Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Page 59

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Page 59
FJÁRMÁL Fullyrt er að laun grunnskólakennara hefðu þróast með hliðstæðum hætti og gerst hefur á þessu tímabili þótt ríkið hefði verið áfram þeirra viðsemjandi. í skýrslu K.PMG, bls. 6, síðasta málsgr., kemur ffam að ákveðinn vandi er að rneta kostnað við þau grunn- skólaverkefni sem sveitarfélögin höfðu með höndum fyrir yfirfærslu alls reksturs grunnskólans. 1. Ný aðalnámsskrá var gefín út af menntamálaráðherra á árinu 1999. Sá kostnaðarauki sem aðalnámsskránni fýlgir er ekki nema að litlu leyti kominn fram og ekki lagt á hann mat í skýrslu KPMG. 2. Menntamálaráðuneytið hefur fellt nokkra úrskurði sem aukið hafa kostnað við ffamkvæmd grunnskóla- laga, þ.e. ijölgun kennslustunda og kennsludaga, sem ekki var reiknað með þegar samningurinn um yfir- færsluna var gerður 1996. Ekki er lagt mat á þann kostnað í skýrslu KPMG enda kemur hann fyrst og fremst fram á árinu 2000. 3. I samningnum um yfirfærsluna frá árinu 1996 er ákvæði þess efnis að ríkið greiði 265 millj. kr. árlega í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga á árunum 1997 til 2001 til að tryggja áform lagasetningar um einsetningu grunnskólans og var sú fjárhæð byggð á kostnaðar- mati sem þá lá fyrir. Miðað við sömu forsendur og nýjar upplýsingar frá jöfnunarsjóðnum um kostnað sveitarfelaga vegna einsetningar grunnskólans þarf ríkið að leggja til 300 millj. kr. framlag á árinu 2002. 4. í tengslum við yfirfærslu grunnskólans var sett ákvæði í grunnskólalög nr. 66/1995 um yfirfærslu eignarhluta ríkisins í grunnskólahúsnæði í 15 jöfnum áfongum frá þeim tíma. Sveitarfélögin hafa óskað eft- ir að þessari eignarhlutatilfærslu grunnskólahúsnæð- isins frá ríki til sveitarfélaga verði flýtt. 5. Mikil aukning nemenda er fýrirsjáanleg í grunnskól- um eða úr 42000 nemendum 1996 í rúmlega 44000 nemendur á árinu 2002. A sama tímabili fjölgar ný- búum á grunnskólaaldri verulega. Þegar samningur- inn um yfirfærslu grunnskólans var gerður 1996 var ekki tekið tillit til þessarar aukningar í kostnaðarút- reikningi. Ljóst er að þessi þróun hefúr haff í för með sér töluverða kostnaðaraukningu fýrir sveitarfélögin. 6. Sveitarfélögin hafa sett verulega aukið fjármagn í stjómun grunnskólanna frá því samningurinn um yf- irfærsluna var gerður 1996. Ástæður þess era m.a. íjölgun fatlaðra nemenda, mikil Qölgun nýbúa og kröflir um aukin samskipti við foreldra." Eins og fram kemur í upphafi bókunarinnar lögðu fúlltrúar sambandsins til að skipuð yrði samninganefhd tveggja fúlltrúa sambandsins og tveggja fulltrúa ríkisins. Útiljós og flóðlýsingar í meira en 30 ár hefur BEGA orðið fyrir valinu hér á Islandi þegar saman hefur átt að fara... • Klassísk hönnun • Vönduð framleiðsla Varanleg ending Nokkur dæmi um BEGA lýsingar: Blönduóskirkja, Hringtorg á Selfossi, Hæstiréttur, Ingólfstorg, Kópavogskirkja, Landsbókasafn Islands - Háskólabókasafn, Listasafn Islands, Lýðveldisgarðurinn, Menntaskólinn í Reykjavík, Ráðhúsið og Stjórnarráðið. ÍSKRAFT RAFIÐNAOARVERSLUN Smiöjuvegi 5, Kópavogi Sími 535 1200. Fax 535 1201 1 2 1

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.