Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Qupperneq 37
MENNINGARMÁL
Veitingasala og fundarað-
staða
Gunnarsstofnun leigir út aðstöðu
til veitingareksturs að Skriðu-
klaustri. Klausturkaffi ehf. heitir
fyrirtæki sem nú annast greiðasöl-
una. Hægt er að taka á móti allt að
50 manns í einu í mat eða kaffi.
Veitingastofan er yfir sumartímann
opin á sama tíma og húsið en einnig
geta hópar pantað þjónustu utan
þess tíma. í vetur hefíir veitingastof-
an verið opin í tengslum við við-
burði í húsinu en jafnframt hafa
nokkrar veislur verið haldnar. Lítil
fundarstofa fyrir allt að 10 manns er
leigð út af Gunnarsstofnun og liður í
því að afla stofnuninni sértekna.
Einnig er hægt að fá leigða aðstöðu
í stærri stofum ef þörf krefur. Stefht
er að því að húsið verði búið góðum
tæknibúnaði til hvers kyns funda,
fyrirlestra og námskeiða áður en
langt um líður. Skriðuklaustur er
einstakur staður fyrir slikar sam-
komur þó að ekki sé seld gisting í
húsi skáldsins.
Fjármögnun
Gunnarsstofhun fær 7,1 millj. kr.
rekstrarfé á fjárlögum 2001 auk 3
millj. kr. til kaupa á innanstokks-
munum. Gert er ráð fyrir að stofn-
Klausturkaffi rekur veitingasölu í gömlu borðstofunni.
unin afli sjálf tekna til stórs hluta af
starfseminni. Stofnunin nýtur sér-
tekna af aðgangseyri og útleigu
veitingaaðstöðu, auk þess fær hún
leigutekjur af Skriðuklaustursjörð-
inni. Unnið er að öflun styrktaraðila
sem vilja gerast bakhjarlar
Skriðuklausturs. Á síðasta ári var
undirritað samkomulag við Lands-
virkjun sem kveður á um 15 millj.
kr. framlag á næstu fimm árum til
skipulagningar og ræktunar á þeim
15 ha. sem Gunnarsstofnun helhr til
umráða að Skriðuklaustri. Þá hefur
BM-Vallá einnig komið inn sem
bakhjarl vegna lóðarframkvæmd-
anna sem hefjast munu í vor. Vonir
standa til að fleiri bakhjarlar bætist
fljótlega í hópinn enda ljóst að um-
talsvert fé þarf til að ná settu marki
við uppbyggingu Gunnarsstofnunar
að Skriðuklaustri og halda úti virku
menningarstarfi á vegum hennar.
Frá tónleikum í stássstofunni sumarið 2000. Greinarhöfundar tók myndirnar sem ekki
eru öðrum merktar.
Gunnarsstofnun og Austur-
land
Gunnarsstofnun er ríkisrekin
menningarstofnun sem heyrir undir
menntamálaráðuneytið en er stað-
sett á Austurlandi og á að sinna
fjórðungnum öllum samkvæmt því
sem segir í reglum um hana. Stjóm
stofnunarinnar er að meirihluta
skipuð heimamönnum og í henni
eiga nú sæti Helgi Gislason formað-
ur, skipaður af ráðherra, Sigríður
Sigmundsdóttir, tilnefnd af At-
vinnuþróunarfélagi Austurlands,
Hrafnkell A. Jónsson, tilnefndur af
Safnastofnun Austurlands, Stefán
Snæbjömsson, skipaður án tilnefn-
ingar, og Gunnar Björn Gunnars-
son, skipaður án tilnefningar.
Það eitt að byggja upp sterkt
99