Morgunblaðið - 09.11.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.11.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2011 VIÐTAL Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Það er afskaplega ánægjulegt að lögreglu tókst að upplýsa ránið og endurheimta þýfið, þó að tjón okkar sé mikið. Þetta er vissulega mikið högg fyrir okkur. Mestu skiptir samt að við sluppum öll heil frá þessu og enginn slasaðist, það er alltaf hægt að kaupa ný úr. En lögreglan og toll- gæslan eiga mikið hrós skilið fyrir þeirra þrotlausu vinnu í níu sólar- hringa eftir ránið, dag og nótt,“ segir Frank Michelsen, úrsmiður við Laugaveg, sem endurheimt hefur öll úrin sem tekin voru í ráninu 17. októ- ber sl. Lögregla hefur lokið við rannsókn á úrunum og hefur Frank náð að yf- irfara þau öll. Hann segir úrin lang- flest hafa eitthvað rispast og laskast í meðförum ræningjanna, mismikið þó, og ekki sé hægt að selja þau aftur á fullu verði. Verða úrin þó seld með fullri ábyrgð. „Ég er kannski ekki að tala um útsölu en eigum við ekki að segja að þau verði á niðursettu verði,“ segir Frank en fyrir ránið var dýrasta úrið, sem tekið var, verðlagt á 1,7 milljónir króna, Rolex Daytona. Til viðbótar við þau 49 úr sem Pól- verjarnir tóku þá skemmdust 12 önnur dýrmæt úr í skápunum er glerbrotum rigndi yfir þau í ráninu. Upprunalegt tjón Franks og fjöl- skyldunnar nemur rúmum 60 millj- ónum króna, að meðtöldum skemmdum í versluninni. Þar af var verðmæti úranna, sem var stolið, rúmar 50 milljónir króna, m.a. Ro- lex-úr sem fást hvergi annars staðar í heiminum í dag. Trygging verslun- arinnar bætir tjónið hins vegar að- eins að hluta og með því að hafa end- urheimt úrin segist Frank vonast til að geta dregið úr högginu og minnk- að heildartjónið. Með stærri úraránum í Evrópu „Við vorum nýbúin að taka upp jólasendinguna þegar þetta gerðist, ég hef aldrei verið jafn fljótur að klára slíka sendingu,“ segir Frank og reynir að sjá spaugilegu hliðarnar á þessu. Erlendir ferðamenn eru fjölmennir í hópi viðskiptavina hans, og höfðu þeir pantað mörg af þeim úrum sem stolið var. Íslendingar kaupa einnig þessi verðmætu úr og þá fyrst og fremst sem fjárfesting- arkost, að sögn Franks. Hann er nýkominn heim frá Sviss þar sem hann átti fund með yfir- mönnum Rolex í Evrópu. Þar á bæ sé mikil ánægja ríkjandi með að rán- ið upplýstist, sem er með þeim stærri í Evrópu í seinni tíð hvað fjölda úra varðar. Hvert úr hefur sína kennitölu, ef svo má segja, og lista yfir þau var strax komið á fram- færi til Rolex. Úrarán hafa verið nokkuð tíð á Norðurlöndunum seinni árin, yfirleitt framin af mönnum frá A-Evrópu. Ljóst sé að um skipu- lagða glæpastarfsemi sé að ræða. Öryggisráðstafanir hertar Í kjölfar ránsins verða öryggisráð- stafanir í versluninni á Laugavegi 15 hertar enn frekar en áður, í sam- starfi við Rolex, og aðgengi að úr- unum takmarkað. Frank Michelsen hefur verið á þessum stað í nær 20 ár en var þar áður lengst af á Lauga- vegi 39. Þetta var þriðja ránið sem framið hefur verið í versluninni en tjónið aldrei verið meira. Misheppn- uð tilraun var gerð árið 2008 en árið 2001 óku ræningjar bíl sínum inn í verslunina og tókst að hafa á brott með sér nokkur úr. Morgunblaðið/Júlíus Úrin Frank Michelsen skoðar úrin eftir að hafa fengið þau öll frá lögreglunni. Úrin eru metin á rúmar 50 milljónir króna en fleiri skemmdust líka í ráninu. „Mikið högg fyrir okkur“  Frank Michelsen úrsmiður hefur endurheimt ránsfenginn eftir fyrstu rannsókn lögreglunnar  Upphaflegt tjón metið á um 60 milljónir  Úrin til sölu á lægra verði „Við erum að reka smiðshöggið á frumvarp sem afnemur fyrir- vara sem við höf- um haft á sam- komulagi á vegum Evrópu- ráðsins, um fram- sal fanga. Fyrir- vari okkar hefur snúið að því að við erum ekki skuldbundin að fram- selja eigin ríkisborgara og hið sama gildir þá gagnvart ríkjum sem eiga aðild að samkomulaginu,“ segir Ög- mundur Jónasson innanríkis- ráðherra. Varðandi úraræningjana þrjá í Póllandi segir hann að óskað hafi verið eftir því að þeir yrðu hand- teknir og framseldir. Ef þeir verði ekki framseldir þá sé samkvæmt fyrrnefndu samkomulagi heimilt að leggja til við pólsk yfirvöld að réttað verði í máli mannanna í Póllandi. Öllu þessu sé verið að reyna að koma í