSHLUTASAMTOKUNUM Við skrifstofustörf á fundin- um, taliö frá vinstri, Björn Haf- þór Guömundsson, fram- kvæmdastjóri SSA, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, starfs- maöur á fundinum, Vilmundur Gíslason, sveitarstjóri Vopna- fjaröarhrepps, og Sturlaugur Þorsteinsson, bæjarstjóri á Hornafiröi. Eftir talsverðar umræður og fyrirspumir til framsögu- manna gerði fundurinn svofellda samþykkt um þetta fundarefni: Aðalfundur SSA 1997 leggur áherslu á mikilvægi verslunar í heimabyggð. Það er þýðingarmikið að landsbyggðarverslanir sitji við sama borð og stórmarkaðir á höfuðborgarsvæðinu við vöruinnkaup. Kanna þarf leiðir til að lækka flutn- ingskostnað vöm. Samkeppni stuðlar að betri þjónustu, lægra verði og meiri gæðum. Aðalfundurinn hvetur einnig stéttarfélög á Austurlandi til að taka virkan þátt í samstarfi ASI, BSRB og Neytendasamtakanna um verðlagseftirlit og verðkannanir. Víötækt kynningarátak á Austurlandi Aðalfundurinn samþykkti að SSA standi að og kosti að hluta til víðtækt kynningarátak á Austurlandi, sem skerpi á mörgum sviðum sterka og jákvæða ímynd fjórðungsins. Átakið hefjist í ársbyrjun 1998 og standi til aldamóta. Leitað verði fulltingis Þróunarstofu Austur- lands um framkvæmd verkefnisins og það kostað með framlögum í formi fjárstyrkja og vinnuframlagi við skipulagningu og verkefnisstjóm. 1 greinargerð með tillögunni sagði að átakið feli í sér fjölbreyttar aðgerðir sem miði að því að vekja athygli á jákvæðum þáttum í mannlífi, umhverfi og atvinnulífi á Austurlandi. Tilgangur þess verði að móta sterka og já- kvæða ímynd Austurlands í hugum landsmanna og byggja upp með þeim hætti aukið aðdráttarafl fyrir nýja íbúa, ferðamenn og fjárfesta í atvinnulífi. Markmið átaksins sé ennfremur að Austurland verði í byrjun nýrr- ar aldar viðurkennt sem einstaklega gott landsvæði til búsetu og góður starfsvettvangur með fjölbreytta mögu- leika þar sem þægilegt er að ala upp böm og ungmenni. í þeim tilgangi að auka samkennd íbúa landshlutans og fá þá til að líta fremur á sig sem Austfirðinga en íbúa tiltekinna sveitarfélaga eða svæða verði í stað drekans, sem nú er oftast notaður, hannað nútímalegt merki fyrir fjórðunginn er nota mætti með byggðarmerkjum sveitar- félaga, merkjum fyrirtækja og annarra, sem auðkenna vildu sig Austurlandi. Skýrt er frá merkinu og birt mynd af því aftan við þessa frásögn. Námskeið aö loknum sveitarstjórnarkosningum Aðalfundurinn beindi þeim tilmælum til nýrrar stjóm- ar sambandsins að hún stuðli að því að haldin verði nám- skeið fyrir sveitarstjómarmenn og starfsfólk sveitarfélag- anna að loknum kosningum vorið 1998. Á námskeiðinu verði höfuðáhersla lögð á mannleg samskipti. Fjölgun kvenna í sveitarstjórnum Þá hvatti fundurinn sveitarstjómarmenn á Austurlandi til þess að stuðla að því að fjölga konum í sínum röðum í kosningum til sveitarstjóma á árinu 1998. Heilsugæsla Aðalfundurinn lýsti þungum áhyggjum vegna þess ástands sem ríkir í heilsugæslumálum á Austurlandi. Enginn fastráðinn heilsugæslulæknir er á svæðinu frá Eskifirði til Djúpavogs. Fundurinn lýsir undmn sinni á þeim mikla seinagangi sem er á störfum kjaranefndar um launamál lækna. Nauðsynlegt sé einnig að skapa þannig vinnuskilyrði og aðstöðu fyrir heimilislækna á lands- byggðinni að eftirsóknarvert sé að starfa þar. Aðalfundurinn skoraði á heilbrigðisráðherra og sam- tök lækna að taka höndum saman og leysa þessi mál í eitt skipti fyrir öll. Virkjun á Austurlandi Aðalfundurinn skoraði á þingmenn Austurlands í sam- starfi við stjóm SSA og orku- og stóriðjunefnd SSA að vinna markvisst að því að þegar verði hafinn undirbún-

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.