Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Blaðsíða 27
MENNINGARMÁL
Menningarborgarsjóður
í byrjun árs gerðu menntamála-
ráðherra og borgarstjórinn í Reykja-
vík með sér samkomulag um stofn-
un sjóðs sem ber heitið Menningar-
borgarsjóður og hefur Listahátíð í
Reykjavík verið falin umsýsla hans.
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að
tjölbreytilegu menningarstarfl um
allt land í framhaldi af menningar-
borgarárinu.
Uthlutað verður úr sjóðnum til
eftirtalinna verkefna:
a) Nýsköpunarverkefna á sviði lista.
b) Menningarverkefna á vegum
sveitarfélaga.
c) Menningarverkefna fýrir böm og
ungt fólk.
Stofnframlag sjóðsins árið 2001
kernur ffá M2000, auk framlags frá
ríki og borg sem árlega munu veita
fé í sjóðinn.
Uthlutunamefnd Menningarborg-
arsjóðs til næstu tveggja ára hefur
verið skipuð. í nefndinni em Karitas
H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri í
menntamálaráðuneytinu, og Katrín
Dóra Þorsteinsdóttir, forstöðumaður
Símenntunarstofnunar Eyjafjarðar,
fulltrúar menntamálaráðherra, Krist-
ín A. Ámadóttir, framkvæmdastjóri
þróunar- og ijölskyldusviðs Reykja-
víkurborgar, og Þórhildur Þorleifs-
dóttir leikstjóri, fulltrúar borgar-
stjóra, og Þórunn Sigurðardóttir,
listrænn stjórnandi Listahátíðar,
skipuð af stjórn Listahátíðar í
Reykjavík, og er hún formaður
nefndarinnar. Kristín A. Ámadóttir
er varaformaður nefhdarinnar.
Úthlutunarnefnd úthlutar árlega
styrkjum úr sjóðnum og verður
fyrsta úthlutun í vor. Auglýst var
eftir umsóknum í dagblöðum helg-
ina 21.-22. apríl og er umsóknar-
ffestur til 22. maí. Ennffemur er birt
auglýsing frá sjóðnum annars staðar
í þessu tölublaði.
Gert er ráð fyrir að úthlutunar-
nefndin hafi um 25 millj. kr. til ráð-
stöfunar í ár. Formaður nefndarinn-
ar, Þómnn Sigurðardóttir, segir að
fénu verði ekki fyrirfram skipt niður
milli þeirra þriggja verkefnaflokka
sem tilgreindir em, enda muni vænt-
anlega mörg verkefni geta fallið
undir fleiri en einn flokk. Gert er
ráð fyrir að veita styrki til áhuga-
verðra og nýstárlegra verkefna, en
ekki til reksturs, verklegra fram-
kvæmda við húsnæði eða almenna
ferðastyrki. Ekki er skilyrði að
sveitarfélög standi að verkefhum, en
kostur að viðkomandi sveitarfélög
komi að þeim með einhverjum
hætti, fjárstuðningi eða öðrum
stuðningi. Hátíðir sem haldnar hafa
verið áður eða sýningar sem halda
áfram þurfa að sækja um til nýrra
þátta, viðburða eða nýjunga í starf-
seminni.
Nánari upplýsingar um sjóðinn
em veittar á skrifstofu Listahátíðar í
Reykjavík. Framkvæmdastjóri
hennar er Hrefna Haraldsdóttir og
listrænn stjómandi Þórunn Sigurð-
ardóttir. Símanúmer á skrifstofu
sjóðsins er 561 2444, símbréf 562
2350 og netfang artfest@artfest.is.
T
rjumuiú vmiiuvcidi
bæjarfélög og verktaka
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - sími 568 1500 - AKUREYRI: Lónsbakka - sími: 461 1070 - www.thor.is
89