Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Síða 55
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
Frá fundinum i Ýdölum. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Jónas Jónasson, Héðinshöfða, hreppsnefndarmaður í Tjörneshreppi, Árni
Þorbergsson, Brúnahlíð, hreppsnefndarmaður í Aðaldaelahreppi, Sveinn Egilsson, Sandhólum, hreppsnefndarmaður í Tjörneshreppi,
Hermann Sigurðarson, Hraunkoti, hreppsnefndarmaður í Aðaldælahreppi, Leifur Hallgrímsson, Vogum, oddviti Skútustaðahrepps,
Kolbrún Úlfsdóttir, Rauðuskriðu, hreppsnefndarmaður í Aðaldælahreppi, Kristján Kárason, Ketilsstöðum, oddviti Tjörneshrepps, Guð-
rún María Valgeirsdóttir, Reykjahlíð I, hreppsnefndarmaður í Skútustaðahreppi, Dagur Jóhannesson, Haga, oddviti Aðaldælahrepps,
og Sigbjörn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps.
Frá fundinum. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Jón Ásberg Salómonsson, Kristján Ás-
geirsson, Tryggvi Jóhannsson, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir og Gunnar Bóasson, öll
bæjarfulltrúar á Húsavík. Myndirnar með greininni tók Birkir Fanndal.
hægt að takast á við þær aðstæður
sem áhrif hafa á búsetuskilyrði íbú-
anna. Óbreytt skipan bíður upp á
þrönga hagsmunagæslu á afmörk-
uðum svæðum sem þó eru hvert um
sig rneira háð þróun heilla héraða
eða jafnvel landshluta heldur en því
hvað gerist innan marka hvers ein-
staks sveitarfélags. Krafan um jafna
og aukna þjónustu, bæði frá hendi
löggjafans og íbúa, kallar á stærri
og burðugri stjórnsýslueiningar.
Aukin verkefni gera störf sveitar-
stjórnarmanna, bæði kjörinna full-
trúa og embættismanna, meira krefj-
andi. Líklegra verður að telja að
fjölmennari sveitarfélög frekar en
þau fámennu geti tekist á við kröf-
una um þekkingu kjörinna fúlltrúa á
ólíkum málaflokkum og aukið
vinnuframlag þeirra ásamt þörf fyrir
sérmenntað starfsfólk á ýmsum
sviðum.
1 1 7