Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Qupperneq 12

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Qupperneq 12
/ Vistvæn byggingarstarfsemi Bæta þarf orkunýtingu á notkunartíma bygginga Björn Marteinson, arkitekt og verkfræðingur, segir að sé vilji til þess að minnka orkunotkun í tengslum við byggingar eða færa hana að lágmarki eigi að leggja áherslu á að bæta orku- nýtingu á notkunartíma bygginga fremur en að leggja of mikla áherslu á að lágmarka óendur- nýjanlega orku í byggingunni sjálfri. Vistvæn byggingarstarfsemi - frá skipulagi til niðurrifs, er heiti ráðstefnu sem haldin var fyrir skömmu að frumkvæði umhverfis- ráðuneytisins en í samstarfi við ýmsa, þar á meðal Samband ís- lenskra sveitarfélaga og Staðardagskrá 21. Á ráðstefnunni var fjallað um hugtakið „vistvænn byggingariðnaður" og stöðu bygg- ingariðnaðar hér á landi í Ijósi sjálfbærrar þróunar. Ráðstefn- unni er ætlað að koma um- ræðu um þessi mál af stað hér á landi og verða hvatning til þeirra sem starfa í byggingar- iðnaði. Erum á eftir Á ráðstefnunni var fjallað um ferli byggingarframkvæmda, allt frá skipulagi og hönnun til niðurrifs þegar byggingar þjóna ekki lengur hlutverki sínu og til- gangi. Að dómi fagmanna í byggingariðnaði eru íslendingar á eft- ir öðrum þjóðum Evrópu hvað vistvænar byggingaraðferðir varð- ar, jafnvel svo nemur heilum áratug. Fjallað var um hvernig haga þurfi samstarfi hönnuða og þeirra sem byggja og einnig hvaða hlutverki hið opinbera þarf að gegna. Þessi mál snerta sveitarfé- lögin að því leyti að þau fara með skipu- lagsmál og annast einnig starfsemi lög- bundinna byggingarfulItrúa, sem sjá um að við byggingarframkvæmdir sé unnið sam- kvæmt ýtrustu kröfum og reglum. Um 150 þúsund tonn af byggingarúrgangi Undanfari þessarar ráðstefnu er meðal ann- ars verkefni um hvað gera eigi við bygging- arúrgang en það verkefni var unnið á veg- um Rannsóknastofnunar byggingariðnaðar- ins og Ergo-ráðgjafastofu í samvinnu við umhverfisráðuneytið og fleiri. Niðurstöður þessa verkefnis voru kynntar á ráðstefn- unni. í máli Eddi Lilju Sveinsdóttur, deildar- stjóra hjá Rannsóknastofnun byggingariðn- aðarins kom fram að um 150 þúsund tonn af byggingarúrgangi fellur til árlega hér á landi. Hátt í aðra milljón rúmmetra af jarð- vegi er árlega hent á jarðvegstippa og í fyllingar á höfuðborgar- svæðinu einu saman. Hér á landi er magn byggingarúrgangs á hvern íbúa um 600 kg og er það nokkuð meira en meðaltals- magn í Evrópulöndum, sem er um 480 kg á hvern íbúa. Úrgangur - hráefni á villigötum Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra sagði meðal annars í ávarpi við upphaf ráðstefnunnar að í nýrri stefnumörkun stjórnvalda um sjálfbæra þróun, sem ber heitið „Velferð til framtíðar", sé bætt meðferð byggingarúrgangs nefnd sem eitt af forgangsverkefnum á þessu sviði hér á landi. Nú fer um 97% slíks úrgangs í upp- fyllingar og jarðvegshauga og sagði Siv að fullvíst megi telja að hægt sé að endurnýta stór- an hluta hans á hagkvæman hátt, enda stundum sagt að úr- gangur sé einungis hráefni á villigötum. Þess má geta að í Evrópu er endurnýting bygg- ingarúrgangs talin vera um 30% auk þess sem gjald er oftasttekið af jarðvegslosun gangstætt því sem gert er hér á landi. Allt að 50% orkunotkunar tengist byggingum Einn af fyrirlesurum á ráðstefnunni var Ronald Rovers frá Hollandi en hann er ritstjóri alþjóðlegs tímarits um sjálfbær bygg- ingarefni. Björn Marteinsson, arkitekt og verkfræðingur, færði síðan hugmyndir Rovers í íslenskan veruleika með áherslu á efnis- og orkunotkun f byggingariðnaði. Hér á eftir verður sagt nokkuð frá erindi Björns. Björn benti á að mannvirki og mann- virkjagerð væru stærstu spor sem hver kyn- slóð skilur eftir sig. Hann sagði frá því að talið er að um 40% af allri auðlindanotkun Evrópusambandsríkjanna tengist byggingum og rekstri mannvirkja auk þess sem umtals- verð orkunotkun tengist einnig mannvirkj- um og mannvirkjagerð. Á Englandi er talið að um 10% af allri orkunotkun tengist fram- leiðslu byggingarefna og flutningi þeirra en orkunotkun vegna rekstrar bygginga sé meira en 50% allrar orkunotkunar. í Dan- mörku er talið að um 5% orkunotkunar fari til framleiðslu og flutnings byggingarefna en um þriðjungur til húshitunar. í Evrópu er talið að 30% heildarorkunotkunar tengist beinni notkun orku í byggingum og ef óbein notkun er talin með þá hækki þetta hlut- fall í um 50%. Siv Friðleifsdóttir vakti athygli á að nú fari um 97% byggingaúrgangs í uppfyllingar og jarðvegs- hauga, en fullvíst megi telja að hægt sé að endur- nýta stóran hluta hans á hagkvæman hátt, enda stundum sagt að úrgangur sé einungis hráefni á villigötum. Björn Marteinsson, arkitekt og byggingarverkfræö- ingur, flytur erindi sitt á ráöstefnunni. 12

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.