Morgunblaðið - 09.11.2011, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.11.2011, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2011 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Íranar munu eftir aðeins sex mán- uði ráða yfir nógu miklu af auðguðu úrani til að geta smíða kjarnorku- sprengju, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Al- þjóðakjarnorku- málastofnunar- innar í Vín, IAEA. Sjálfir segja Íranar að um „falsanir“ sé að ræða og þeir þurfi engin ger- eyðingarvopn. „Ef Bandarík- in vilja ráðast á írönsku þjóðina munu þau vissulega iðrast þegar viðbrögð hennar koma í ljós,“ sagði Mahmoud Ahmadinejad Íransfor- seti í gær. „Sagan hefur sýnt að hver sá sem grípur til aðgerða gegn írönsku þjóðinni sér eftir því.“ Hann hafnaði öllum ásökunum um að Íranar væru að reyna að koma sér upp kjarnorkuvopnum; þeir þyrftu ekki á þeim að halda. Þótt öflugar vísbendingar séu í skýrslunni er ekki talið að þær muni fá Rússa og Kínverja, sem hafa neitunarvald í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, til að sam- þykkja harðari refsiaðgerðir gegn Íran, hvað þá loftárásir á tilrauna- stöðvarnar. En spennan vex og talin er hætta á að Ísraelar muni ef til vill grípa til einhliða aðgerða til að stöðva hugs- anlega vopnasmíði ráðamanna í Teheran. Íranar eru grunaðir um að fela margvísleg gögn og búnað fyrir fulltrúum IAEA. Hagsmunir Rússa og Kínverja Rússar reistu kjarnorkustöðina sem m.a. er notuð af írönsku vís- indamönnunum er fullyrða að til- raunirnar miði eingöngu að frið- samlegri hagnýtingu kjarnorku. Kínverjar eru mesta viðskiptaþjóð Írana og kaupa af þeim mikið af ol- íu. Utanríkisráðuneytið í Peking sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem Íranar voru hvattir til að sýna „sveigjanleika og einlægni“ varð- andi kjarnorkuáætlunina. En varað var eindregið við því að beitt yrði vopnavaldi til að stöðva tilraunirnar og hvatt til samninga. Sprengjan á næsta leiti?  Íran gæti smíðað kjarnavopn 2012 Mahmoud Ahmad- inejad Stuðningur við aðild Noregs að Evrópusamband- inu fer minnk- andi og nú eru félagar í Já- hreyfingunni að- eins um 4500, að sögn Aftenpost- en. Aðallega séu þeir miðaldra fólk og eldra sem vilji hefna harma sinna eftir tap í þjóðaratkvæði 1972 og 1994. „ESB er gengið af göfl- unum,“ segir formaðurinn, Paal Frisvold og viðurkennir að það hljómi fáránlega að mæla með aðild eins og ástandið sé. kjon@mbl.is Finnst Evrópusam- bandið vera „gengið af göflunum“ Paal Frisvold Kristján Jónsson kjon@mbl.is Alls hafa nú fjórar konur sakað repúblikanann Herman Cain, sem vill verða forsetaefni flokks síns, um kynferðislega áreitni. Ein þeirra, Sharon Bialek, lýsti á blaðamanna- fundi í gær framkomu Cains við sig í Washington fyrir 14 árum. Cain stýrði þá Landssambandi veitingastaða. Bialek hafði misst vinnu sem hún hafði hjá sambandinu í Chicago og ákvað að leita til Cains, að sögn L.A. Times. Þau snæddu saman í Washington þar sem Cain hafði óvænt skráð hana í glæsilega hótelsvítu og eftir miðdegisverð bauðst hann til að sýna henni skrifstofuna. En á leið- inni stöðvaði hann bílinn. „Allt í einu lagði hann höndina á lærið á mér, undir pilsinu og þreifaði eftir kyn- færum mínum,“ sagði Bialek. „Hann greip líka um höfuðið á mér og sveigði það niður að klofinu á sér.“ Þegar hún lét í ljós hneykslun sagði Cain. „Þú vilt vinnu, er það ekki?