Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Side 16
ÝMISLEGT
Sýslumaðurinn og hreppstjórnin
í Reykjavík
Björn S. Stefánsson, dr. scient.
Það, sem nú heitir ýmist bær
(t.a.m. Snæfellsbær), hreppur (t.a.m.
Bessastaðahreppur), byggð (t.a.m.
Vesturbyggð), kaupstaður (t.a.m.
Seltjarnarneskaupstaður), þing
(Húnaþing vestra), sveit (t.a.m.
Eyjafjarðarsveit), hérað (Austur-
Hérað, Norður-Hérað), sveitarfélag
(t.a.m. Sveitarfélagið Hornafjöröur),
borg (Reykjavíkurborg) eða sveitar-
félagið borg (Sveitarfélagið Ár-
borg), hefur síðan 1986, þegar
sýslunefndir voru afnumdar, sömu
stöðu í opinberri stjórnsýslu, en
áður voru hrepparnir að nokkru á
valdi sýslunefndar. Síðan 1989 er
ekki munur á héraðssýslu ríkisins,
sem áður var ýmist í höndum sýslu-
manns eða bæjarfógeta, og þá var
einnig hætt að hafa tvö heiti á um-
boðsmönnunum. Því er nú sýslu-
maður í Reykjavík, en hafði ekki
verið lengi. Hér verður athugað,
hvernig færi á því í samræmi við
skipulagsbreytinguna 1986 að hafa
aðeins eitt heiti, hrepp. Það er ekki
síður lipurt en sýsluheitið.
Hér er um að ræða nöfn stjóm-
sýslu. Stundum er með sama orði átt
jöfnum höndum við stjórnsýsluna,
byggðarlagið eða svæðið, en borg,
bær eða hreppur fellt úr nafninu.
íbúar Reykjavíkur er þá sama sem
íbúar Reykjavíkurborgar, en menn
fara ekki á skrifstofu Reykjavíkur,
heldur á skrifstofu Reykjavíkur-
borgar. Á sama hátt er talað um íbúa
á Akranesi sem íbúa Akranesbæjar,
en þeir njóta ekki þjónustu Akra-
ness, heldur Akranesbæjar. At-
vinnustarfsemi i Hafnarfirði merkir
atvinnurekstur í umdæmi Hafnar-
fjarðarkaupstaðar, þar með talin
Krýsuvík, sem er alllangt frá bæn-
um. Á þennan hátt verður hins veg-
ar ekki talað um ísafjörð, Skaga-
fjörð né HomaQörð, eins og nafn-
giftir stjómsýslunnar hafa ráðist þar.
Hefð er að hafa orðin sveit og bær
í nafni svæðis, svo sem Mosfells-
sveit, Saurbær og Kaupangssveit,
og hefúr ekki þurft að misskilja, en
Mosfellshreppur og Saurbæjar-
hreppur er annað mál.
Það var hefð að kenna stjómsýsl-
una við staðinn, þar sem hún átti
setur, sem áður fyrr var þingstaður-
inn, svo sem Grýtubakkahreppur og
Hraungerðishreppur, eða við svæð-
ið, svo sem Fljótshlíðarhreppur og
Vopnafjarðarhreppur. Athugum,
hvemig færi að hafa hrepp alls stað-
ar í nafninu og hefðinni fylgt í nafn-
gift. Stundum á við að hafa hluta úr
ömefni i heitinu, þótt ekki sé hann
svæði né sé eða hafi verið stjómar-
setur (Patrekshreppur, Snæfells-
hreppur, Jökulsárhreppur).
Þótt allir landsmenn skipuðust
þannig í hreppa, yrði eftir sem áður
talað um borgina Reykjavík, um
bæina Seyðisfjörð og Selfoss og um
sveitirnar Fljótshlið og Bárðardal,
svo að dæmi séu tekin.
í hreppanafnaskránni hér á eftir
verður svæðið (með forsetningu)
nefnt, ef þar á annað við en hrepps-
nafnið.
Hreppanafnaskrá
Grindavíkurhreppur, nú Grindavík-
urkaupstaður. 1 Grindavík.
Keflavíkurhreppur, nú Reykjanes-
bær.
Sandgerðishreppur eða Miðnes-
hreppur, nú Sandgerðisbær. í
Sandgerði eða á Miðnesi.
Hafnarfjarðarhreppur, nú Hafnar-
fjarðarkaupstaður. I Hafharfirði.
Garðahreppur, nú Garðabær.
Kópavogshreppur, nú Kópavogs-
bær. í Kópavogi.
Reykjavíkurhreppur, nú Reykjavik-
urborg. í Reykjavík.
Seltjamameshreppur, nú Seltjamar-
neskaupstaður. Á Seltjamamesi.
Mosfellshreppur, nú Mosfellsbær. í
Mosfellssveit.
Akraneshreppur, nú Akraneskaup-
staður. Á Akranesi eða á Skaga.
Reykholtshreppur, nú Borgarfjarð-
arsveit.
Borgarneshreppur, Borgarhreppur
eða Mýrahreppur, nú Borgar-
byggð.
Snæfellshreppur, nú Snæfellsbær.
Eyrarhreppur eða Grundarfjarðar-
hreppur, nú Eyrarsveit. 1 Eyrar-
sveit.
Helgafellshreppur, nú Helgafells-
sveit. í Helgafellssveit.
Stykkishólmshreppur, nú Stykkis-
hólmsbær. I Stykkishólmi.
Dalahreppur eða Búðardalshreppur,
nú Dalabyggð.
Patrekshreppur, nú Vesturbyggð.
ísafjarðarhreppur, nú ísaljarðarbær.
Hvammstangahreppur, nú Húna-
þing vestra. í Vestur-Húnavatns-
sýslu.
Blönduóshreppur, nú Blönduósbær.
Á Blönduósi.
Sauðárkrókshreppur, nú Sveitarfé-
lagið Skagafjörður.
Siglufjarðarhreppur, nú Siglufjarð-
arkaupstaður. Á Siglufirði (um
kaupstaðinn).
Ólafsfjarðarhreppur, nú Ólafsfjarð-
arkaupstaður. I Ólafsfirði.
7 8