Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Síða 58

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Síða 58
FJÁRMÁL Endurmat á kostnaði og fjárþörf við framkvæmd grunnskólalaganna í samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna frá 4. mars 1996 um flutning grunnskólans frá riki til sveitarfélaga var í 12. gr. ákvæði þess efnis að fyrir 1. ágúst 2000 yrði endurmetinn í ljósi reynslunnar kostnaður og tekjuþörf sveitarfélaganna við framkvæmd grunnskólalaganna. Sex manna starfshópi sem menntamálaráðherra skipaði var falið að annast þetta mat. Af hálfú sambandsins voru í hópnum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður þess, og Sigrún Magnúsdóttir, formaður fræðsluráðs Reykja- víkur. Jafnhliða réð sambandið Ólaf Darra Andrason, fyrrverandi forstöðumann rekstrarsviðs á Fræðslumið- stöð Reykjavíkur, til að meta kostnað sveitarfélaganna við flutninginn. Ólafur Darri gerði grein fyrir niðurstöðum sínum á 58. fúndi fulltríiaráðs sambandsins sem haldinn var í Reyk- holti 30. og 31. mars 2000. Einnig kynnti hann þær í grein í 3. tbl. Sveitarstjómarmála á sl. ári. Helstu niðurstöður Ólafs Darra voru þær að kostnaður við þau verkefni sem sveitarfélögin tóku við frá ríkinu hafi að jafnaði verið tæplega 6% umfram tilsvarandi tekjur en að sá kostnaður væri innan þess tekjuramma sem ríki og sveitarfélög sömdu um á árinu 1996. Ennfremur flutti Sigrún Magnúsdóttir framsöguræðu unr málið á fundinum í Reykholti. í ályktun fúlltrúaráðsfundarins í Reykholti, sem birt var í 4. tbl. Sveitarstjómarmála 2000, var lögð áhersla á að sveitarfélögin fengju að fullu bættan þann kostnað sem kynni að hafa orðið umfram tekjur vegna verkefna sem þau tóku við af ríkinu við yfirfærslu grunnskólans og að endurskoðuninni yrði lokið fyrir tilsettan tíma svo tími gæfist til að endurskoða tekjustofna sveitar- félaga í samræmi við niðurstöðu hennar. Á fjármálaráðstefnu sambandsins, sem haldin var 2. og 3. nóvember sl., kynntu þau Sigrún Magnúsdóttir og Ólafur Darri Andrason rækilega sjónannið sveitarfélag- anna varðandi kostnað og tekjur sveitarfélaganna vegna yfirfærslu gmnnskólans. Af hálfu ríkisins voru gerðar tilteknar athugasemdir við niðurstöður Ólafs Darra. Hinn 12. október 2000 var samið við fyrirtækið KPMG Endurskoðun hf. að það kannaði áðurgreind gögn og einkum hvort þeir tekjustofnar sem færðir vom frá ríki til sveitarfélaga við yfirfærslu þess hluta gmnn- skólans, senr áður hafði verið á ábyrgð ríkisins, hefðu verið nægjanlegir. Niðurstöður KPMG Endurskoðunar hf. vom kynntar á 59. fúndi fúlltrúaráðs sambandsins, sem haldinn var hinn 24. nóvember sl. Þær vom á þá leið að heildarkostnaður af rekstri gmnnskólans, bæði vegna þeirra verkefna sem sveitarfélögin önnuðust fyrir ágúst 1996 og þeirra verk- efna sem þá fluttust frá ríki til sveitarfélaga, hafi farið um 300 millj. kr. fram úr tekjurn á árunum 1996 til 1999. Fyrri hluta tímabilsins hefðu tekjur verið meiri en gjöld en á árinu 1999 hefðu gjöld umfram tekjur numið yfir 600 millj. kr. Samstarfshópurinn sem falið hafði verið endunnatið lauk störfum með bréfi til menntamálaráðherra 12. des- ember. Fulltrúar sambandsins í hópnum, þau Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Sigrún Magnúsdóttir, gerðu sérstaka bókun sem fylgdi skilabréfinu til ráðherra. Bókun þeirra fer hér á eftir: „Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga í nefnd- inni telja að skýrsla KPMG, „Flutningur á rekstri gmnn- skólans frá ríki til sveitarfélaga“, dags. í nóvember 2000, sé vel unnin og gefi glögga mynd af þróun útgjalda og tekna sveitarfélaga vegna yfirtekinna grunnskólaverk- efna á árunum 1996 til og með árinu 1999. í framhaldi þess að starfshópurinn lýkur störfum leggjum við til að nú þegar verði skipuð samninganefnd með tveimur fúlltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga og tveimur fulltrúum ríkisins. Samninganefndin yfirfari nánar eftirtalin atriði og geri tillögur um meðferð þeirra og hvemig sveitarfélögunum verði bættur kostnaður um- fram tekjur í samræmi við ákvæði samningsins frá 1996 um endunnat í ljósi reynslunnar. í skýrslu KPMG kemur fram að árleg útgjöld umfram tekjur nema 625 millj. kr. á árinu 1999. Sá mismunur er fyrst og fremst til korninn vegna almennrar launaþróunar í landinu. Frá janúar 1997 til desember 1999 hækkuðu meðal-heildannánaðarlaun sem hér segir: BHM 25,77% Þar af hjúkrunarfræðinga 41,69% Þar af framhaldsskólakennara 15,48% Grunnskólakennara í Rvík 22,08% Launavísitalan hækkaði um 23,66% 1 20

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.