“ Saka Cain um kynferðisbrot  Forsetaframbjóðandinn sagður hafa misnotað aðstöðu sína til að káfa á konu þegar hann var framkvæmdastjóri Landssambands veitingastaða í Washington Brotakennd þekking » Cain, sem er blökkumaður, hefur síðustu vikurnar verið efstur í könnunum meðal repú- blikana vegna forsetakjörs. » En þekking hans þykir lítil. Nýlega sagði hann Kínverja vera að koma sér upp kjarnorku- vopnum, búnaði sem þeir hafa ráðið yfir í nær hálfa öld. Reuters Halló! Herman Cain heillar marga. Yfir tvær milljónir pílagríma alls staðar að úr heim- inum eru nú í Mekka í Sádi-Arabíu í árlegri píla- grímsför, haj, til þessarar helgustu borgar íslams. Þar í borg er steinninn helgi, Kaaba, sem hulinn er svörtu klæði en hann á að hafa fallið af himnum ofan. Á meðal þess sem pílagrímarnir eiga að gera er að grýta stein- súluna miklu á myndinni en hún táknar sjálfan djöf- ulinn. Sádi-Arabar líta á sig sem verndara íslams og þeir bera ábyrgð á því að ekki komi til átaka milli liðs- manna ólíkra greina trúarinnar meðan haj stendur yf- ir, friðurinn á að ríkja. „Allah ætlaðist ekki til þess að deilur og átök einkenndu haj,“ segir einn helsti trúar- leiðtogi landsins, Sheikh Abdulaziz Al al-Shaikh stór- múfti. Milljónir pílagríma í hinni helgu borg Mekka Reuters Djöfullinn grýttur af kappi á haj Kristján Jónsson kjon@mbl.is Frumvarp um opinber útgjöld var naumlega staðfest á ítalska þinginu í gær með 308 atkvæðum en ljóst er að Silvio Berlusconi forsætisráð- herra hefur ekki lengur meirihluta á bak við samsteypustjórn sína. Hon- um tókst ekki að fá samþykki allra þingmanna í stjórnarflokkunum en þeir eru 316. Kröfurnar um afsögn ráðherrans verða æ háværari. Er sömu aðgerðir voru bornar undir atkvæði fyrir nokkrum vikum féllu þær á einu atkvæði, nokkrir stjórnarandstæðingar sátu hjá að þessu sinni og tryggðu þannig fram- gang tillagnanna. En á fjármála- mörkuðum hafa menn ekki trú á því að Berlusconi muni takast að fá í gegn ýmsar umbótatillögur sem myndu auka traust á því að efnahag- ur Ítala rétti úr kútnum. Og eins og í Grikklandi og fleiri ríkjum er erfitt að fá stjórnmálaleiðtoga til að styðja nauðsynlegar aðhaldstillögur sem þeir vita að eru afar óvinsælar meðal kjósenda, segir í grein fréttamanns The New York Times. „Þetta er algert vandræða- ástand,“ er haft eftir Roberto D’Ali- monte, stjórnmálafræðiprófessor við Luiss Guido-háskóla í Róm. „Ég held að þetta sé ekki vegna þess að markaðirnir séu of sterkir heldur er það lýðræðið sem er veikt.“ Finnar gagnrýna Ítali Skuldatryggingarálag á lántökur ítalska ríkisins nálgast óðfluga hættumörk og Umberto Bossi, for- maður Norðurbandalagsins, sem er með Frelsisflokki Berlusconis í stjórn, tekur nú undir kröfuna um afsögn. „Við höfum beðið forsætis- ráðherrann um að stíga til hliðar,“ sagði Bossi áður en atkvæðagreiðsl- an hófst í gær á þinginu. Lagði hann til að Angelino Alfano, fyrrverandi dómsmálaráðherra, tæki við. Sjálfur vísaði Berlusconi á bug öll- um hugmyndum um afsögn en þrýst- ingur á Ítali eykst dag frá degi. „Það er erfitt að sjá hvernig við í Evrópu eigum að ráða við að bera uppi allar þjóðarskuldir Ítalíu,“ sagði Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finn- lands. Allt evrusvæðið liði fyrir að Ítalir og fleiri hefðu eyðilagt traust fjárfesta sem vissu ekki lengur hvort þeir fengju lán sín endurgreidd. Heimta afsögn Berlusconis  Skuldastaða Ítala nálgast óðfluga hættumörkin sem gætu valdið greiðslufalli  Finnar segja að útilokað sé að önnur evruríki geti tekið á sig allar skuldir ítalska ríkisins Reuters Kát? Belginn Didier Reynders, Maria Fekter frá Austurríki, George Osborne frá Bretlandi og Svíinn Anders Borg á fundi fjármálaráðherra ESB í gær. Umberto Bossi Grikkir gleymdir? » Athygli annarra evruríkja beinist ekki lengur að Grikk- landi þótt enn hafi ekki tekist að ná einingu um arftaka Georgs Papandreous. » Skuldamál Grikkja eru því enn í algerri óvissu. En ríkis- skuldir Ítala eru fimm sinnum meiri en Grikkja. » Fari allt á versta veg munu sjóðir evrusvæðisins ekki duga til að bjarga ríkinu frá greiðslu- falli. Afleiðingar þess gætu orðið heimskreppa. Silvio Berlusconi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.