Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Síða 22
saman, stilli saman strengi og móti sameiginlegar áherslur fyrir
svæðið. Eyþing vinni síðan sem hagsmunasamtök til þess að
fylgja þeim áherslum eftir.
Fyrir aðalfund samtakanna í Grímsey sumarið 1999 var unnin
aðgerðaáætlun fyrir samtökin og var við þá vinnu leitað til fjöl-
margra til þess að vinna og leggja fram ákveðin atriði sem síðan
skyldi unnið að. Á þeim fundi var einnig mótuð stefna og lagðar
áherslur til næstu ára sem síðan hafa orðið grunnur að áfram-
haldandi starfi samtakanna.
Samstarfsverkefni í heilbrigðismálum
Eftir þessar breytingar á starfsemi Eyþings hefur framkvæmda-
stjórinn verið eini starfsmaður samtakanna en sveitarstjórnar-
menn og aðrir verið kallaðir til í vinnuhópa eftir því sem þörf er
á vegna einstakra, afmarkaðra viðfangsefna.
Einn þessara hópa hefur starfað samfleytt frá árinu 1999 en
það er vinnuhópur um heilbrigðismál. í honum eiga sæti, ásamt
framkvæmdastjóra, fulltrúar frá heilbrigðisstofnunum á starfs-
svæði samtakanna. Hlutverk hópsins er að efna til samráðs á
sem byggðamál þar sem fjarlækningar eigi að geta veitt heilbrigð-
isstarfsfólki öryggi og styrkt það í starfi á minni stöðum auk þess
að bæta þjónustu við íbúana. Pétur Þór segir að um áhugavert
þróunarverkefni sé að ræða, sem tengist starfinu á sjúkrahúsun-
um á Akureyri og á Húsavík og geti vonandi leyst ákveðin vanda-
mál í heilbrigðisþjónustunni auk þess að vekja áhuga sérfræðinga
og starfsfólks heilbrigðisþjónustunnar. Þetta er í annað sinn sem
Eyþing kemur að verkefni af þessu tagi. Hið fyrra var við þróun á
rafrænum lyfseðli. Það verkefni var unnið í samstarfi við fyrirtæki
í Reykjavík en þróunarstarfið var unnið á Húsavík. Það verkefni
er nú að fara í frekari þróun á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Sérstakt stjórnunarnám fyrir sveitarstjórnarmenn
og aðra
Eyþing hefur að undanförnu staðið fyrir námi í stjórnun í sam-
vinnu við Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri. Námið er
meðal annars miðað við stjórnendur hjá sveitarfélögum, sveitar-
stjórnarfólk og fólk sem vill búa sig undir slík störf. Það hentar þó
líka þeim sem starfa eða hyggjast starfa að stjórnun hjá ríkisstofn-
Frá Námaskarði. Svæðið sem myndar hið nýja Norðausturkjördæmi býr yfir miklum möguleikum til ferðaþjónustu. - Mynd: Flaraldur Ingólfsson.
milli stofnana og að efla samráð þeirra við sveitarstjórnarstigið.
Pétur Þór segir að starf þessa hóps hafi heppnast einkar vel.
Hann hafi bæði átt frumkvæði að málum og einnig ýtt á eftir
framgangi þeirra. Pétur Þór
nefnir sem dæmi um árangur
af því starfi samning um þró-
unarverkefni í fjarlækningum
sem undirritaður var á aðal-
fundi samtakanna í Mývatns-
sveit á liðnu hausti. Þar er um að ræða samstarfsverkefni á milli
heilbrigðisráðuneytisins, Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og
heilbrigðisstofnananna á Húsavík og Þórshöfn. Verkefnið gerir ráð
fyrir samstarfi sérfræðinga á þessum stofnunum. Samningurinn er
til eins árs og segir Pétur Þór verkefnið meðal annars mikilvægt
unum og einkafyrirtækjum. Einn af meginkostum námsins er
raunar hve hópurinn er blandaður og viðfangsefnin fjölbreytt.
Pétur Þór segir mikla áherslu lagða á hagnýti námsins og
kennarar séu valdir með það
að leiðarljósi að þeir sameini
góða fræðilega yfirsýn og
skilning á hagnýtum vinnuað-
ferðum og hafi hæfileika til
þess að miðla þekkingu sinni
og reynslu með dæmum úr umhverfinu. Námið er byggt upp á
þann hátt að 100 klukkustundum er varið til umfjöllunar um fjár-
mál, rekstur og áætlanagerð, 40 klukkustundum til umfjöllunar
um upplýsingatækni, 40 klukkustundum til stjórnsýslu og 120
klukkustundum til kennslu í stjórnun. Auk þess sem gerð er krafa
Einn af meginkostum stjórnunarnámsins er hve
hópurinn er blandaður og viðfangsefnin fjölbreytt.
22