Morgunblaðið - 09.11.2011, Side 6

Morgunblaðið - 09.11.2011, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2011 SVIÐSLJÓS Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bandaríska fyrirtækið Ekso Bio- nics í Berkeley hefur að und- anförnu kynnt nýjan búnað, sem gerir lömuðum mögulegt að ganga, en til stendur að hann fari til valinna endurhæfingarstöðva innan skamms. Búnaðurinn nefn- ist exoskeleton eða Ekso robot, hugsanlega gengill á íslensku. Hann samanstendur af viðamikl- um spelkum, sem rafhlöður og fjórir mótorar knýja áfram, en að- stoðarmaður stjórnar hreyfing- unum með litlum tölvum. Eftir nokkurra daga æfingu getur not- andinn stjórnað genglinum sjálf- ur. Búnaðurinn var fyrst kynntur fyrir um ári en hefur verið end- urbættur. Fyrsta tækið verður tekið í notkun í næstu viku og síð- an hefst dreifing til fleiri end- urhæfingarstöðva í desember en gert er ráð fyrir að búnaðurinn verði fyrst seldur einstaklingum um mitt næsta ár og verði þá öllu meðfærilegri. Hann kostar nú 130 þúsund dollara eða um 15 millj- ónir króna. Eykur burðargetu Eyþór Bender, forstjóri Ekso Bionics, segir að þessi nýja tækni sé bæði nýstárleg og spennandi. Að undanförnu hafi hann farið víða og kynnt búnaðinn, m.a. á Ted-ráðstefnum, þar sem nýjar hugmyndir og tækni séu kynnt, spítölum og víðar, t.d. í London og München. Fólk, sem ekki hafi gengið um árabil vegna lömunar, hafi notað búnaðinn á þessum kynningum og þannig vakið at- hygli á byltingunni. Hugmyndin hefur verið útfærð fyrir hermenn og starfsmenn í þungaiðnaði. Eyþór segir að með búnaðinum geti menn haldið á tæplega 100 kg án vandræða en hermenn eigi margir hverjir við bakmeiðsl að stríða eftir að hafa verið með um 50 kg reglulega á bakinu. „Búnaðurinn getur aukið framleiðni manna allt að fimm- falt,“ segir Eyþór og bætir við að hugsunin sé líka að koma í veg fyrir bakmeiðsli. Um 40% banda- rískra hermanna stríði við krónísk bakmeiðsli vegna of mikils álags, en búnaðurinn létti það. Eyþór starfaði áður hjá Össuri og var m.a. framkvæmdastjóri Össur North America í fimm ár. Þá kynntist hann núverandi sam- starfsmönnum sínum í Berkeley og segir að þegar hann hafi byrj- að að vinna með þeim fyrir um tveimur árum hafi þeir verið byrj- aðir að þróa umræddan búnað. Hann hafi sérstaklega verið spenntur fyrir því sem sneri að lömuðu fólki í ljósi þess að vinnan hjá Össuri hafi m.a. hjálpað aflim- uðum að ganga og hlaupa en samt hafi vantað að fylgja því eftir til fólks í hjólastólum. „Mér fannst lausnin liggja í því sem þeir voru að gera hérna í Berkeley og því slóst ég í hópinn,“ segir hann. Með honum í framkvæmdastjórn fyrirtækisins eru m.a. tveir fyrr- verandi íslenskir starfsmenn Öss- urar, Karl Guðmundsson, sem er yfir markaðsmálunum, og Kol- beinn Björnsson, sem er yfir sölu- málunum. Hjá fyrirtækinu starfa 60 manns og þar af sjö fyrrver- andi starfsmenn Össurar. Grensás í viðbragðsstöðu Þrátt fyrir að búnaðurinn sé tilbúinn í sölu til endurhæfing- arstöðva segir Eyþór að ýmislegt sé eftir. „Við erum í rauninni á byrjunarreit,“ segir hann, en bæt- ir við að fyrsti búnaðurinn verði tekinn í gagnið á endurhæfing- arstöð í Atlanta í Bandaríkjunum eftir viku, miðvikudaginn 16. nóv- ember. Síðan fari tækin á fleiri endurhæfingarstöðvar í desem- ber. Viðbrögðin hafi verið mjög góð og búið sé að selja