Morgunblaðið - 09.11.2011, Page 27

Morgunblaðið - 09.11.2011, Page 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2011 ✝ Jóhanna Sig-urgeirsdóttir var fædd á Kleifum í Steingrímsfirði 7. janúar 1926. Hún lést á gjörgæslu- deild Landspítalans 1. nóvember 2011. Hún var dóttir hjónanna Sig- urgeirs G. Áskels- sonar, f. 22.5. 1901, d. 26.5. 1975 og Ólafar Gestsdóttur, f. 22.8. 1907, d. 1.10. 1997. Þau Sigurgeir og Ólöf eignuðust fimm börn og var Jóhanna elst þeirra. Önnur börn þeirra hjóna voru: Guð- mundur Marz, f. 14.3. 1930, d. 30.4. 1960. Helena Hólm, f. 17.4. 1935, d. 9.2. 1997. Helena var gift Bæringi Guð- varðssyni og áttu þau þrjár dætur, Guðnýju, f. 12.6. 1963, Áslaugu, f. 8.6. 1964 og Ólöfu Jóhönnu, f. 11.5. 1970. Garðar Hólm, f. 24.4. 1940, d. 13.2. 1945 og Garð- ar, f. 11.6. 1948. Garðar er búsettur í Noregi. Hann er giftur Anne Marie Antonsen og eiga þau tvö börn, Guðmund Marz, f. 24.6. 1969 og Berit Nönnu, f. 25.11. 1975. Útför Jóhönnu fer fram frá Fíladelfíukirkjunni í dag, 9. nóv- ember 2011, og hefst athöfnin kl. 15. Þá hefur elskuleg systir mín og mágkona kvatt þennan heim og flutt inn í dýrðarhimin Guðs eftir nærri 86 ár. Hún hafði lifað afar góðu lífi þó hún, eins og fólk flest, mætti erfiðleikum af ýmsu tagi gegnum langt líf. Hennar lífi lauk afar snögglega eftir, í raun vel- heppnaða hjartaaðgerð, en hjart- að var orðið svo uppgefið að henni varð ekki bjargað. Margar minningar koma upp í hugann þegar litið er yfir æviferil hennar og okkar samveru. Hún varð hálf „foj“ út í mömmu að vera að eiga barn, konan komin á gamals aldur. En, eftir að króginn var kominn í heiminn var ég mið- punktur heimsins og hef eiginlega verið síðan. Lái mér hver sem vill að hún skuli hafa verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Ótalin eru plöggin sem hún saumaði á okkur Önnu og á börnin okkar, þangað til við fluttum til Noregs, enda af- bragðs saumakona. Hún vann lengst af hjá Últíma og seinna hjá Karnabæ og saumastofunni Sól. Frá því við Anne fluttum til Noregs 1983 komu þær mæðgur mamma og Jóa á hverju ári í heimsókn til okkar og voru þá gjarna í einn og tvo mánuði. Það voru ófáar ferðir sem farnar voru með þær, bæði innanlands og til Svíþjóðar og Danmerkur. Þær höfðu einstaka ánægju af að ferðast og eins bara að vera með og hjá okkur og börnunum. Eftir að mamma dó 1997, hélt Jóa upp- teknum hætti og kom árlega í heimsókn. Inn á milli komum við svo í heimsókn til hennar. Var þá jafnan farið í bíltúra í allar áttir. Síðasti túrinn var uppí Heiðmörk í endaðan október í ár og gladdi það hana mjög að sjá landið sitt vera að gróa upp og grænka. Allt frá þeirri tíð þegar Birgir Ísleifur fann upp orðasamsetninguna „Græna byltingin“ einhverntíma á fyrri öld, lifðu þessi orð í huga hennar og vorum við oft minnt á þessi fleygu orð hans. Það er einkennileg tilfinning að vera í íbúðinni hennar og hún er ekki hér. Hún sem vildi allt fyrir okkur gera og hafði alltaf góðan mat á borðum. Við brugðum oft á glens systkinin og var þá mikið hlegið. Ekki áttaði hún sig þó allt- af á glensi bróður hennar þegar ég hringdi í hinum ýmsu gervum. Kom þá fyrir oftar en einu sinni að hún legði á tólið þegar ekkert