Morgunblaðið - 09.11.2011, Page 11

Morgunblaðið - 09.11.2011, Page 11
Ljóð Eitt af ástarljóðunum úr bókinni góðu sem Óskar samdi lag við. um við lögin í mismunandi stíl. Eitt lagið er til dæmis blúslag, annað í þjóðlagastíl, kántrí, reagge og ball- öður.“ Ljóðin eru uppspretta laganna Óskar hefur tengsl við ljóðskáldið Kristínu að því leyti að hann er fæddur og uppalinn á Höfn í Hornafirði og var í sveit hjá frænku sinni á Hvalsnesi en hún er gift frænda Kristínar. Hann vissi því vel hver hún var. Og þar sem text- arnir hennar eru upp- sprettan að diskinum, þá létum við plötu- umslagið tóna við ljóðabókina, hvort tveggja er rautt með gulum ramma. Mér fannst eðlilegast að sýna bókinni þá virð- ingu að láta þetta líkjast.“ Á diskinum sjá þau Arnar Jónsson og Unnur Birna Björns- dóttir um sönginn og Unnur spilar á fiðlu í einu lagi. „Röddin hennar Unnar Birnu passar svo vel við þessi lög. Hún lærði í djassdeild FÍH. Hún hefur spilað á fiðluna með Fjallabræðrum og einnig séð um fiðluleik í leikriti í Þjóðleikhús- inu sem heitir Ballið á Bessastöð- um.“ Langafi kom með fiðlur frá Kanada Tónlistin er Ósk- ari í blóð borin, langt aftur í ættir. „Langafi minn Eymundur Jóns flutti til Kanada um aldamótin 1900 og bjó þar í fjögur ár og hann var með fiðlur og harm- onikkur í farteskinu þegar hann kom aftur heim til Íslands. Fyrir vikið lærði Sigurður sonur hans og afi minn, á fiðlu og spilaði í veislum fyrirmanna á Hótel Heklu. Nokkrir frændur mínir spiluðu á harmonikkur í kirkjukjall- aranum og það voru allir í minni ætt eitthvað að vesenast í tónlist. Mamma var til dæmis mjög góð í því að radda,“ segir Óskar og bætir við að sá sem hafi fyrst kveikt al- vöru tónlistaráhuga hjá honum, hafi verið sjálfur Elvis Presley. „Þegar ég var undir tíu ára aldri var ég oft í pössun hjá afa og ömmu en þar var til plötuspilari. Ég stalst gjarnan í þessa græju og spilaði vín- ilplötur frænda minna, Birgis og Knúts, en þeir voru miklir Presley-aðdáendur og töffarar. Þeir óku um á átta gata kagga og spyrntu um allar sveitir og ærðu stelpurnar. Mér fannst þessi tónlist mögnuð. Þetta tók mig alveg.“ Fimmtán ára í ballhljómsveit Þegar Óskar var tólf ára brast Bítlaæðið á og þá fékk hann gefins gítar. „Frændur mínir áttu einhver hljóðfæri líka og ég stofnaði með þeim fyrstu hljómsveitina mína. Þegar ég var fimmtán ára var ég munstraður í hljómsveitina Pan kvintettinn á Höfn því þá vantaði gítarleikara. Þeir spiluðu gamla rokkið, gítarbúggí og annað skemmtilegt. Við spiluðum á böllum og ég þurfti að vera á undanþágu vegna ungs aldurs. Þetta var síð- asta síldarárið og við spiluðum á Herðubreið á hverju kvöldi.Ég var í nokkrum hljómsveitum eftir það á Höfn.“ Óskar er kenn- aramenntaður og seg- ist hafa lagt tónlistar- iðkun meira og minna á hilluna þegar hann fór að kenna um 1975. „En ég greip þó eitthvað í þetta, spilaði til dæmis með Örvari Kristjáns- syni í Færeyjum 1983-1984, þar sem ég bjó um tíma. Ég fór líka í FÍH og lærði á gítar hjá Bjössa Thoroddsen. En það var ekki fyrr en 1991 sem ég byrjaði aftur í tón- listinni og þá gerði ég kassettuna Gamall draumur, þar sem Bubbi Morthens syngur titillagið. Ég gaf líka út diskinn Bossanova hotspring árið 2001, með frændum mínum Ómari og Óskari Guðjónssonum. Svo hef ég sent lög inn í söngva- keppni sjónvarpsstöðva og tvö lög komust í úrslit árið 2007,“ segir Óskar sem hefur komið víða við um dagana, m.a. búið í Ástralíu og Dan- mörku. Útgáfutónleikar verða á Ró- senberg 21. nóvember. Ung og upprennandi Unnur Birna og Arnar sjá um sönginn á diskinum. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2011 Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS standa fyrir lifandi bókasafni í dag á 1. hæð Borgarbókasafnsins, Tryggvagötu 15, frá klukkan 16.00-18.00 í tilefni af al- þjóðlegum degi gegn rasisma og fas- isma. Gestir geta fengið að láni lif- andi og talandi bók frá ýmsum löndum, t.d. Póllandi, Ísrael, Aust- urríki og Spáni og fræðst um mál- efnið frá mismunandi hliðum. Í tilkynningu segir að SEEDS séu íslensk sjálfboðaliðasamtök sem taka á móti hátt í 1000 sjálf- boðaliðum á ári til að vinna að um- hverfis- og menningartengdum verk- efnum hér á landi og stuðla að menningarlegum skilningi og friði. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. Í tilefni dagsins verður einnig sett upp skilaboðaspjald þar sem almenn- ingi gefst kostur á að skrifa skilaboð eða hugleiðingar sínar um kynþátta- fordóma sem eru í samfélaginu í dag. Gegn rasisma og fasisma Fjölþjóðleg Við erum margskonar og allir eiga skilið virðingu. Lifandi bóka- safn í dag Sími 568 5170 Í SNYRTIVÖRUVERSLUNINNI Í GLÆSIBÆ MIÐVIKUDAG TIL FÖSTUDAGS 30% kynningarafsláttur af Aquasource SKIN PERFECTION rakakreminu. Kynningarverð nú: 5.180 kr.- Verð áður: 7.400 kr. Kaupaukinn* þinn þegar þú kaupir Biotherm vörur fyrir 6.900 kr eða meira. - Skin Ergetic næturkrem 15 ml - Aquasource SOS rakamaski 75 ml - Eau de Paradis sturtusápa 75 ml - Eau de Paradis ilmur 15 ml - Biocils augnfarðahreinsir 30 ml - Andlitsvatn 30 ml - Biotherm taska Verðmæti kaupaukans allt að 15.300 krónur G ild ir m eð an bi rg ði r en da st en ek ki m eð de od or an t eð a an na rr it ilb oð sv ör u. TILBOÐS OG GJAFADAGAR BIOTHERM KYNNING á svið en alls koma rétt tæplega 30 manns að sýningunni. Sá yngsti er 12 ára og sá elsti kominn á sjötugs- aldurinn. „Aðsóknin gerist ekki betri hjá áhugamannafélögum og við erum í skýjunum með viðtökurnar. Nú skor- um við bara á alla íbúa höfuðborg- arsvæðisns að tryggja sér miða,“ segir Bernharð sem steig fyrst á svið fyrir 21 ári en er nú á sínu fjórða ári sem formaður. Hann segir aldrei ves- en að manna leikrit í Hörgárdalnum og þau séu vel í sveit sett hvað varð- ar hæfileikafólk bæði í tónlist, leik- list og fleiru. Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson Ófeimnir Bændur í Hörgárdal hafa einnig gefið út dagatal í léttum dúr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.