Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Page 65

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Page 65
KYNNING SVEITARSTJÓRNARMANNA Hákon Stefánsson bæjarlögmaður Akureyrarbæjar Hákon Stefánsson hefur verið ráðinn bæjarlögmaður Akureyrar- bæjar ffá 1. apríl 2000. Hann er fædd- ur 5. júlí árið 1972 og eru for- eldrar hans þau Ingibjörg As- geirsdóttir og Stefán Jónsson. Hann lauk stúdentsprófi fá Menntaskólan- um á Akureyri 1992 og embættis- prófí ffá lagadeild Háskóla Islands í febrúar 1998. Samhliða námi í lagadeild starf- aði Hákon hjá Lögmannsstofum Akureyrar ehf., bæjarlögmanni Ak- ureyrarbæjar og hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra. Að loknu laga- námi var hann fulltrúi hjá Sýslu- manninum í Hafharfírði, frá febrúar 1998 til febrúar 1999, fulltrúi hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur hf., frá mars 1999 til 1. apríl á sl. ári, er hann var ráðinn bæjarlögmaður Ak- ureyrarbæjar. Samhliða starfi sinu hefur Hákon tekið að sér kennslu í verðbréfa- miðlun á vegum Rannsóknarstofn- unar Háskólans á Akureyri. Eiginkona Hákonar er Oddný Jó- hanna Zophoníasdóttir hárskeri. Þau eiga ekki böm. Gunnar M. Sandholt félagsmálastjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar Gunnar M. Sandholt félagsráð- gjafi hefur verið ráðinn félagsmála- stjóri Sveitarfé- lagsins Skaga- fjarðar frá sl. ára- mótum. Gunnar er fæddur í Reykja- vík 12. ágúst 1949, sonur hjónanna Sigríð- ar Magnúsdóttur og Egils Th. Sandholt, sem eru bæði látin. Göngum hrelnt til verks Hjá Blindravinnustofunni færðu mikið úrval ræstiáhalda, hvort sem er fyrir skóla, fyrirtæki eða heimilið. Leyfðu okkur að aðstoða þig við að fegra umhverfið. Ruslafötur, ýmsar stærðir og gerðir. Umhverfisvænir klútar og moppur. DITVDM og FILMOP ræstivagnar í miklu úrvali. Burstar í mörgum stærðum og gerðum. BLINDRAVINNUSTOFAN Hamrahlíð 17 * Síml 525 0025

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.