dugði og viðmælandinn gat ekki skilið að hann hafði hringt í vit- laust númer. Svo þegar ég hringdi aftur hálfri mínútu síðar kom „Æi, varst þetta þú, skömmin þín“ og svo hlógum við bæði. Nú situr hún í veislu í himna- ríki sem haldin er til heiðurs þess- ari yngismey sem hefur fengið sinn dýrðarlíkama. Til borðs sitja, ásamt henni, foreldrar okkar og þrjú systkini sem fóru á undan. Meðan fagnaðarlætin halda áfram á himnum kveðjum við Jóu með sárum söknuði. Garðar Sigurgeirsson og Anne Marie Antonsen. Jóhanna Guðrún Sigurgeirsdóttir HINSTA KVEÐJA Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Elsku vinkona, takk fyr- ir samfylgdina. Guð geymi þig. Karlotta, Ásgeir og dætur. Jóhanna Andrésdóttir tók mér opnum hlýjum örmum frá fyrsta degi. Dóttur Vigfúsar Sigurjóns- sonar tilvonandi eiginmanns Hönnu sem átti eftir að standa við hlið hennar í blíðu og stríðu þar til hann féll frá árið 1983. Hanna og pabbi eignuðust fjögur börn. Andrés, Sigurjón, Hinrik og Rannveigu. Yndisleg hálfsystkini mín. Hanna og pabbi sköpuðu sér og sínum hlýtt og gott heimili þar sem ég var alltaf velkomin. Ein. Með Magga mínum heitnum. Með börnunum mínum. Við áttum öll alltaf vísan stað í glaðværðinni hjá Jóhönnu Andrésdóttur. Við Hanna höfum átt saman margar dýrmætar stundir gegn- um tíðina. Ekki hvað síst undan- farin ár eftir að Hanna fluttist að Hrafnistu í Hafnarfirði og við hittumst reglulega. Hrafnistu sem var framtíðarsýn afa míns Sigurjóns Einarssonar skip- stjóra, sem einatt var kenndur við togarann Garðar, og ömmu minn- ar Rannveigar Vigfúsdóttur. Tengdaforeldra Jóhönnu Andrés- dóttur sem nú er fallin frá eftir langa og farsæla ævi. Ég minnist Jóhönnu Andrés- dóttur með hlýju og söknuði. Fyrir mína hönd, barnanna minna og barnabarna sem ávallt áttu á vísan að róa í brosið og kon- fektið hennar Hönnu ömmu þakka ég fyrir áratugina sem við áttum saman. Kveðja, Guðleif Hrefna Vigfúsdóttir. Þú varst ekki bara amma mín, þú varst vinkona mín. Merkilegt hvernig einhver sem fæddist 67 árum á undan mér gat skilið mig svona vel, það var alltaf eins og þú vissir hvað ég var að ganga í Sigríður Jóhanna Andrésdóttir ✝ Sigríður Jó-hanna Andr- ésdóttir, Hanna Andrésar, fæddist á Siglufirði 15. des- ember 1923. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 26. október 2011. Útför Hönnu fór fram frá Hafn- arfjarðarkirkju 3. nóvember 2011. gegnum, það var eins og þú læsir bæði hug minn og hjarta. Ég þurfti aldrei að segja þér frá neinu, þú vissir alltaf hvað var. Við fórum oft í strætó þegar ég var lítil, bara til þess að fara í strætó, þú leyfðir mér að vera með skartgripina þína og nota varalitina, það þótti mér endalaust vænt um, ég ætlaði sko að vera svona falleg eins og amma þegar ég yrði stór. Við horfðum saman á sápu- óperur og svart-hvítar bíómyndir og töluðum um hvað leikararnir væru sætir. Þú gerðir Swiss Miss og ég mátti alveg borða smákakó- duft, það verður aldrei jafn gott og það var hjá þér. Þegar ég byrjaði í menntaskóla spurðir þú mig hvort það væri ekki nóg af sætum strákum, það gat ég alveg viðurkennt. Þú varst alveg á sama máli, „já þeir eru svo sætir á þessum aldri, en þú skalt bara horfa með augunum, ekkert