um 20 bún- aði í fyrirframsölu, bæði í Banda- ríkjunum og Evrópu. „Síðan stefnum við að því að hefja sölu til einstaklinga um mitt næsta ár,“ segir hann. Hann leggur áherslu að aðeins verði tekið eitt skref í einu, fá tæki afgreidd til að byrja og fylgst vel með notkun þeirra áður en farið verði út í fjöldafram- leiðslu. „Öryggið er fyrir öllu,“ segir hann. Stjórnendur endurhæfing- arstöðva á Íslandi hafa fylgst með gangi mála og sjúkraþjálfarar Grensásdeildar Landspítalans ætla að kynna sér búnaðinn í byrjun næsta árs, að sögn Ey- þórs. Lamaðir ganga með gengli  Nýr búnaður kynntur víða og fyrsta tækið tekið í notkun í næstu viku  Íslendingar í sviðsljósinu og mikill áhugi á tækinu víða um heiminn Ljósmynd/Vivian Woo Kynning Eyþór Bender forstjóri, Robert Woo arkitekt og Kristján Tóm- as Ragnarsson yfirlæknir á Mount-Sinai spítalanum fyrir helgi. Gengill Búnaðurinn passar öllum. Gengill » Um 68 milljónir manna eru bundnir við hjólastól og lítill hluti þeirra er lamaður vegna mænuskaða. » Gengillinn er fyrst og fremst hugsaður fyrir lamaða en getur líka hentað fólki sem þarf að „læra“ að ganga á ný. » Gengillinn vegur um 25 kg en notandinn finnur ekki fyrir þyngdinni því búnaðurinn heldur tækinu uppi. » Bandaríska matvæla- og lyfjastofnunin þarf að sam- þykkja búnaðinn. Kristján Tómas Ragnarsson, yfirlæknir á Mount Sinai-spítalanum í New York í meira en aldarfjórðung, hefur fylgst með fram- gangi mála og vonast til þess að fá búnað frá Ekso Bionics á endurhæfingarstöð spít- alans um leið og yfirvöld gefa grænt ljós á hann. Kristján áréttar að nokkur ámóta tæki séu í þróun og nefnir m.a. búnaðinn Re- Walks frá Ísrael, búnað sem sé í mótun í Vanderbilt-háskólanum í Nashville í Ten- nessee og búnað japanska fyrirtækisins Cy- perdyne, en stjórnun búnaðar sé mismun- andi og göngulagið öðruvísi. „Tæknin í heild lofar góðu á ýmsan hátt þó ekki sé hægt að segja útkomuna fyrir,“ segir hann. Mount Sinai-spítalinn er einn sá stærsti í Bandaríkjunum. Kristján segir að búið sé að tryggja um 25% fjármagns til þess að kaupa búnaðinn. Enn vanti um 75 þúsund dollara en ekki ætti að vera vandamál að afla þeirra. „Mér líst vel á þetta,“ segir Kristján. Hann segir að þegar fólk lamist af mænu- skemmdum spyrji allir fyrst hvort það sé möguleiki að þeir gangi aftur. Sé lömunin algjör, frá mitti eða ofar, hafi gengið illa að koma fólki á fætur, jafnvel með spelkum, göngugrindum eða hækjum, því fólk hafi hreinlega ekki næga orku í griplimum og öxlum til þess að komast áfram að einhverju gagni. Með þessum nýja búnaði, sem sé rafknúinn og stjórnað af tölvu, flytjist orku- vinnslan að mestu leyti frá sjúklingnum yfir í tækið. Því standi vonir til þess að fólk hafi meira úthald og geti farið víðar um. Áfram þurfi fólk að hafa göngugrind eða hækjur til þess að halda jafnvægi og hafa beri í huga að tækið lækni ekki lömunina heldur geri fólki mögulegt að ganga. Nýtt líf Búnaðurinn var kynntur á spítalanum fyrir helgi. Kristján segir að margir við- staddra hafi verið lamaður frá brjósti og niður, aldrei séð annað eins og ekki getað gengið árum saman. „Þetta var algjörlega nýtt fyrir þá en allir tóku þessu mjög vel og leist mjög vel á,“ segir Kristján. Kynningin í New York vakti töluverða at- hygli fjölmiðla og var m.a. fjallað um hana í New York Times og Daily News auk þess sem AP fréttaveitan greindi frá málinu. Í samtali við Kanadamanninn og arkitektinn Robert Woo kom m.a. fram að hann hefði verið viss um að hann myndi aldrei ganga framar eftir að hafa hryggbrotnað og lam- ast 2007 í vinnuslysi við nýbyggingu Gold- man Sachs á svæðinu þar sem tvíbura- turnarnir voru. „Þetta var ótrúlegt,“ sagði hann eftir að hafa gengið 300 skref á spít- alanum. „Það var magnað að geta gengið á eigin fótum, gengið eðlilega.