Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Blaðsíða 28
MENNINGARMÁL
Menningarmál á landsbyggðinni
Gisli Sverrir Arnason, forseti bœjarstjórnar Homafjarðar
í ársbyrjun 2000 skipaði menntamálaráðherra starfs-
hóp til þess að fjalla um menningarmál á landsbyggð-
inni. Hópnum var ætlað það hlutverk að fjalla um efl-
ingu menningarlífs og á hvem hátt mætti auðvelda og
fjölga heimsóknum listamanna til einstakra byggðar-
laga. Starfshópurinn var skipaður þeim Karitas H.
Gunnarsdóttur, deildarstjóra í menntamálaráðuneytinu,
sem var formaður, Gísla Sverri Ámasyni, forseta bæjar-
stjómar Hornafjarðar, en hann var tilnefndur af Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga, og dr. Guðrúnu Helgadótt-
ur menningarráðgjafa, sem tilnefnd var af Byggðastofn-
im.
Starfshópurinn skilaði af sér áliti í skýrsluformi í
október 2000. Skýrslan hefur verið send til allra sveitar-
félaga en hana má einnig nálgast á heimasíðu mennta-
málaráðuneytisins www. mrn.stjr. is
í nefndarálitinu em settar fram tillögur um aðgerðir
sem að mati hópsins em brýnastar til eflingar menning-
arlífs á landsbyggðinni á næstu ámm. Forsendur fyrir
forgangsröðun tillagna vom effirfarandi:
Að framkvœmd tillögunnar verði til þess að efla það
menningarstarf semfyrir er.
Aö tillagan beinist að lausn á
almennt viðurkenndum vanda.
Að tillagan eða líkar tillögur
hafi komið fram frá ýmsum að-
ilum.
Að tillagan sé framkvœman-
leg í náinni framtíð.
Þá varð starfshópurinn einnig
sammála um að setja fremur
ffam fáar en vel rökstuddar til-
lögur sem leiði til árangurs.
I vinnu starfshópsins var leit-
að eftir sjónarmiðum sem
flestra varðandi það hvernig
hægt væri að efla menningarlíf
á landsbyggðinni. Sérstaklega
var óskað eftir ábendingum um
aukin atvinnutækifæri á þessu
sviði. Bæði var leitað til þeirra
sem starfa við opinberar menn-
ingarstofnanir og þeirra sem
Starfa í félagasamtökum. Tillög- Frá Humarhátíð á Hornafirði. Ljósm. Eystrahorn.
umar sem settar vom fram em því ekki eingöngu hug-
myndir starfshópsins heldur forgangsröðun og ffekari úr-
vinnsla þeirra hugmynda sem fram komu ffá þeim aðil-
um sem hópurinn hafði samráð við.
Hópurinn hélt alls 25 fundi og komu 145 manns á
fundina. Samráðsfimdir vom haldnir í Keflavík, Vest-
mannaeyjum, Selfossi, Höfn, Reyðarfirði, Akureyri,
Blönduósi, ísafirði og Reykholti i Borgarfirði.
Vinnufundir hópsins vom auk þess í Borgamesi, Svarf-
aðardal, Ölfusi, Hólum í Hjaltadal og Reykjavík. Á fundi
sína kallaði hópurinn fulltrúa ffá allmörgum samtökum
og stofnunum. Þeirra á meðal vom Bandalag íslenskra
leikfélaga, Bandalag íslenskra listamanna, Hagstofa ís-
lands, Listaháskóli Islands, Listahátíð i Reykjavík, Lista-
safn íslands, menningarsjóður félagsheimila, mennta-
málaráðuneytið, Reykjavik menningarborg Evrópu
2000, Rithöfundasamband íslands, stjórn listamanna-
launa, Tónlist fyrir alla, Verkefnisstjóm um upplýsinga-
samfélagið, Þjóðleikhúsið, Þjóðminjasafn íslands, Þjóð-
skjalasafh íslands.
Einnig var öllum sveitarstjómum í landinu sent bréf
90