meira“, held það sé eina dæmið um að ég óhlýðnaðist þér. Þú kvaddir mig alltaf með því að segja „guð og allt gott veri með þér“, stundum bættir þú ein- hverju við þegar þér fannst ég þurfa á því að halda, en svona kvaddir þú mig alltaf. Þú ert og hefur alltaf verið fyr- irmyndin mín elsku amma, ég á eftir að sakna þín endalaust og ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að hafa þig í lífinu, allt það sem þú hefur kennt mér og gefið af þér, það er ómetanlegt. – Inga María. Elsku amma, þú varst alltaf besti vinur minn þegar ég var lít- ill, ég gat alltaf komið í heimsókn til þín og gengið að því vísu að þú ættir pönnukökur og kakó til handa mér og tíma til þess að segja mér sögu eða taka eitt spil. Oft sátum við að spili saman og þú reyndir að kenna mér mikil- vægi þess að spila heiðarlega, lexía sem þú gafst aldrei upp á að kenna mér sama hversu oft þú stóðst mig að því að fela eitt eða tvö spil í erminni. Þú varst líka minn helsti bandamaður, þú stóðst alltaf með mér í öllu og aldrei gat ég gert rangt í þínum augum. Þegar ég hafði enga trú á sjálfum mér trúðir þú á mig tvö- falt og studdir mig alltaf heils hugar í öllu því sem ég tók mér fyrir hendur. – Vigfús. Þín dótturbörn, Inga María og Vigfús Almar Eyjólfsbörn. Elsku Hanna mín, nú ert þú farin á fund ættingja og vina á himnum og ég veit að Bóbó beið þín og tók opnum örmun. Ég vil fá að þakka þér þinn þátt í æsku minni og minningum, ég held að það hafi ekki liðið dagur að ég kom ekki í heimsókn annað hvort í fylgd mömmu, sem var að fara í vinnuna, eða bara til að koma við og finna ykkar yndis- lega viðmót gagnvart mér. Bóbó var mér sem pabbi og sýndi mér mikinn skilning og kenndi mér margt, ég elskaði Bóbó af öllu hjarta. Þegar ég kom til ykkar hjóna var alltaf kaffi á könnunni og eitthvað gómsætt, td. kanil- kaka eða jafnvel smákökur þó ekki væru komin jól. Þú, Hanna mín, tókst alltaf á móti mér með þitt fallega bros og innilegheit, það var ekkert falskt við þig, það fann ég snemma sem barn og gat ég treyst þér fyrir tilfinningum mínum, það var ekki svo sjaldan að ég leitaði í skjól hjá ykkur. Þú varst mikill fagurkeri á bók- menntir og last sögur og kvæði af einskærri snilld enda varstu feng- in til að lesa jólasögurnar á jóla- fundum Slysavarnafélagsins svo langt sem minni mitt nær og oft skemmtilegar sögur á styrktar- kvöldum í Bæjarbíói fyrir Hraun- prýði. Og ekki var leiðinlegt á 10. maí þegar allt var fullt af tertu- botnum, ávöxtum og rjóma og þið mamma á fullu með ömmu sem skrautfjöður og við krakkarnir að selja merki eða hlaupa í sendi- ferðir milli Sjálfstæðishúss og Al- þýðuhússins, þú varst alltaf glöð og brostir til mín þegar ég kom, ég man ekki eftir einu einasta styggðaryrði frá þér alla mína tíð, en Bóbó gat verið stríðinn. Þegar ég flutti svo á Austur- götuna á meðan við hjónin vorum að byggja gat ég alltaf treyst á þig, hversu þreytt sem ég var þá bara einhvernveginn rann af mér þreytan og pirringurinn við að koma við hjá þér, elsku Hanna mín. Þér á ég margt að þakka. Það er fjársjóður frá Guði að skynja gleðina, sem skilningur elur af sér, hverjum og einum útdeilir hann sínum hlut í þeim mæli, sem honum sýnist vel hæfa