Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Page 10
SAMTALIÐ
Til vinstri: Nýja skíðalyftan í vestanverðum Tindastóli. Togbrautin getur flutt 900 manns á klukkustund úr 445 metra hæð yfir sjávar-
máli í 687 metra hæð. Mjög mikil aðsókn hefur verið á skíðasvæðið sl. vetur.
Gimli í Kanada og hefiir það samstarf verið mjög virkt.
Nú er Skagaijörður í forystu varðandi tengsl vestur um
haf og er gaman að tengja það sögunni, en Þorfinnur
karlsefni og Guðríður Þorbjarnardóttir voru landkönn-
uðir á Vínlandi áður en þau settust að í Skagafirði.“
- Nýtur liéraðið skáldanua Stefáns G. og Bólu-Hjáilmars
í sambandi við komu og viódvöl ferðafólks?
„Ég er ekki viss um að svo sé nema að litlu leyti. Hins
vegar erum við nú að vinna að menningartengdri ferða-
mennsku og höfum ráðið fræðimann í samstarfi við
Hólaskóla til þess að þróa slíkt verkefni. Þar munu
sögustaðir okkar fá mikið hlutverk og hefur sögusvið
Sturlungu verið nefnt í því sambandi. Einnig verður
minnt á ýmsar frægar persónur og þar fá höfúðskáldin
okkar einnig sinn sess. Árið 2003 verða 150 ár liðin ffá
fæðingu Stefáns G. og á ég von á því að þess verði
minnst með viðeigandi hætti. Fleiri má vissulega nefna í
þessu sambandi, eins og séra Hallgrím Pétursson. Við
erum með upplýsingamiðstöð í Varmahlíð og við ætlum
að efla þá starfsemi og auka þannig þjónustu við ferða-
menn. Einnig hefúr verið ákveðið að ráða ferðamálafúll-
trúa sem mun starfa hjá Hring hf. en það er atvinnuþró-
unarfélag Skagaijarðar.“
- Á œskuárum mínum Iteyrði ég Sauðárkrók oftast
nefndan í sambandi við tónlist og leiklist, einkum Eyþór
Stefánson er samdi Lindina og Stefán Islundi er söng
Ökuljóó. Ná skilst mér að Skagfirðingar séu mesta að-
dráttarajlið á stœrsta skemmtistaðnum i höfuðborginni,
karlakórinn Heimir, Alftagerðisbrœður og hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar. Á liljómlist sterk ítök í Skagfirð-
ingum?
„Það er engin spuming og ekki hvað síst söngurinn.
Hinn 23. janúar sl. var þess minnst að 100 ár vom frá
fæðingu Eyþórs Stefánssonar tónskálds og heiðursborg-
ara Sauðárkróksbæjar. Eyþór var ekki aðeins afkasta-
mikið tónskáld heldur tók hann mjög virkan þátt í tón-
listarlífí, lék í lúðrasveit og var organisti kirkjunnar í ára-
tugi. Hann starfaði að auki rnikið með leikfélaginu og í
ungmennafélaginu Tindastóli. Skagfirðingar búa vel að
þeim gmnni sem lagður var í menningarmálunum á ný-
liðinni öld. Karlakórinn er mjög öflugur og hlaut t.d.
góðar undirtektir á heimssýningunni í Hannover þar sem
hann söng á sl. sumri. Hljómsveit Geirmundar er sívin-
sæl og hefúr ferðast víða um land og leikið við góðar
undirtektir í þrjátíu ár um þessar mundir. Álftagerðis-
bræður em einnig mjög vinsælir og það er alveg ótrúlega
mikið að gera hjá þeim við að syngja og skemmta fólki
víðs vegar um land. Undirleikari þeirra er Stefán R.
Gíslason, en hann er einnig stjómandi Heimis, og em
störf hans mikils metin í Skagafírði."
- Hefur þú trú á að nýr vegur lir Húnaþingi um Þverár-
Jjall og vœntanleg tenging við Eyjafjörð á norðanverðum
Tröllaskaga muni auka ferðamannastraum og efia noró-
anverðan Skagafjörð?
„Nýr vegur um Þverárfjall er vissulega mikilvægur
fyrir þetta svæði og mun efalaust efla tengsl okkar við
Húnvetninga, ekki sist við Skagaströnd. Tenging við
Eyjafjörð mun einnig koma okkur til góða, þó betra væri