Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Side 19
Ungmennaráðum komið á fót
Æskulýðsmál eru snar þáttur í starfi fþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar. ÍTR annast
skipulagningu æskulýðsstarfs í öllum hverfum borgarinnar þar sem miðstöðvar þess eru kjarnar
barna- og ungmennastarfsins. Nýmæli í starfi ÍTR eru sérstök ungmennaráð í hverfum borgar-
innar sem síðan eru aðilar að Reykjavíkurráði ungmenna.
íþrótta- og tómstundaráð Reykjavfk-
urborgar mun á þessu ári hefja und-
irbúning að stefnumörkun til lengri
tíma varðandi uppbyggingu íþrótta-
og æskulýðsstarfs f borginni. Við þá
vinnu verður einkum horft til breyt-
inga er átt hafa sér stað á fjölskyldu-
og félagsmynstri f samfélaginu.
Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri
ÍTR, segir talsverða breytingu hafa
orðið á þessu sviði á undanförnum
árum og aldurssamsetning íbúa
hinna ýmsu borgarhverfa sífellt vera
að breytast. Með stefnumörkuninni
vilji ÍTR leita leiða til þess að koma
til móts við þarfir íbúanna á hverj-
um stað og á hverjum tíma.
Víðfeðm starfsemi
Starfsemi ÍTR er víðfeðm og snertir
mörg starfssvið. Hún nær ekki ein-
vörðungu til félagsstarfs yngra fólks
heldur einnig til eldri borgara, rekst-
urs íþróttamannvirkja, sýningarstaða
og útivistar auk fræðslustarfa og
margvíslegrar þjónustu. Yfirstjórnin
er í höfuðstöðvum ÍTR við Fríkirkju-
veg 11 en auk þess eru margvísleg
störf unnin víðs vegar um borgina. í
því sambandi má nefna allar félags-
miðstöðvar fyrir ungt fólk, ýmiss konar félagsstarf í borgarhverf-
um, starfsemi Hins hússins, sumarstarf og Evrópusamstarf. Starf-
semi íþróttahúsa og sundlauga heyrir undir ráðið og einnig þjón-
usta við íþróttafélögin og íþróttastarf eldri borgara. Annað sem
nefna má af starfsemi ÍTR eru útivistarsvæðin, skíða- og skauta-
svæðin og Nauthólsvíkin, að ógleymdum Húsdýragarðinum í
Laugardal, sem er eini starfandi dýragarðurinn hér á landi.
Starfsgleði verður að ríkja
ÍTR annast skipulagningu
æskulýðsstarfs í öllum hverf-
um borgarinnar þar sem mið-
stöðvar þess eru kjarnar
barna- og ungmennastarfs.
Soffía Pálsdóttir, æskulýðfull-
trúi ÍTR, segir að borginni sé
skipt í fjögur hverfi með þvf markmiði að skapa öflugar félagsleg-
ar heildir innan hvers borgarhluta. Með því fái starfið meiri ná-
lægð við þá sem taka þátt í því og
njóta þess. Vegna stærðar Reykjavík-
urborgar og ekki síður vegna skipu-
lags hennar í mismunandi hluta hef-
ur oft verið rætt um nauðsyn gleggri
hverfaskiptingar í einstökum mála-
flokkum en verið hefur. Soffía segir
hverfaskiptinguna gera kröfur um
sambærilega þjónustu innan allra
hverfanna. „Við getum ekki boðið
upp á eitt í Vesturbænum, annað í
Miðborginni og enn aðra þjónustu í
Breiðholti eða Grafarvogi. Krakkarn-
ir yrðu fljótir að komast að slíku og
þeir eru ekki tilbúnir að fara á milli
hverfa til þess að nýta sér æskulýðs-
starfið. Krakkarnir vilja hafa það
heima fyrir."
Soffía segir að starfsgleði verði að
ríkja á þessum vettvangi með góðri
þjónustu og öryggi fagfólks. Gildi
uppeldis og menntunar eru höfð í
hávegum auk þess sem mikil
áhersla er lögð á virka þátttöku,
reynslunám og lýðræði og jafnræði
haft að leiðarljósi. Soffía segir sér-
staka áherslu lagða á þátttöku barna
og unglinga sem ekki séu að sinna
heilbrigðum viðfangsefnum í frítíma
sfnum og að æskulýðstarfið ein-
kennist af öflugri samvinnu þeirra
sem koma að uppeldi og velferð barna og unglinga. í því efni
verði sífellt að leita nýrra leiða til þess að auka gæði og tryggja
aðgang allra barna og unglinga að starfinu.
Minni sumarvinna - breyttar þarfir
Skipta má æskulýðsstarfi ÍTR í nokkra hluta. Einn þeirra er starf
með börnum á aldrinum sex til tólf ára, sem felst meðal annars í
starfsemi frístundaheimila en einnig sumarstarfi og starfsemi fé-
lagsmiðstöðva. Unglingastarfið
miðast við aldurshópinn frá 13
til 16 ára og síðan starf með 16
ára ungmennum og eldri. Þar
er meðal annars um að ræða
opin hús, klúbbastarf og stuðn-
ing við félagsstarf í framhalds-
skólum. Lengra skólaár kallar á aukin úrræði og meira framboð á
félags- og tómstundastarfi. Sérstök áhersla er einnig lögð á að ná
Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri ITR, og Soffía Pálsdóttir æsku-
lýösfulltrúi.
Sérstök áhersla er lögð á að ná til þeirra ung-
menna sem flosna upp úr framhaldsskólum eða
hætta námi af einhverjum orsökum.
----- 19