Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Page 23
ERLEND SAMSKIPTI
Við íþróttamiðstöðina í Vogum. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Sigurður Jónsson, formaður SSS, Þórir Sveinsson, Ruben Svendsen,
bæjarverkfræðingur í Qaqortoq, Þóra Bragadóttir, oddviti Vatnsleysustrandarhrepps, Ole Molgárd-Motzfeldt, bæjarritari í Narsaq,
Jorn S. Christensen, bæjarritari i Qaqortoq, Henrik Lund, bæjarstjóri í Qaqortoq, og Bent Kleist, bæjarstjóri í Nanortalik. Á myndina
vantar Kim Rosendahl, framkvæmdastjóra Landshlutasamtaka Suður-Grænlands.
ehf., Tölvu- og verkfræðiþjónust-
unnar ehf. og Iðntæknistofnunar. Á
fundi með fulltrúa Norræna félags-
ins var rætt um eflingu vinabæja-
tengsla milli íslenskra og græn-
lenskra sveitarfélaga.
Dagana 28. ágúst til 4. september
1999 skipulagði Grænlandsnefndin
ráðstefnu á Akureyri með þátttöku
sjö sveitarstjómarmanna ffá þremur
sveitarfélögum á Suður-Grænlandi í
samvinnu við landshlutasamtök
þeirra. Erindi voru flutt um stjóm-
sýslu íslenskra sveitarfélaga, svæð-
isbundna uppbyggingu atvinnulífs
og þátttöku sveitarfélaga í atvinnu-
rekstri svo og var gestunum kynnt
starfsemi nokkurra stofnana Akur-
eyrarbæjar og opinberra aðila. í
Reykjavík var skipulögð heimsókn
til RARIK, Flugmálastjómar, Vega-
gerðarinnar og félagsmálaráðuneyt-
isins auk þess sem Akraneskaup-
staður var heimsóttur.
Á árinu 2000 tók nefndin á móti
tveimur hópum grænlenskra sveitar-
stjómarmanna.
Dagana 9. til 11. september var
skipulögð kynnisferð sex sveitar-
stjómarmanna frá þremur sveitarfé-
lögum á Suður-Grænlandi í sam-
vinnu við landshlutasamtök þeirra.
Fulltrúarnir voru frá Nanortalik,
Narsaq og Qaqortoq. Tilgangur
heimsóknarinnar var að kynnast
uppbyggingu og rekstri nýrra
íþróttahúsa, afla upplýsinga um
ferðamál, ffæðast um rekstur minni
sveitarfélaga og samstarf þeirra við
önnur sveitarfélög, m.a. hvað varðar
þátttöku í landshlutasamtökum. Að
auki var tilgangurinn að afla upplýs-
inga um uppbyggingu flugvalla með
erfið flugskilyrði.
Iþróttamiðstöðin Ásgarður í
Garðabæ var heimsótt. Þar var gest-
unum kynnt uppbygging og rekstur
íþróttamiðstöðvarinnar, þar sem em
íþróttahús, sundlaug og íþróttavellir
í samrekstri. Manfreð Vilhjálmsson,
arkitekt hjá Arkitektum ehf., sem
hannað hefur íþróttamannvirkin,
lýsti þeim ojg Hörður Hrafndal,
starfsmaður Ásgarðs, sýndi mann-
85