Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Qupperneq 65
HEILBRIGÐISMAL
Sambandið gerist aðili að áætluninni
Island án eiturlyfja 2002 2CÍD&*$
Sambandið hefur þekkst boð um
að gerast aðili að áætluninni Island
án eiturlyfja 2002 og stjóm þess til-
nefnt Soffíu Gísladóttur, félags-
málastjóra á Húsavík og í Þingeyj-
arsýslum, fulltrúa sambandsins í
verkefnisstjómina.
í verkefnisstjóminni eiga nú sæti
fimm fulltrúar. Þeir em Dögg Páls-
dóttir hrl., sem er formaður, tilnefnd
af dómsmálaráðherra, Ingibjörg
Broddadóttir, deildarstjóri í félags-
málaráðuneytinu, tilnefnd af félags-
málaráðherra, Hrafn Pálsson, deild-
arstjóri í heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu, tilnefndur af heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra,
Kristín A. Amadóttir, aðstoðarkona
borgarstjóra, tiln. af borgarstjóra, og
Áke Setréus, framkvæmdastjóri hjá
ECAD, en það er skammstöfun á
Samtökum Evrópuborga gegn eitur-
lyfjum.
Þau samtök eiga fyrir ásamt ríkis-
stjóminni og Reykjavíkurborg aðild
að áætluninni.
Ríkisstjórnin hefur lagt 3 millj.
kr. til áætlunarinnar og Reykjavík-
urborg 1 millj. kr.
Verkefnisstjóri er Snjólaug Stef-
ánsdóttir og aðsetur hennar í Aðal-
stræti 6 í Reykjavík.
I bréfi verkefnisstjómarinnar þar
sem sambandinu er boðin formleg
aðild að verkefninu er þátttaka þess
talin mjög mikilvæg og sögð geta
stuðlað að öflugra og virkara for-
vamastarfi um land allt.
Hér fer á eftir brýning til sveitar-
félaganna frá verkefnisstjóminni:
Sameinumst í baráttunni
í nýjustu könnun Rannsóknar-
stofnunar uppeldis- og menntamála
kemur fram að óheillavænleg þróun
hefur orðið í vímuefnaneyslu ungl-
inga á grunnskólaaldri. Könnunin
sýnir ennfremur að náið samband sé
milli neyslu og félagslegrar stöðu
unglinganna eða tengsla þeirra við
umhverfi sitt.
Neysla ólöglegra fíkniefna vex
með ógnarhraða og ef ekki verður
spymt við fótum NUNA er hætta á
því að við missum þessi mál úr
böndum. Því þarf þjóðin öll að taka
höndum saman í þessari baráttu
með sveitarstjórnarmenn fremsta í
flokki.
Markmiðið með áætluninni Is-
land án eitwlyfja 2002 er að sam-
eina krafta þjóðarinnar í baráttunni
gegn ólöglegum fíkniefnum og
beita í því starfi öllum tiltækum ráð-
um. Áætlunin er liður í fjölþættum
aðgerðum sem ríkisstjómin hrinti af
stað í árslok 1996 í kjölfar þess að
hún samþykkti sérstaka stefnumörk-
un í vímuefna-, áfengis- og tóbaks-
vömum. Reykjavíkurborg er einnig
Trjágróður í þéttbýli
— ráðstefna 1. apríl
Miðvikudaginn 1. apríl næstkom-
andi verður haldin ráðstefna um
trjágróður og trjárækt í þéttbýli.
Ráðstefnan fer fram í Ráðstefnusöl-
um ríkisins, Borgartúni 6, og stend-
ur frá kl. 9-17. Að ráðstefnunni
standa Félag garðyrkjumanna,
Garðyrkjuskóli ríkisins, Samtök
garðyrkju- og umhverfisstjóra
(SAMGUS), Félag skrúðgarðyrkju-
meistara og Félag íslenskra lands-
lagsarkitekta (FÍLA). Meginefni
aðili að áætluninni og nú nýverið
gekk Samband íslenskra sveitarfé-
laga til liðs við verkefnið.
Island án eitwlyfja 2002 er metn-
aðarfullt markmið sem erfitt verður
að ná. Hvort markmiðið næst er
ekki kjami málsins. Það sem skiptir
máli er að sérhvert okkar leggi sitt
af mörkum til að losa Island við eit-
urlyfjavágestinn. Öll þjóðin þarf að
leggjast á eitt í þessari baráttu og
hafa hugfast að hvert skref sem fær-
ir okkur nær takmarkinu er mikil-
vægur áfangasigur.
Nýlega var opnaður forvamavef-
ur á Intemetinu, www.island2002.is.
Þar er að finna upplýsingar sem að
gagni kunna að koma í þesssari bar-
áttu. Vefurinn verður síðan í
stöðugri þróun og er m.a. stefnt að
því að þar verði gefinn kostur á að
beina fyrirspumum til sérfræðinga á
þessu sviði. Við hvetjum ykkur til
að líta á vefinn.
ráðstefnunnar er, eins og áður segir,
trjágróður í þéttbýli, áhrif gróðurs-
ins á skipulag og áhrif skipulags á
gróður. Ráðstefnan er einkum ætl-
uð fagfólki í græna geiranum auk
starfsmanna skipulags-, umhverfis-
og byggingamefnda. Fyrirlesarar
koma víða að og er búist við fjömg-
um umræðum því mál þessi hafa
verið í brennidepli frá því aspar-
dómurinn víðfrægi féll í Kópavog-
inum á haustdögum. Skráning á
ráðstefnuna fer fram hjá þjónustu-
skrifstofu iðnfélaga að Suðurlands-
braut 30 í Reykjavík í síma 533-
6000. Þátttökugjald er kr. 4.000.
RÁÐSTE F N U R
59