Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Page 27

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Page 27
MENNINGARMÁL Menningarborgarsjóður í byrjun árs gerðu menntamála- ráðherra og borgarstjórinn í Reykja- vík með sér samkomulag um stofn- un sjóðs sem ber heitið Menningar- borgarsjóður og hefur Listahátíð í Reykjavík verið falin umsýsla hans. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að tjölbreytilegu menningarstarfl um allt land í framhaldi af menningar- borgarárinu. Uthlutað verður úr sjóðnum til eftirtalinna verkefna: a) Nýsköpunarverkefna á sviði lista. b) Menningarverkefna á vegum sveitarfélaga. c) Menningarverkefna fýrir böm og ungt fólk. Stofnframlag sjóðsins árið 2001 kernur ffá M2000, auk framlags frá ríki og borg sem árlega munu veita fé í sjóðinn. Uthlutunamefnd Menningarborg- arsjóðs til næstu tveggja ára hefur verið skipuð. í nefndinni em Karitas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneytinu, og Katrín Dóra Þorsteinsdóttir, forstöðumaður Símenntunarstofnunar Eyjafjarðar, fulltrúar menntamálaráðherra, Krist- ín A. Ámadóttir, framkvæmdastjóri þróunar- og ijölskyldusviðs Reykja- víkurborgar, og Þórhildur Þorleifs- dóttir leikstjóri, fulltrúar borgar- stjóra, og Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, skipuð af stjórn Listahátíðar í Reykjavík, og er hún formaður nefndarinnar. Kristín A. Ámadóttir er varaformaður nefhdarinnar. Úthlutunarnefnd úthlutar árlega styrkjum úr sjóðnum og verður fyrsta úthlutun í vor. Auglýst var eftir umsóknum í dagblöðum helg- ina 21.-22. apríl og er umsóknar- ffestur til 22. maí. Ennffemur er birt auglýsing frá sjóðnum annars staðar í þessu tölublaði. Gert er ráð fyrir að úthlutunar- nefndin hafi um 25 millj. kr. til ráð- stöfunar í ár. Formaður nefndarinn- ar, Þómnn Sigurðardóttir, segir að fénu verði ekki fyrirfram skipt niður milli þeirra þriggja verkefnaflokka sem tilgreindir em, enda muni vænt- anlega mörg verkefni geta fallið undir fleiri en einn flokk. Gert er ráð fyrir að veita styrki til áhuga- verðra og nýstárlegra verkefna, en ekki til reksturs, verklegra fram- kvæmda við húsnæði eða almenna ferðastyrki. Ekki er skilyrði að sveitarfélög standi að verkefhum, en kostur að viðkomandi sveitarfélög komi að þeim með einhverjum hætti, fjárstuðningi eða öðrum stuðningi. Hátíðir sem haldnar hafa verið áður eða sýningar sem halda áfram þurfa að sækja um til nýrra þátta, viðburða eða nýjunga í starf- seminni. Nánari upplýsingar um sjóðinn em veittar á skrifstofu Listahátíðar í Reykjavík. Framkvæmdastjóri hennar er Hrefna Haraldsdóttir og listrænn stjómandi Þórunn Sigurð- ardóttir. Símanúmer á skrifstofu sjóðsins er 561 2444, símbréf 562 2350 og netfang artfest@artfest.is. T rjumuiú vmiiuvcidi bæjarfélög og verktaka REYKJAVÍK: Ármúla 11 - sími 568 1500 - AKUREYRI: Lónsbakka - sími: 461 1070 - www.thor.is 89

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.