Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Page 65

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Page 65
HEILBRIGÐISMAL Sambandið gerist aðili að áætluninni Island án eiturlyfja 2002 2CÍD&*$ Sambandið hefur þekkst boð um að gerast aðili að áætluninni Island án eiturlyfja 2002 og stjóm þess til- nefnt Soffíu Gísladóttur, félags- málastjóra á Húsavík og í Þingeyj- arsýslum, fulltrúa sambandsins í verkefnisstjómina. í verkefnisstjóminni eiga nú sæti fimm fulltrúar. Þeir em Dögg Páls- dóttir hrl., sem er formaður, tilnefnd af dómsmálaráðherra, Ingibjörg Broddadóttir, deildarstjóri í félags- málaráðuneytinu, tilnefnd af félags- málaráðherra, Hrafn Pálsson, deild- arstjóri í heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu, tilnefndur af heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra, Kristín A. Amadóttir, aðstoðarkona borgarstjóra, tiln. af borgarstjóra, og Áke Setréus, framkvæmdastjóri hjá ECAD, en það er skammstöfun á Samtökum Evrópuborga gegn eitur- lyfjum. Þau samtök eiga fyrir ásamt ríkis- stjóminni og Reykjavíkurborg aðild að áætluninni. Ríkisstjórnin hefur lagt 3 millj. kr. til áætlunarinnar og Reykjavík- urborg 1 millj. kr. Verkefnisstjóri er Snjólaug Stef- ánsdóttir og aðsetur hennar í Aðal- stræti 6 í Reykjavík. I bréfi verkefnisstjómarinnar þar sem sambandinu er boðin formleg aðild að verkefninu er þátttaka þess talin mjög mikilvæg og sögð geta stuðlað að öflugra og virkara for- vamastarfi um land allt. Hér fer á eftir brýning til sveitar- félaganna frá verkefnisstjóminni: Sameinumst í baráttunni í nýjustu könnun Rannsóknar- stofnunar uppeldis- og menntamála kemur fram að óheillavænleg þróun hefur orðið í vímuefnaneyslu ungl- inga á grunnskólaaldri. Könnunin sýnir ennfremur að náið samband sé milli neyslu og félagslegrar stöðu unglinganna eða tengsla þeirra við umhverfi sitt. Neysla ólöglegra fíkniefna vex með ógnarhraða og ef ekki verður spymt við fótum NUNA er hætta á því að við missum þessi mál úr böndum. Því þarf þjóðin öll að taka höndum saman í þessari baráttu með sveitarstjórnarmenn fremsta í flokki. Markmiðið með áætluninni Is- land án eitwlyfja 2002 er að sam- eina krafta þjóðarinnar í baráttunni gegn ólöglegum fíkniefnum og beita í því starfi öllum tiltækum ráð- um. Áætlunin er liður í fjölþættum aðgerðum sem ríkisstjómin hrinti af stað í árslok 1996 í kjölfar þess að hún samþykkti sérstaka stefnumörk- un í vímuefna-, áfengis- og tóbaks- vömum. Reykjavíkurborg er einnig Trjágróður í þéttbýli — ráðstefna 1. apríl Miðvikudaginn 1. apríl næstkom- andi verður haldin ráðstefna um trjágróður og trjárækt í þéttbýli. Ráðstefnan fer fram í Ráðstefnusöl- um ríkisins, Borgartúni 6, og stend- ur frá kl. 9-17. Að ráðstefnunni standa Félag garðyrkjumanna, Garðyrkjuskóli ríkisins, Samtök garðyrkju- og umhverfisstjóra (SAMGUS), Félag skrúðgarðyrkju- meistara og Félag íslenskra lands- lagsarkitekta (FÍLA). Meginefni aðili að áætluninni og nú nýverið gekk Samband íslenskra sveitarfé- laga til liðs við verkefnið. Island án eitwlyfja 2002 er metn- aðarfullt markmið sem erfitt verður að ná. Hvort markmiðið næst er ekki kjami málsins. Það sem skiptir máli er að sérhvert okkar leggi sitt af mörkum til að losa Island við eit- urlyfjavágestinn. Öll þjóðin þarf að leggjast á eitt í þessari baráttu og hafa hugfast að hvert skref sem fær- ir okkur nær takmarkinu er mikil- vægur áfangasigur. Nýlega var opnaður forvamavef- ur á Intemetinu, www.island2002.is. Þar er að finna upplýsingar sem að gagni kunna að koma í þesssari bar- áttu. Vefurinn verður síðan í stöðugri þróun og er m.a. stefnt að því að þar verði gefinn kostur á að beina fyrirspumum til sérfræðinga á þessu sviði. Við hvetjum ykkur til að líta á vefinn. ráðstefnunnar er, eins og áður segir, trjágróður í þéttbýli, áhrif gróðurs- ins á skipulag og áhrif skipulags á gróður. Ráðstefnan er einkum ætl- uð fagfólki í græna geiranum auk starfsmanna skipulags-, umhverfis- og byggingamefnda. Fyrirlesarar koma víða að og er búist við fjömg- um umræðum því mál þessi hafa verið í brennidepli frá því aspar- dómurinn víðfrægi féll í Kópavog- inum á haustdögum. Skráning á ráðstefnuna fer fram hjá þjónustu- skrifstofu iðnfélaga að Suðurlands- braut 30 í Reykjavík í síma 533- 6000. Þátttökugjald er kr. 4.000. RÁÐSTE F N U R 59

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.