Morgunblaðið - 09.11.2011, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 9. N Ó V E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 263. tölublað 99. árgangur
NÆRANDI AÐ
FÁ KRAFT FRÁ
ÁHORFENDUM
FYLGI FLOKKANNA NÚ
SVIPAÐ OG FYRIR HRUN
ÍSLAND HEFUR
DREGIST AFTUR ÚR
Í HANDBOLTANUM FRÉTTASKÝRING 18
UNGMENNALANDSLIÐIÐ ÍÞRÓTTIRPOLLAPÖNK FYRIR ALLA 40
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Ég er kannski ekki að tala um útsölu en eigum við
ekki að segja að þau verði seld á niðursettu verði?“
segir Frank Michelsen úrsmiður, sem endurheimt
hefur úrin verðmætu sem stolið var úr verslun
hans í vopnuðu ráni 17. október sl. Lögreglan hef-
ur lokið rannsókn á úrunum, sem Frank hyggst
selja á lægra verði vegna útlitsgalla eftir meðferð
ræningjanna. Alls voru 49 úr tekin en að auki
skemmdust 12 verðmæt úr í ráninu. Upprunalegt
tjón Franks nemur ríflega 60 milljónum kr., þ.e. á
úrum og innanstokksmunum, en óvíst er hvað
trygging og sala úranna dekka þar á móti.
Þrír ræningjanna komust úr landi og hafa verið
eftirlýstir af Interpol. Tveir þeirra voru hand-
teknir í Póllandi í síðustu viku en var sleppt þar
sem framsalssamningur milli Íslands og Póllands
er ekki í gildi. Ögmundur Jónasson innanrík-
isráðherra hyggst breyta þessu með því að leggja
fram frumvarp á næstunni. Einnig verður óskað
eftir því við pólsku lögregluna að mennirnir verði
handteknir og framseldir, verði það ekki gert
verði farið fram á að réttað verði yfir þeim í Pól-
landi.
Fjórði Pólverjinn, sem átti að flytja ránsfenginn
úr landi, hefur verið í varðhaldi og rennur það út á
morgun. Að sögn Jóns H.B. Snorrasonar aðstoð-
arlögreglustjóra verður óskað eftir áframhaldandi
gæsluvarðhaldi yfir manninum.
Frank Michelsen er afar sáttur við störf íslensku
lögreglunnar en jafnsvekktur yfir því að tveimur
ræningjanna hafi verið sleppt í Póllandi. »4
Endurheimti ránsfenginn
Morgunblaðið/Júlíus
Ránsfengurinn Frank Michelsen úrsmiður með úrin sem tekin voru úr versluninni í vopnuðu ráni.
Nú stefnir í að tap
á þessu fyrsta
rekstrarári tón-
listar- og ráð-
stefnuhússins
Hörpu verði tölu-
vert minna en
gert var ráð fyrir.
Jákvæð rekstrar-
niðurstaða veltur
þó á að úrskurður í kærumáli vegna
fasteignamats á húsinu falli Hörpu í
vil.
Gert var ráð fyrir að 249 milljóna
króna tap yrði á rekstri Hörpu á
þessu ári. Höskuldur Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri rekstrar- og fast-
eignafélaga Hörpu, bendir á að á
þessu ári sé allur undirbúningskostn-
aður vegna rekstursins færður til
gjalda, en ekki til eignar eins og sums
staðar hafi tíðkast. Á hinn bóginn hafi
engar tekjur komið í kassann fyrr en í
maí þegar húsið var opnað. Því hafi
verið ljóst að töluvert tap yrði á
rekstrinum en nú stefni í að það verði
minna en áætlað var eða um 160 millj-
ónir, jafnvel minna. Á næsta ári sé
gert ráð fyrir hagnaði, þ.e. fyrir af-
skriftir, skatta og fjármagnsliði, en
um 7 milljóna króna tapi að teknu til-
liti til þessara liða. Árið 2013 verði
síðan um 20 milljóna hagnaður.
Út um glerhjúpinn
Þessi hóflegi hagnaður verður þó
fljótur að fjúka út um gluggann ef
Harpa tapar kærumáli gegn Þjóð-
skrá vegna fasteignamats á húsinu. Í
áætlunum Hörpu var gert ráð fyrir
að fasteignagjöld yrðu 160 milljónir á
ári en miðað við úrskurð Þjóðskrár,
sem metur húsið á 27,7 milljarða í
samræmi við byggingarkostnað, yrðu
gjöldin 290 milljónir. Kæra Hörpu
byggist á því að miða eigi við notk-
unarverðmæti. Höskuldur segir að
sterk rök séu fyrir kærunni og ef
Harpa beri sigur úr býtum, þá lækki
þessi skattur. Sá skattur yrði greidd-
ur af fasteignafélagi Hörpu. »14
Kærir
fasteigna-
matið
Rekstur Hörpu
betri en áætlað var
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bandaríska fyrirtækið Ekso Bionics í Berke-
ley afhendir fyrsta tæki sitt, Exoskeleton,
hugsanlega „gengil“ á íslensku, í endurhæf-
ingarstöð í Atlanta í Bandaríkjunum í næstu
viku. Dreifing til fleiri endurhæfingarstöðva
hefst síðan í desember og gert er ráð fyrir að
byrjað verði að selja búnaðinn til ein-
staklinga, sem eru í endurhæfingu undir
handleiðslu sérfræðinga, um mitt næsta ár.
