Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Side 21
UMHVERFISMÁL
og ungmenni taki virkan þátt í Stað-
ardagskrárstarfínu á hverjum stað,
ekki aðeins með því að hlusta á
fræðsluerindi eða taka þátt í flokkun
úrgangs, heldur einnig með því að
láta í ljósi skoðanir sínar og vænt-
ingar varðandi framtíð samfélags-
ins. Hægt er að beita ýmsum aðferð-
um til að stuðla að þessari virku
þátttöku. Til dæmis kemur til greina
að stoína sérstök umhverfísráð sem
skipuð em bömum og ungmennum
að miklu eða öllu leyti. Slík ráð geta
tekið til umíjöllunar hvaðeina sem
lýtur að framtíð samfélagsins eða
umhverfismálum líðandi stundar, en
þá er nauðsynlegt að tryggja að tek-
ið sé mið af niðurstöðunum þegar
kemur að ákvarðanatöku um mál-
efni sveitarfélagsins. Einnig er sjálf-
sagt að leita eftir þátttöku bama og
ungmenna í íbúaþingum og vinnu-
hópum sem tengjast Staðardagskrár-
starfmu. Þetta hefur þegar verið gert
i nokkmm sveitarfélögum hérlendis,
svo sem í Mosfellsbæ, Kópavogi og
á Akureyri.
Lokaorð
Þegar móta á tillögur um framtíð-
ina er nauðsynlegt að taka tillit til
sjónarmiða þeirra sem eiga að erfa
landið. Með því er ekki aðeins verið
að uppfylla ákvæði Bamasáttmála
Sameinuðu þjóðanna og Dagskrár
21, heldur er um leið verið að nýta
það hugvit sem böm og ungmenni
ráða yfir og endurspeglast í sýn
þeirra á nútímann og væntingum
þeirra um ffamtíðina.
1) Michael Keating. The Earth’s Summit’s
AGENDA FOR CHANGE. A plain language
version of Agenda 21 and the other Rio Agree-
ments. Centre for Our Common Future. Genf
1993. (Lausleg þýðing S. G).
2) Sama
3) Barnaheill.
http://www. bamaheill. is/barnasattmali ‘ ‘max. html
4) Sjá: http://www.barn.is
5) Sjá lög um umboðsmann barna nr. 83/1994.
6) Stefán Gíslason. Staðardagskrá 21 á íslandi.
Samstarfsverkefni Sambands islenskra sveitar-
félaga og umhverfisráðuaneytisins, október
1998-mars 2000. Frœðslurit 19, Samband is-
lenskra sveitarfélaga, janúar 2001.
Brúin inn í framtíðina verður ekki byggð án þess að hugvit barnanna okkar komi þar við
sögu.
Við þurfum á aðstoð barnanna okkar að halda til að opna hliðið inn í nýja öld. Vegurinn
á bak við hliðið er vegurinn þeirra. Greinarhöfundur tók myndirnar sem fylgja greininni.
VERKASKIPTING RIKIS OG SVEITARFELAGA
Samninganefnd um
yfirfærslu málefna
fatlaðra
Stjórn sambandsins hefur tilnefnt
þau Helgu Jónsdóttur borgarritara
og Karl Bjömsson, bæjarstjóra Ar-
borgar, í nefnd sem félagsmálaráð-
herra, Páll Pétursson, hefur skipað
til þess að vinna drög að samningi
milli ríkis og sveitarfélaga um flutn-
ing málefna fatlaðra frá ríki til sveit-
arfélaga.
Af hálfú ríkisins sitja í nefndinni
Sturlaugur Tómasson, deildarstjóri í
félagsmálaráðuneytinu, og Ólafur
Hjálmarsson, skrifstofústjóri í fjár-
málaráðuneytinu, og er hann for-
maður nefndarinnar.
83