Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Page 50
STJÓRNSÝSLA
Frá undirritun samstarfssamnings við lögregluna 12. maí 2000. Á myndinni eru, talið frá
vinstri, Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, Ingimundur Einarsson varalögreglu-
stjóri, Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir borgar-
fulltrúi og Regína Ásvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Miðgarðs.
Félagsleg ráðgjöf, náms- og
starfsráðgjöf við ungt fólk sem hef-
ur ekki lokið námi og íbúa sem hafa
verið lengi án atvinnu. Mat á urn-
sóknum og afgreiðsla Qárhagsað-
stoðar og húsaleigubóta, mat og
greining á umsóknum um leigu-
íbúðir, liðveisla við fatlaða, umsjón
með heimsendingu matar fyrir eldri
borgara, heimaþjónusta.
Sálfræðileg athugun og greining á
bömum og ráðgjöf við skólastjóm-
endur, kennara, foreldra og börn.
Mat á umsóknum urn forgang á
leikskóla. Eftirlit með starfsemi
leikskóla og sérkennsla fyrir böm á
leikskólum.
Umsjón með gæsluvöllum, mat á
umsóknuin um daggæslu í heima-
húsum og eftirlit með starfseminni,
upplýsingar og miðlun vistunar-
plássa hjá dagmæðrum, endur-
greiðsla til foreldra og innritun á
leikskóla.
Auk ofantalins hefur Miðgarður
unnið að fjölmörgum verkefnum,
m.a. að stofnun og stuðningi við fé-
lagsskap eldri borgara, Korpúlfana,
haldið starfsþjálfunamámskeið fyrir
konur, Valkyrjurnar, sem höfðu
verið lengi atvinnulausar og treystu
sér ekki út á vinnumarkaðinn, unnið
með vinahópum einangraðra ungl-
inga og klúbbi ungra mæðra í sam-
vinnu við Gufúnesbæ auk forvama-
og menningarverkefna sem nánar
verður getið um síðar í greininni.
Loks má geta þess að Miðgarður
vinnur að innleiðingu svokallaðrar
uppbyggingarstefnu í Grafarvogi.
Vinna í anda stefnunnar hefúr þann
tilgang að styrkja sjálfsmynd bama
og unglinga í Grafarvogi og hæfni
til að velja og hafna samkvæmt eig-
in gildismati. Sérfræðingar Mið-
garðs hafa sótt ffæðslu og verklega
þjálfun í aðferðafræðinni og stefnt
er að því að bjóða öllum lykilaðilum
í uppeldi bama og unglinga fræðslu
á næstu ámm.
4. Markmíðin þrjú
Þrjú meginmarkmið voru sett
með stofnun Miðgarðs í upphafi og
verður hér á eftir fjallað um hvemig
miðstöðin hefúr unnið að þeim.
• Bæta og hagræða þjónustu við
íbúa Grafarvogs með samræm-
ingu á opinberri þjónustu i hverf-
inu.
Þetta markmið á rætur sínar að
rekja til þess að velferðarkerfi á
Vesturlöndum hafa vaxið mjög hratt
með auknum kostnaði og í takt við
þessa þróun hefur sérhæfmg aukist
með tilheyrandi þörf á samræmingu
i málefnum sem snerta.einstaklinga
og fjölskyldur. Þegar stofnanir
verða mjög sérhæfðar myndast
gjaman svokölluð grá svæði í kerf-
inu og hætta er á að enginn sé að
sinna tilteknum verkefnum sem
leiðir til þess að þjónusta, sama
hversu fagleg og góð hún annars er,
hitti síður í mark.
Þverfagleg teymi
Þverfagleg teymi sem em svæðis-
bundin em rauði þráðurinn í starf-
semi Miðgarðs. I teymunum starfa
saman fagaðilar sem vinna við sál-
fræðiþjónustu við leik- og grunn-
skóla, við barnavernd, félagslega
ráðgjöf, sérkennslu á leikskólum og
ráðgjöf við stjórnendur leikskól-
anna. Einnig em aðrir fagaðilar boð-
aðir á fundi ef þörf er á, til dæmis
forvamarfúlltrúi, umsjónaraðili með
heimaþjónustu eða daggæsluráð-
gjafi.
Forsenda þessarar skipulagningar
er að ýtmsm varkámi sé gætt gagn-
vart þeirn sem leita eftir þjónustu í
Miðgarð og þeir samþykki að mál-
efni þeirra séu rædd í teymum.
Tölvu- og upplýsingakerfí Miðgarðs
hefúr verið hannað þannig að starfs-
fólk kemst ekki á milli svæða í leit
að persónuupplýsingum, upplýst
samþykki er meginstefna Miðgarðs
og í langflestum tilvikum er það
auðsótt mál.
Önnur mikilvæg forsenda er að
verksvið starfsmanna séu skýr
þannig að allir séu ekki í öllu heldur
að ólík fagþekking og reynsla nýtist
til að dýpka umræður og finna nýja
fleti á viðfangsefnum. Með þessu
móti upplifir fólk að það fái heild-
stæða þjónusm og fagfólk þarf ekki
að eyða óþarfa tíma í hringingar á
rnilli stofnana eftir leit að upplýs-
ingum eða sækja fúndi úti í bæ til að
samræma starfshætti.
Margar leiðir hafa verið famar til
að ná fram markmiðum um vel
starfhæf teymi í Miðgarði. Svoköll-
1 1 2