kring sem allra fyrst. bjb@mbl.is Frumvarp um framsal á lokastigi Óskað eftir handtöku pólsku ræningjanna Ögmundur Jónasson Jón H. B. Snorrason, að- stoðarlög- reglustjóri á höuðborgar- svæðinu, segir lögregluna hér á landi áfram vera í samstarfi við lögreglu- yfirvöld í Pól- landi vegna rannsóknar á úraráninu, þó að tveimur mannanna hafi verið sleppt í síðustu viku. Það sé yf- irvalda í Póllandi að reka málið þar áfram og fá fram fangels- isdóma. Vopnað rán sé alvarlegt brot. Jón segir það hafa verið nauðsynlegt að lýsa eftir mönn- unum þó að framsalssamningur sé ekki í gildi milli Íslands og Póllands. Hefðu mennirnir náðst í Danmörku eða Þýskalandi hefðu þeir verið framseldir hingað. Tel- ur Jón það eðlilega kröfu að samningurinn við Pólverja verði virkjaður. „Ekki mun þessum málum fækka, heldur fjölga ef eitthvað er. Ef það eru hnökrar á þessu þá munu glæpagengi færa sér það í nyt. Svo vel halda þau sér upplýstum um málin,“ segir Jón. bjb@mbl.is Pólskra yfirvalda að reka málið Jón H. B. Snorrason „Ég segi fyrir mitt leyti að munurinn á kostn- aði við að leggja háspennulínur í jarðstrengjum í stað loftlína er enn of mikill til þess að hægt sé að réttlæta það, nema stuttar vegalengdir í þéttbýli þar sem þröngt er um línustæði,“ segir Kristján L. Möller, formaður atvinnuvega- nefndar Alþingis. Forstjóri Landsnets var kall- aður á fund nefndarinnar í gær til að veita upp- lýsingar um kostnað við lagningu háspennulína í framhaldi af umræðu sem varð vegna ákvörð- unar Sveitarfélagsins Voga um að breyta aðal- skipulagi í þá veru að Suðurnesjalína verði lögð í jörðu. Kristján sagði að Þórður Guðmundsson, for- stjóri Landsnets, hefði veitt gagnlegar upplýs- ingar og svarað fyrirspurnum nefndarmanna. Kristján tekur undir þau orð forstjórans að Landsnet geti ekki eitt og sér markað þá stefnu að fara með jarðstrengi almennt í jörðu, eins og staðan er nú. Það muni leiða til stór- hækkaðs raforkuverðs í landinu, jafnt atvinnu- lífs sem heimila, og leiða til hækkunar á verð- lagi. Fram hefur komið í áliti sem unnið var fyrir Sveitarfélagið Voga að munur á kostnaði við loftlínu og jarðstreng sé mun minni en Lands- net hefur haldið fram enda gefnar aðrar for- sendur um verð á landi. Kristján tekur fram að fyrirhugað sé að óska eftir að fulltrúar Voga og Almennu verkfræðistofunnar komi á fund nefndarinnar til að skýra sína hlið. helgi@mbl.is Kostnaðarmunur enn of mikill  Atvinnuveganefnd Alþingis ræðir lagningu háspennulína í jarðstreng eða loft- línu  Formaður nefndarinnar segir jarðstrengi leiða til hækkunar á raforkuverði Morgunblaðið/Einar Falur Háspenna Alþingismenn ræða nú mismunandi leiðir við flutning raforku hér á landi. Saga verslunar Franks Michelsen á sér langa sögu, sem hófst á Sauð- árkróki 1909 þegar afi Franks og alnafni hóf þar rekstur úraversl- unar og -vinnustofu. Þrátt fyrir ránið, og hið mikla tjón sem það olli fyrirtækinu, segir Frank að fjöl- skyldan ætli ekki að gefast upp. Þriðji og fjórði ættliður Michelsen- úrsmiða starfar á Laugavegi. Einn sona Franks er úrsmiður og hinir tveir starfa við verslunina. Til marks um þrautseigjuna þá náði Frank að ljúka viðgerð á úri sem hann vann við daginn sem ránið var framið. Lauk samsetning- unni um kvöldið og skilaði hann úrinu af sér morg- uninn eftir, eins og um var samið. Láta ránið ekki stöðva sig ÞRIÐJI OG FJÓRÐI ÆTTLIÐUR MICHELSEN-ÚRSMIÐA Frank Michelsen Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði og Hornafjarðarbær verða hvort með sína kröfuna um björgunarlaun vegna björgunar flutningaskipsins Ölmu. „Ég býst við að við verðum sitt með hvora kröfuna, bærinn með sinn lög- mann og við okkar. En þetta er rétt að fara af stað,“ sagði Gísli Jónatansson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar, spurður út í málið. Loðnuvinnslan er útgerð Hoffellsins sem dró Ölmu til Fáskrúðsfjarðar. Laun vegna björg- unar skipsins gætu numið háum fjár- hæðum en um borð eru um 3.000 tonn af frosnum fiski og hleypur verðmæti hans á nokkrum hundruðum milljóna kr. Von var á mönnum frá erlendu trygginarfélagi Ölmu til landsins í gærkvöldi. Munu þeir líklega skoða tjónið á skipinu í dag. ingveldur@mbl.is Hvort með sína kröf- una fyrir björgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.