Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Blaðsíða 63

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Blaðsíða 63
LEIKSKÓLAR heilsugæslu og bókasafn. Höskuldur Frímannsson ráðgjafi segir að gæðakerfið snúist fyrst og fremst um tvennt: Hvaða fræðslu og þjónustu leikskólinn ætli sér að veita og hvemig hann ætli að gera það. Skólinn ætli að laga það sem aflaga fer og bæta um betur þegar þörf er á. „Gæðakerfí, hvort sem það er innleitt í fyrirtæki eða leik- skóla, snýst um það að sýna fram á hvemig viðkomandi eining ætlar að standa við þau loforð sem hún gef- ur. Það er því ekki nóg að segja að leikskólastarfið eigi að stuðla að þroska barnanna heldur verður að sýna fram á hvemig það verður gert og fylgjast með því hvemig gengur. Gæðakerfið er því hjálpartæki fyrir stjórnendur og starfsfólk og gerir starf þeirra markvissara og ör- uggara.“ Garðabær rekur nú fimm leik- skóla og nær gæðakerfið til þeirra allra auk einkarekna leikskólans Kjarrsins sem einnig er í Garðabæ. Nánari upplýsingar veitir greinar- höfundur og Jóhanna Björk Jóns- dóttir leikskólafulltrúi, í síma 525- 8500. Garðabær semur við Hjallastefn- una ehf. um rekstur nýs leikskóla FJARMAL Orlof húsmæðra Bæjarráð Garðabæjar hefúr sam- þykkt að ganga til samninga við Hjallastefnuna ehf. um rekstur nýs leikskóla í Ásahverfi. Leikskólinn er í eigu Garðabæjar en rekstur hans var boðinn út með auglýsingu í febrúar sl. Alls bámst sex tilboð í reksturinn. Við mat á til- boðum var litið til reynslu bjóðenda og styrks, hugmynda að skólanáms- skrám og tilboðsijárhæðar. Tilgangur bæjaryfirvalda með því að bjóða út rekstur leikskólans var m.a. að auka Qölbreytni í leikskóla- starfí og telur bæjarráð stefnu og námsskrá Hjallastefnunnar góðan valkost fyrir leikskólaböm í Garð- bæ. Tilboð Hjallastefnunnar var lægst að krónutölu. Skólanámsskrá Hjallastefnunnar er ítarlega útfærð og rökstudd og m.a. er gerð grein fyrir því hvemig staðið verður að innra og ytra eftirliti og mati á starfi leikskólans. í leikskólanum í Ásahverfi verður lögð áhersla á að mæta mismunandi þörfúm bamanna með tilliti til ald- urs og kynferðis. Leikskólinn skipt- ist í fjórar deildir og þar geta verið allt að 92 böm samtímis. I leikskól- anum er gert ráð fyrir blönduðu kerfi. I annarri álmu skólans verður unnið samkvæmt hugmyndafræði Hjallastefnunnar og verður þar ein stelpudeild og ein strákadeild. I hinni álmunni verður kynjablandað en börnunum skipt á deildir eftir aldri. Þar verður þó kynjaskipt á á- kveðnum tímum i hópastarfi til að styrkja hvort kyn á eigin forsendum. Forsvarsmaður Hjallastefnunnar ehf. er Margrét Pála Ólafsdóttir. Margrét Pála er leikskólakennari og hefur 18 ára reynslu af leikskóla- stjómun auk þess að hafa starfað við kennslu og ráðgjöf á sviði leikskóla- mála. Hjallastefnan hefúr verið útfærð í nokkrum leikskólum, m.a. í Hafnar- firði, Mosfellsbæ og Reykjavík. Leikskólastjóri verður Ágústa María Amardóttir. Hún útskrifaðist frá Fósturskóla íslands 1994. Ágústa María hefur m.a. starfað sem leikskólakennari og deildar- stjóri á leikskólanum Hjalla og sem aðstoðarleikskólastjóri á Röver- kollen bamehage í Ósló. Áætlað er að verksamningur við nýjan rekstraraðila öðlist gildi 1. júní nk. og að leikskólastarf hefjist 15. júní. Sama gjaldskrá verður í nýja leikskólanum og hjá leikskól- um sem Garðabær rekur. Sveitarfélög greiða árlega íramlag til orlofs húsmæðra á hlutaðeigandi orlofssvæði og skal það innt af hendi fyrir 15. maí ár hvert. Er það samkvæmt lögum um orlof hús- mæðra nr. 53/1978 með síðari breytingum. Samkvæmt lögunum ber að greiða tiltekna fjárhæð fyrir hvern íbúa sveitarfélagsins og tekur hún breytingum eftir vísitölu neyslu- verðs eins og hún er í febrúar ár hvert. Framlagið árið 2000 var 47,71 kr. á hvem íbúa og er í ár 49,64 kr. á hvem íbúa. Framlag til umferðar- skólans Ungir vegfar- endur Framlög sveitarfélaganna til um- ferðarskólans Ungir vegfarendur var árið 2000 415 kr. á hvert bam 3 til 7 ára í sveitarfélaginu að báðum árum meðtöldum. Samkvæmt upp- lýsingum Umferðarráðs nemur framlagið í ár 432 kr. á hvert bam á aldrinum 3 til 7 ára, en gert er ráð fyrir að öll böm í þessum aldurs- flokkum njóti leiðsagnar umferðar- skólans. 1 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.