þeim manni, sem Drottinn hefir velþóknun á. Með bestu kveðju þar til við hittumst öll að nýju. Kveðja, Rannveig Pálsdótttir. Það var æðislegt að fá að gista hjá afa Bóbó og Hönnu ömmu á Austurgötu 40 í Hafnarfirði. Reyndar algert ævintýri. Langafi Sigurjón og langamma Rannveig á jarðhæðinni í fyrstu minningum – og síðan bara langamma Rann- veig eftir að langafi dó 1969. Langamma löngu síðar. Hrjúfi en elskulegi afi Bóbó á efri hæðinni – og í kjallaranum innanum öll verkfærin, gráslepp- unetin og allt það forvitnilega sem þar var að finna. Og hlýja bros- milda Hanna amma sem alltaf sá það broslega og skemmtilega í til- verunni. Amma Hanna sem að kvöldinu leiddi litla drenginn hennar Hrefnu hans Bóbó sem var að gista hjá afa og ömmu í Hafnar- firði að spennandi bókahillunni. Á mildilegan hátt hjálpaði Hanna amma stráknum að velja góða bók til að taka með í rúmið eftir skemmtilegt kvöld – þar sem kúrt var á gamla þurrkloftinu fyrir framan sjónvarpið – með fulla sælgætisskálina fyrir framan okkur. Sælgætisskálin tóm. Strák- urinn alsæll og ánægður. Afi Bóbó stundum á vakt í hliðinu hjá Ísal. En Hanna amma með afa- strákinn hans Bóbó að skoða allar spennandi bækurnar. Með mild- um róm og kímni talað með virð- ingu um hverja bók fyrir sig. Stundum lesið ljóð. Enda alin upp í bókabúð á Sigló. Þar sem afi Bóbó sigldi inn með síldina, fann Hönnu ömmu og tók hana með sér til Hafnarfjarðar. Rómantískt upphaf í huga lítils drengs sem fær að gista hjá afa og ömmu á Austurgötunni. Núna hefur Hanna amma yf- irgefið þennan heim. Farin að gantast við afa Bóbó á Austur- götu 40 hinum megin við móðuna miklu. Eða kannske á Jófríðar- staðarveginum þar sem þau bjuggu fyrri hluta búskapartíðar sinnar – fyrir mitt minni. Sé fyrir mér kímnina í augun- um hennar Hönnu ömmu og hlýtt brosið. Sé hvernig hrjúfi afi Bóbó bráðnar allur og ljómar eins og sólin yfir því að fá Hönnu sína aft- ur, rauðbirkinn, rauðhærður og ótrúlega myndarlegur. Ég er svo ríkur að hafa átt afa Bóbó og Hönnu ömmu sem var að yfirgefa þennan heim. Hallur Magnússon. hlakkað til, en það var þegar þú náðir í gítarinn og við sungum með þér alla fallegu textana þína og Guðna. Oft voru lögin einnig eftir þig. Oft var liðið langt á nóttina þegar síðust tónarnir dóu út. Þakka þér fyrir öll þessi skemmtilegu kvöld, bæði í veiði- ferðum og einnig á árlegum vetr- arfagnaði Skarfagengisins og á árshátíðum gengisins. Í janúar á þessu ári buðuð þið Þorgerður veiðihópnum að koma til ykkar í Borgarholt þar sem þið voruð yfirlýstir ráðsmenn. Það var ekki í kot vísað. Þar var það trjáræktin sem fangað hafði áhuga ykkar og gaf þar á að líta, m.a. marga berjarunna, fyrir ut- an allan venjulegar trjátegundir. Við enduðum heimsóknina með því að fara í kirkjuna í Bræðratungu sem sonur ykkar hafði málað fallega. Þið höfðuð víða skotið rótum og hefðuð get- að átt langt og gott ævikvöld saman. En kallið kom og nú lifir þú sem falleg minning. Fagra, dýra móðir mín! minnar vöggu griðastaður, þegar lífsins dagur dvín, dýra, kæra fóstra mín! búðu um mig við brjóstin þín; bý ég þar um eilífð glaður. Fagra, dýra móðir mín, minnar vöggu griðastaður! (Sigurður Jónsson frá Arnarvatni.) Við kveðjum