Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Blaðsíða 29
MENNINGARMAL
þar sem óskað var svars við eftir-
farandi spurningu: Hvað er að
ykkar áliti brýnast að gera til að
efla menningarstarf á lands-
byggðinni? Svör bárust frá 23
sveitarfélögum.
Frá hátíðinni LungA — Listahátíð ungs fólks, Austurlandi, sem stendur yfir lungann úr júlí á
Seyðisfirði. Ljósm. Magnús Reynir Jónsson.
Hér á eftir verður getið nokk-
urra tillagna úr skýrslu nefndar-
innar. Sérstaklega þeirra er
snerta sveitarfélög á einn eða
annan hátt enda eru menningar-
mál meðal lögbundinna verkefna
sveitarfélaga. Beinar tillögur sem
teknar eru úr skýrslunni eru
skáletraðar hér til aðgreiningar
frá öðrum texta. Áhugasömum
um frekara innihald skýrslunnar
er bent á að nálgast hana í heild
sinni.
Samstarfshópurinn vann til-
lögur í fjórum meginmálaflokk-
um. Þeir báru yfirskriftina:
Stefnumótun, Aðstaða, Sjóðir og
styrkir og Fjölgun starfa. í við-
aukum í skýrslunni eru svo dreg-
in ffarn flest atriði sem komu til
umræðu á fúndum nefhdarinnar.
Þar kemur meðal annars ffarn að
samstarf er viða mjög lítið innan
hvers landshluta og mætti víða
styrkja menningarstarf með því
að auka það. Þá var víða bent á
að erfiðar samgöngur væru
helsta hindrun þess að fólk á
stærra svæði ynni betur saman
og gæti notið góðs af menning-
arstarfi hinna.
1. Stefnumótun
Að mati starfshópsins er gerð langtímaáætlana meðal
brýnustu verkefna á sviði menningarmála. Forsenda fyr-
ir markvissu starfi er að skýr stefna sé til staðar og næg-
ar upplýsingar um starfsemina liggi fyrir. Einungis á
grundvelli stefnumörkunar er hægt að gera raunhæfar
áætlanir og leggja grundvöll að traustri fjármögnun, það
er: eflingu menningarstarfs til lengri tíma.
Skorað er á þau sveitarfélög sem ekki hafa þegar kos-
ið sérstakar menningarmálanejhdir að gera svo og fela
þeim að móta menningarstefnu.
A grundvelli menningarstefnu verði Jjárhagsgrunnur
menningarstarfs i viðkomandi sveitarfélagi tryggður,
meðal annars með samningi við menntamálaráðuneyti.
Lagt er til aó menntamálaráðuneytið, Samband ís-
lenskra sveitarfélaga og Byggðastofnun standi fyrir ráð-
stefnu vorið 2001 um stefnumörkun í menningarmálum á
landsbyggðinni.
Samningar um menningarmál
Menntamálaráðuneytið hefúr lýst yfír vilja til að gera
samninga við sveitarfélög um menningarmál. Samningar
af þessu tagi eru ákjósanleg leið i stefnumörkun og fjár-
mögnun menningarstarfs til lengri tíma litið og skapa þá
festu sem víða skortir til að menningarstarfið nái að efl-
ast.
Hvatt er til þess að sem flest sveitarfélög hefji undir-
búning að gerð samninga um menningarmál við mennta-
málaráðuneyti. Þar sem því verði við komið sameinist
sveitarfélög um einn samning.
Þjóðmenningarstofnanir
Á fúndum nefndarinnar kom víða fram áhugi á frekara
samstarfi þjóðmenningarstofnana og landsbyggðar. Þess-