Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Qupperneq 8
SAMTALIÐ
Hrossin rekin af fjalli áleiðis í hestarétt.
Jökulsárgljúfur.
utan við það ferli allt frá upphafi. Engu að síður er sam-
starf okkar á milli á ýmsum sviðum og sérstök sam-
starfsnefnd var skipuð. Akrahreppur á hluta í og rekur
nteð okkur Varmahlíðarskóla, ásamt leikskóla og tón-
listarskóla í Varmahlíð. Einnig tekur Akrahreppur þátt í
rekstri skólaskrifstofu, brunavörnum og safnamálum
svo eitthvað sé nefnt. Þetta samstarf hefur gengið ágæt-
lega, og er í raun það mikið að sameining mundi litlu
breyta. Hins vegar má segja að hreppsnefnd Akrahrepps
sé á margan hátt bundin ákvörðununt sveitarstjórnar
Skagafjarðar, líkt og var gagnvart héraðsnefnd áður.“
- Sœtti þaó gagnrýni i strjálbýlinu að iniklu fé skyldi var-
ió i uppbyggingu skíðasvœðis i Tindastóli við Sauðár-
krók?
„Aður en til sameiningar kom var búið að taka
um það ákvörðun hvar framtíðarskíðasvæði Skagfírð-
inga skyldi vera. Um það var ekki ágreiningur. Hins
vegar voru menn ekki sammála urn það hvenær fram-
kvæmdir á skíðasvæðinu skyldu hefjast. Skoðanir
rnanna á því voru skiptar og fór það ekki eftir búsetu, þó
svo að mesti þrýstingurinn um framkvæmdir hafi komið
frá Sauðárkróki. Á hinn bóginn er þetta skíðasvæði fyrir
alla Skagfirðinga og reyndar landsmenn alla sent vilja
koma og nýta sér aðstöðuna. Þama er yfirleitt ntikill og
góður snjór, fínar brekkur auk góðrar aðstöðu til skíða-
göngu. í vetur hefur verið mikil aðsókn á skíðasvæðið
og snjóleysið fyrir sunnan hefur hjálpað okkur. Mikil
sjálfboðavinna var lögð fram við ffamkvæmdir á skíða-
svæðinu og hélt það kostnaði verulega niðri. Eg tel að
þama hafi tekist vel til, en hinu er ekki að leyna að ég
var einn þeirra sem vildi fara hægar í sakimar.“
- Þió hafið verió að endurskipuleggja grunnskólafrœðsl-
una. I hverju eru breytingarnar fólgnar? Verður eining
um þœr?
„Við sameininguna var gmnnskóli starfræktur á sjö
stöðum í sveitarfélaginu. Nú er búið að fækka um einn
lítinn skóla og verið er að skoða frekari hagræðingu. Hjá
því verður ekki komist. Einn skólastjóri er nú yfir skól-
unum í Fljótum, á Hofsósi og Hólum, en vom áður þrir.
Nú er verið að byggja gmnnskólahúsnæði á Sauðárkróki
til þess að hægt verði að einsetja skólann þar og er það
stærsta ffamkvæmd sveitarfélagsins um þessar mundir.
Þjónustusamningur við skólastjórann í Varmahlíðarskóla
er í vinnslu og emm við að feta okkur inn á nýjar brautir
þar. Umtalsverður skólaakstur er í Skagafírði og var
skólaaksturinn boðinn út á síðasta ári og endurskipulagð-
ur að hluta. Breytingar eins og að leggja niður skóla
hljóta alltaf að verða umdeildar og svo verður einnig hjá
okkur. Nú er í umræðunni að fækka um einn skóla í
sveitarfélaginu, og þó að eining verði meðal sveitar-
stjómarmanna í því máli, fínnst mér ótrúlegt að eining
verði um það meðal íbúanna og er það skiljanlegt.“
- Er reynt að samhœfa kennslukraftana í Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauóárkróki, Hólaskóla, Farskóla
Noróurlands vestra - og miðstöð símenntunar á Norður-
landi vestra?
„Allar þessar menntastofnanir eru okkur mjög dýr-