Eyþór Bender, forstjóri Ekso Bionics, hef-
ur kynnt búnaðinn víða í Bandaríkjunum að
undanförnu auk þess sem hann hefur meðal
annars staðið fyrir kynningum í London og
München. Hann segir að tækinu hafi verið
sérlega vel tekið enda ekki á hverjum degi
sem fólk, sem vegna lömunar hefur verið
bundið við hjólastól jafnvel í áratugi, geti allt
í einu gengið.
Búnaðurinn var fyrst kynntur fyrir um ári
en hefur mikið verið endurbættur. Hann
samanstendur af viðamiklum spelkum sem
rafhlöður og fjórir mótorar knýja áfram, en
hreyfingunum er stjórnað með litlum tölvum.
Kristján Tómas Ragnarsson, yfirlæknir á
Mount Sinai-spítalanum í New York, hefur
fylgst vel með framgangi mála, en í gær var
hann í Hvíta húsinu í þeim tilgangi að leggja
fyrir bandarísk stjórnvöld 10 ára áætlun fyrir
rannsóknir á sviði endurhæfingar eftir mænu-
skemmdir.
Hann bendir á að fólk sem sé lamað frá
mitti eða ofar hafi ekki næga orku í griplimum
og öxlum til þess að komast áfram í göngu-
grind eða á hækjum að einhverju gagni. Með
nýja búnaðinum flytjist orkuvinnslan að
mestu leyti frá sjúklingum yfir í tækið. »6
Lamað fólk getur gengið á ný
Íslendingar í forsvari fyrir nýjum búnaði sem verður tekinn í notkun í
Bandaríkjunum í næstu viku Mikill áhugi á svokölluðum gengli
Kynning Eyþór Bender á Ted-ráðstefnu.
Silvio Berlusconi, for-
sætisráðherra Ítalíu, til-
kynnti í gærkvöldi að
hann hygðist segja af sér
eftir að þing landsins
samþykkti efnahagslegar
umbætur síðar í mán-
uðinum.
„Þingið er lamað og
ríkisstjórnin hefur misst
meirihluta sinn,“ sagði
forsætisráðherrann eftir fund með Giorgio
Napolitano, forseta Ítalíu.
Berlusconi kvaðst vilja að efnt yrði til
þingkosninga sem fyrst en bætti við að það
væri hlutverk forsetans að ákveða fram-
haldið.
Kosningar eða ný stjórn?
Napolitano forseti hefur fjóra kosti í stöð-
unni. Hann getur rofið þing og boðað til
kosninga innan 70 daga, myndað bráða-
birgðastjórn skipaða sérfræðingum, falið
flokksbróður eða bandamanni Berlusconis
að mynda nýja meirihlutastjórn eða beitt sér
fyrir myndun þjóðstjórnar til að koma á
nauðsynlegum efnahagsumbótum. »17
Berlusconi
ætlar að
segja af sér
Silvio Berlusconi
Staða A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins hefur verið neikvæð síðustu tvö ár
eða um 47 milljarða í lok seinasta árs. Fjár-
málaeftirlitið telur að stjórn LSR hafi ekki
gripið til viðeigandi ráðstafana til að bregð-
ast við þessu. Fjármálaráðherra lagði í gær-
kvöldi fram á Alþingi frumvarp um breyt-
ingu á lögum um LSR sem veitir sjóðnum
heimild til að hafa allt að 15% neikvæðan
mun á milli eignarliða og framtíðarskuld-
bindinga lífeyris líkt og gilt hefur til bráða-
birgða hjá almennu lífeyrissjóðunum frá
2008.
Í umsögn fjárlagaskrifstofu er þó bent á
að þessi rýmri vikmörk tryggingafræðilegr-
ar stöðu gildi einungis til bráðabirgða og að
treysta þurfi stöðu A-deildar LSR að
óbreyttu verði bráðabirgðaákvæðið um 15%
mörkin ekki framlengt en það fellur úr gildi í
lok þessa árs. omfr@mbl.is
LSR fái svig-
rúm vegna nei-
kvæðrar stöðu