“ Tæknin lofar góðu Gunnar Björnsson Porto Carres, Grikklandi Mjög góður sigur vannst á Make- dóníu, 2,5-1,5, í sjöttu umferð EM landsliða sem fram fór í gær. Ís- lendingar voru stigalægri á öllum borðum. Henrik Danielsen og Hjörvar Steinn Grétarsson unnu sínar skákir. Björn Þorfinnsson gerði jafntefli en bróðir hans Bragi tapaði. Helgi Ólafsson liðs- stjóri hvíldi. Íslenska liðið hefur 6 stig og er í 24. sæti af 38 liðum. Sveitin er efst norrænna sveita. Andstæðingur Henriks tefldi til vinnings, fórnaði peði og virtist hafa vænlega stöðu. Henrik varð- ist vel og innbyrti góðan og mjög mikilvægan sigur, eftir 3 töp í 3 skákum. Hjörvar Steinn Grét- arsson hélt áfram frábæru gengi á mótinu og vann nú stórmeistarann Trajko Nedov. Hjörvari var boðið jafntefli en eftir samráð við Helga Ólafsson liðsstjóra ákvað hann að tefla áfram og það borgaði sig. Hjörvar hefur fengið 3,5 vinn- inga í skákunum sex og hefur teflt í þeim við fimm stórmeistara og mætir þeim sjötta í dag. Þess má geta að Hjörvar er fimmti stiga- lægsti annars borðs maðurinn af 38. Björn Þorfinnsson gerði jafn- tefli í skemmtilegri skák á fjórða borði. Bragi Þorfinnsson ákvað í stöðunni 2,5-0,5 að tefla áfram í stað þess að semja jafntefli. Bragi var kominn með mjög vænlegt tafl en lék af sér í tímahraki og tapaði. Rúmenar efstir - öllum að óvörum Í dag mætir íslenska sveitin Serbíu, fjórða landinu frá fyrrver- andi Júgóslavíu á mótinu. Serbar eru með átjánda sterkasta liðið og með stigaháa stórmeistara á öllum borðum. Þeir eru jafnsterkir á pappírnum og Rúmenar sem eru efstir öllum að óvörum. Rúmenar, Aserar og Búlgarar hafa 9 stig. Rúmenar hafa 15,5 vinninga en Aserar og Búlgarar hafa 15 vinninga. Aserar unnu Rússa sem hefur gengið mjög illa á mótinu. Efstir Norðurlandaþjóða á EM í skák  Góður sigur á Makedóníu  Mætir enn einu fyrrverandi Júgóslavíuríkinu Ljósmynd/Gunnar Björnsson Sigurvegarar Henrik Danielsen og Hjörvar Steinn Grétarsson unnu báðir. Umhverfisráðherra hefur lagt fram frumvarp um breytingar á náttúruverndarlögum sem hafa að markmiði að hamla gegn utan- vegaakstri og efla vernd nátt- úrufyrirbæra. Er meðal annars gert ráð fyrir að Landmælingar geri kortagrunn þar sem merkja á vegi og vegslóða þar sem heim- ilt er að aka vélknúnum ökutækj- um. Í frumvarpinu er einnig lagt til að Umhverfisstofnun verði heim- iluð gjaldtaka á móti kostnaði fyrir leyfi sem stofnunin gefur út samkvæmt lögunum. Í umsögn fjárlagaskrifstof- unnar segir að um sé að ræða tekjur fyrir undanþágur frá banni við akstri utan vega, tekjur fyrir leyfi til tínslu í atvinnu- skyni, tekjur fyrir leyfi til fram- kvæmda þar sem hætta er á að spillt verði friðlýstum náttúru- minjum og tekjur fyrir leyfi til töku ákveðinna tegunda steinda úr föstum jarðlögum. Umhverfisstofnun verði heimiluð gjald- taka á móti kostnaði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.