Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Síða 40
MENNINGARMÁL
0
MGNNINGARBORGARSJOÐUR
LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK
MENNINGARBORGARSJÓÐUR AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM
Menntamálaráóherra og borgarstjórinn í Reykjavík hafa
stofnað sérstakan sjóð, sem ber heitið Menningar-
borgarsjóður, og falið Listahátíð í Reykjavík umsýslu
hans. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að fjölbreytilegu
menningarstarfi um allt land í framhaldi af menningar-
borgarárinu.
Stofnframlag sjóósins árið 2001 kemur frá M2000, auk framlags
frá ríki og borg sem árlega munu veita fé til hans.
Gert er ráó fyrir að úthlutað veröi árlega úr sjóönum og verður
fyrsta úthlutun fyrir miðjan júní 2001.
Fimm manna úthlutunarnefnd er skipuð tveimur fulltrúum
menntamálaráóherra og tveimur fulltrúum borgarstjórans í
Reykjavík auk formanns sem stjórn Listahátíðar í Reykjavík
skipar.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið
2001.
Auglýst er eftir umsóknum til:
• Nýsköpunarverkefna á sviði lista
• Menningarverkefna á vegum sveitarfélaga á landsbyggðinni
• Menningarverkefna fyrir börn og ungt fólk
Umsóknum skal fylgja greinargóð lýsing á verkefninu,
verkáætlun, tímaáætlun, upplýsingar um aóstandendur
verkefnisins og ítarleg fjárhagsáætlun.
• Umsóknarfrestur er til 22. maí 2001 og verður öllum
umsóknum svaraó.
• Umsóknir skal senda til Listahátíðar í Reykjavík,
pósthólf 88,121 Reykjavík, merktar Menningarborgarsjóóur.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Listahátíðar í Reykjavík, Lækjargötu 6b, 101 Reykjavík,
sími 561 2444, fax 562 2350, www.listahatid.is
Samningur milli
menntamálaráðuneyt-
isins og allra sveitarfé-
laganna á Austurlandi
um menningarmál
Stefnt er að undirritun samnings
milli menntamálaráðuneytisins fyrir
hönd ríkisins og allra 16 sveitarfélag-
anna á Austurlandi í tengslum við
ráðstefnuna „Menningarlandið -
stefnumótun í menningarmálum á
landsbyggðinni" á Seyðisfirði dagana
14. og 15. maí 2001. Samningurinn er
til þriggja ára.
Tilgangur samningsins er að efla
og styrkja menningarstarf á Austur-
landi með því að beina stuðningi ríkis
og sveitarfélaga við slíkt starf í einn
farveg og auka um leið áhrif sveitar-
félaganna á forgangsröðun verkefha.
Samhliða samningi ríkisins og
sveitarfélaganna er gert ráð fyrir því
að sveitarfélögin undirriti samstarfs-
samning sín á milli þar sem gerð
verði nánari grein fyrir skipan menn-
ingarmála á Austurlandi. Meðal ann-
ars er gert ráð fyrir því að fjórðungn-
um verði skipt í þijú samstarfssvæði
en sérstakt menningarráð hafi umsjón
með framkvæmd samningsins. Menn-
ingarráðið mun síðan starfa í nánu
samstarfi við Gunnarsstofhun. Gert er
ráð fyrir fjórum sérhæfðum menning-
armiðstöðvum á Austurlandi, en þær
eru á Seyðisfirði, Austur-Héraði,
Fjarðabyggð og í Homafirði. Samn-
ingur þessi er sá fyrsti sinnar tegund-
ar sem ríkið gerir við heilan lands-
fjórðung um eflingu menningar um
landsbyggðina. Samningar þessir
koma í framhaldi af stefnumótunar-
vinnu í menningarmálum sem unnin
var á síðasta ári og flest sveitarfélag-
anna hafa nú samþykkt. Að undirbún-
ingi stefnunnar hafa komið fulltrúar
ffá sveitarfélögum á Austurlandi, en
verkefnisstjómina við samningsgerð-
ina hafa skipað Þorvaldur Jóhanns-
son, framkvæmdastjóri SSA, Óðinn
Gunnar Óðinsson, frá Þróunarstofu
Austurlands, og Karitas Gunnarsdótt-
ir, frá menntamálaráðuneytinu.
1 02