Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Side 26
ERLEND SAMSKIPTI
NBD 2001 í Helsingfors
9.-11. september
Ólafur Jensson jramkvœmdastjóri
Norrænir byggingardagar, NBD
2000 (Nordisk byggedag), voru
haldnir Malmö í Svíþjóð dagana
10.-12. septemberá sl. ári.
Meginviðfangsefnið var Eyrar-
sundsbrúin, hönnun hennar, bygg-
ing, fjármögnun og síðast en ekki
síst áhrif hennar á allt mannlíf sitt
hvorum megin við hana. Ráðstefnan
var vel sótt og vettvangsferðir mjög
vel heppnaðar. Mesta athygli vakti
erindi Göran Persson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, um hin miklu
áform Svía að byggja upp syðsta
hluta Svíþjóðar og um hið mikil-
væga hlutverk sem Svíþjóð myndi
gegna fyrir Norður-Evrópu.
Uffe Ellemann-Jensen, fyrrver-
andi utanríkisráðherra Danmerkur,
flutti einnig mjög fróðlegt erindi um
áhrif brúarinnar á samskipti allra
þjóðanna við Eystrasaltið og Norð-
urlandanna.
Næstu Norrænu byggingardagar,
NBD 2001, verða haldnir í Helsing-
fors í Finnlandi sunnudaginn 9. til
þriðjudagsins 11. september.
Helsingfors var ein af menningar-
borgum Evrópu árið 2000. Af því
tilefni var gert mikið átak m.a. til að
fegra borgina og hvers konar menn-
ingarviðburðir fóru fram í hinum
fegurstu byggingum enda eru Finn-
ar heimsffægir fyrir glæsilega bygg-
ingarlist.
Ráðstefnan verður með svipuðu
sniði og hjá okkur 1999, samanber
grein í Sveitarstjómarmálum 3. tbl.
2000, þ.e.a.s. áhugaverð fagleg er-
indi og spennandi skoðunarferðir á
helstu byggingarsvæði í Helsing-
fors, fylgst með framkvæmdum og
merkileg mannvirki skoðuð undir
leiðsögn þeirra sem koma að öllum
þáttum framkvæmda. Ennfremur
verða frægustu eldri sem yngri hús
skoðuð. Einnig standa til boða ýms-
ar ferðir um Finnland, til St Péturs-
borgar og Eystrasaltsríkjanna. Þema
ráðstefnunnar er: „Helsingfors -
staður til að mætast og tengir austur
og vestur“.
Á þessum norrænu dögum er
einnig boð til borgarstjórans í Ráð-
húsinu og hefðbundinn kvöldfagn-
aður í ráðstefnuhöllinni „Marina
Congress Centre". Þetta og margt
fleira er gert til að efla vináttu og
tengsl milli þeirra Norðurlandabúa
sem m.a. vinna við skipulag, hönn-
un, fjármögnun og framkvæmdir
mannvirkja.
Fyrirhugað er að efna til hópferð-
ar og/eða að fá hagstæð fargjöld á
ráðstefnuna.
Frekari upplýsingar veitir ritari
NBD á íslandi, Ólafur Jensson, í
símum: 561 9036 og 894 6456 -
símbréf: 561 9037 netfang:
olijens@isl.is
Næsta norræna
sveitarstjórnar-
ráðstefna í Esbo
í Finnlandi
5.-7. maí 2002
Næsta norræna sveitarstjórnarráð-
stefna verður haldin í menningar-
miðstöðinni í Esbo, útborg Helsinki,
dagana 5.-7. maí 2002.
Meginefni ráðstefnunnar verður
mönnun stofnana sveitarfélaganna,
einkum þeirra sem sinna umönnun,
s.s. leikskóla, dvalarheimila og
hjúkrunarheimila aldraðra. Rætt
verður m.a. hvemig unnt sé að gera
þessar stofnanir meira aðlaðandi
sem vinnustaði. í þeim efnum er
m.a. horft til ungs fólks, þeirra sem
látið hafa af starfi sökum aldurs og
erlends vinnuafls og aðlögun þess
að aðstæðum í nýju landi. Hvar-
vetna á Norðurlöndum virðist
mönnun þessara stofnana vera eitt
brýnasta verkefni sveitarfélaga að
mati undirbúningsnefndar ráðstefn-
unnar.
í tengslum við þetta meginþema
verðu rætt hvemig nota má framfar-
ir í upplýsingatækni við lausn á
þessu verkefni og kynnt hvernig
sveitarfélagið Esbo ber sig að í þeim
efnum. Einnig standa vonir til að
kynnt verði reynsla danskra sveitar-
félaga sem nú gera tilraunir á þessu
sviði.
Norræna sveitarstjómarráðstefnan
er haldin annað hvert ár. Hún verður
árið 2004 haldin hér á landi.
88