Morgunblaðið - 09.11.2011, Síða 12

Morgunblaðið - 09.11.2011, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2011 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Haukur Már Sigurðsson, eigandi verslunarinnar Fjölvals á Patreks- firði, er ánægður með alþjóðlega samstarfsverkefnið sem hann og 34 aðrir eigendur verslana á lands- byggðinni tóku þátt í um stöðu verslana í dreifbýli. Helstu niður- stöður verkefnisins voru kynntar á ráðstefnu í Heiðarbæ í Reykja- hverfi, eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær. „Verkefnið hefur skilað árangri og opnað manni nýja sýn,“ segir Haukur sem telur helsta vanda dreifbýlisverslana vera verðlagið, hátt innkaupsverð hjá birgjum og flutningskostnað. Orkukostnaður sé einnig mikill, t.d. á Vestfjörðum. Nauðsynlegt sé að koma á einhvers konar flutningsjöfnun og fyrir því hafi verslunareigendur barist í mörg ár en fyrir daufum eyrum. Verslanakeðja Samkaupa hefur einnig verið meðal þátttakenda í verkefninu. Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, segir fyrirtækið eiga öðruvísi aðkomu en flestir aðrar þær 34 verslanir sem tóku þátt, þar sem um keðju versl- ana sé að ræða. Hagsmunamálin séu hins vegar mörg þau sömu, eins og að bæta rekstrarumhverfi verslana í dreifbýlinu og draga úr flutnings- kostnaði. Samkaup hafi hins vegar ekki ákveðið hvort þau taki þátt í stofnun félags verslana í dreifbýli. Samkaup reka 47 verslanir um land allt, þar af um 40 á landsbyggð- inni. Margar þeirra eru litlar og þær einu í viðkomandi byggðarlagi. Að- allega er um þrjár tegundir versl- ana að ræða; Samkaup Úrval, Sam- kaup Strax og Nettó, og segir Ómar verðlag í hverri tegund verslana fyr- ir sig alls staðar það sama á landinu, óháð staðsetningu. Margar þessara verslana voru áður reknar undir merkjum kaupfélaganna, en Sam- kaup er í eigu þeirra. „Við höfum haldið því á lofti að Samkaup er í raun eina verslunarfyrirtækið sem er í eigu almennings,“ segir Ómar. Um 80% af veltu fyrirtækisins eru utan höfuðborgarsvæðisins og segir Ómar ekki standa til að fækka versl- unum á landsbyggðinni. Frekar verði reynt að auka hlutdeildina á höfuðborgarsvæðinu, en þar hafi verið erfitt að keppa við stærstu verslanakeðjurnar tengdar Bónus og Krónunni. Með stuðningi fast- eignafélaga í eigu sömu eigenda hafi þessir aðilar náð að „valda reitina“ í matvöruverslun á höfuðborgarsvæð- inu. Verðið helsti vandi dreif- býlisverslana  Ánægja með alþjóðlegt verkefni Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Dreifbýlið Samkaup reka um 40 verslanir víða á landsbyggðinni, m.a. á Blönduósi, en ætla að reyna að auka hlutdeildina á höfuðborgarsvæðinu. Verslanir í dreifbýli » 35 verslanir hér á landi tóku þátt í alþjóðlegu samstarfs- verkefni um málefni verslana í dreifbýli. Verkefnið náði til sjö landa á norðurslóðum. » Ráðstefnu um verkefnið lýk- ur í dag í Heiðarbæ í Reykja- hverfi þar sem um 100 manns taka þátt. » Verslanir í dreifbýli kanna þann möguleika að stofna með sér félag sem myndi vinna að sameiginlegum hagsmuna- málum. Ómar Valdimarsson Haukur Már Sigurðsson Reiknaðu Komdu í Brimborg í dag Hugleiddu hvað rúmast í þínu lífi. Frelsi, fjölskylda, félagar, frítími, ferðalög, friður, þægindi, lúxus, traust, fjárhagslegt svigrúm. Öryggi! Veldu bíl sem er leiðandi í öryggi. Veldu bíl sem er hagkvæmur í heild sinni. Veldu sparnað. Reiknaðu dæmið.. Reiknaðu með Volvo í þínu lífi. Hafðu ráð á að lifa lífinu. Lifðu í öryggi. Veldu Volvo. Komdu í Brimborg. VOLVO S40 DÍSIL VOLVO V50 DÍSIL VOLVO S60 DÍSIL VOLVO V60 DÍSIL Notar aðeins 3,9 lítra á hundraðið í langkeyrslu. Volvo S60 sannar vitsmunalega tilvist okkar. Volvo S60 er skilgreining okkar á heiminum eins og við þekkjum hann. Endurreiknaðu líf þitt. Verð frá 5.690.000 kr. Frítt í bílastæði í Reykjavík. Notar aðeins 3,5 lítra á hundraðið í langkeyrslu. Veldu Volvo V50 fyrir notagildið. Valið er auðveldara ef þú þarft að finna rétta jafnvægið milli hagkvæmni og áhugamála. Volvo V50 er notadrjúgur bíll, hentugur fyrir fjölskylduna. Náðu jafnvægi. Verð frá 4.690.000 kr. Frítt í bílastæði í Reykjavík. Notar aðeins 3,5 lítra á hundraðið í langkeyrslu. Hagkvæmur og glæsi- legur kostur þar sem öryggi, ending og lífsgildi nútímans liggja til grundvallar. Kjóstu hagkvæmni Volvo S40. Verð frá 4.490.000 kr. Frítt í bílastæði í Reykjavík. Notar aðeins 3,5 lítra á hundraðið í langkeyrslu. Eigðu sviðið með svölum Volvo C30. Veldu aðra leið en þá hefðbundnu. Fetaðu þína eigin leið með hinum sportlega Volvo C30. Verð frá 4.290.000 kr. Frítt í bílastæði í Reykjavík. VOLVO C30 DÍSIL milli kl. 9 og 17 Öryggi er lúxus. Lifðu í lúxus. Spyrðu um fyrirmyndarþjónustu Brimborgar. Volvo S60 er sigurvegarinn í flokki stærri fólksbíla í vali á Bíl ársins 2012 Brimborg og Volvo áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð bílanna getur verið frábrugðin myndunum í auglýsingunni. Nánari upplýsingar veita ráðgjafar Volvo á Íslandi. Volvo. Bara fyrir skynsamt fólk. VOLVO S80 DÍSIL Notar aðeins 4,0 lítra á hundraðið í langkeyrslu. Öryggi, munaður og þægindi ná nýjum hæðum í Volvo S80. Endurskil- greindu gæði í þínum huga með nýjum Volvo S80. Verð frá 5.990.000 kr. Frítt í bílastæði í Reykjavík. Notar aðeins 4,1 lítra á hundraðið í langkeyrslu. Volvo V60 stendur vörð um líf þitt. Mættu grunnþörfum fjölskyld- unnar með öryggi Volvo V60. Mættu ítrustu kröfum þínum um lúxus með hátækni og munaði. Verð frá 5.990.000 kr. Frítt í bílastæði í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.