þig með söknuði og biðjum Guð um að styrkja Þorgerði, börn, tengdabörn og barnabörnin þín. Brynjar, Bryndís og Sigurður Jónsson frá Arnarvatni. Þegar samferðamaður og vin- ur deyr leitar hugurinn ósjálfrátt til liðinna stunda. Stunda sem nú verða enn mikilvægari í minning- unni. Eiríkur Guðnason var mik- ill vinur Árnesingakórsins í Reykjavík um árabil. Upphaf þeirra tengsla hófust þegar Þor- gerður kona hans gekk til liðs við kórinn og síðar gengu börn þeirra hvert af öðru einnig til liðs við hann. Eiríkur var upphafsmaður Klappliðsins, sem er stuðnings- hópur maka kórfélaga. Árum saman hefur sá hópur, undir stjórn Eiríks, skemmt á árshá- tíðum og hinum ýmsu skemmt- unum kórsins, víðs vegar um landið. Eiríkur var mjög tónvís og átti auðvelt með að semja lög og texta. Ófáar eru tækifærisvís- urnar sem hann samdi og flutti svo skemmtilega við hin ýmsu tækifæri. Hann gat auðveldlega séð spaugilegar hliðar á ýmsum atvikum sem áttu sér stað innan kórsins og komið í bundið mál. Gítarleikari var hann góður og ávallt tilbúinn að spila hvenær sem tækifæri gafst. Nánast allt efni sem Klappliðið hefur flutt er frumsamið eftir hann og einnig hefur hann samið lög við texta sína. Á ferðum kórsins hérlendis og erlendis var hann alltaf liðtækur til hinna ýmsu verkefna, allt frá miðasölu til fararstjórnar. Ógleymanlegur er hann sem far- arstjóri, ávallt mjög vel undirbú- inn og hafði kynnt sér sögu og staðhætti hverju sinni. Síðustu árin gekk hann til liðs við kórinn og léði bassanum rödd sína, enda söngmaður góður. Félagar Árnesingakórsins í Reykjavík þakka Eiríki áralanga tryggð og vináttu. Elsku Þorgerður og fjöl- skylda, við vottum ykkur inni- lega samúð. Fyrir hönd Árnesingakórsins í Reykjavík Herdís P. Pálsdóttir, Ingibjörg Valdimarsdóttir og Áshildur Emilsdóttir. Upp rennur sólin og sýnir mér enn hve sælt er að eiga þann vin sem forsjónin er jörðu fyrir og menn. Færir oss hlýju og skin. Það er með sárum söknuði að við kveðjum vin okkar Eirík Guðnason. Hann var mikill gleði- gjafi og nutum við þess ríkulega félagar í Klappliði Árnesinga- kórsins í Reykjavík. Hann samdi fjöldann allan af frábærum textum og lögum með- al annars meðfylgjandi ljóð og lag við það. Flestir textar Eiríks höfðu einhvern boðskap að geyma, sorg eða gleði. Hann hafði ríka kímnigáfu og gætti þess oft í textum hans. Það var á söngferðalagi Ár- nesingakórsins í Reykjavík, sem Eiríkur kom að máli við nokkra maka kórfélaga um að syngja lagið O sole mio við texta sem hann hafði samið. Eftir þetta varð ekki aftur snúið og ákveðið var að frumkvæði Eiríks að stofna Klapplið Árnesingakórs- ins í Reykjavík. Þessu fylgdi mikil alvara og sem formaður samdi hann lög og reglur Klappliðsins og í 2. gr. stendur: „Enginn getur orðið formaður nema hafa verið það áður“. Í ferðum kórsins var Eiríkur ávallt með gítarinn, stóð fyrir fjöldasöng og flutti gamanmál bæði í bundnu og óbundnu máli. Síðasti vetrardagur skipaði ákveðinn sess í huga Klappliðs- ins, en undanfarin ár hélt Klapp- liðið árshátíð sína þann dag í Krumshólum. Við minnumst einnig þeirra stunda sem við átt- um með þeim Þorgerði og Eiríki heima hjá þeim á Mánabrautinni. Í september síðastliðnum hélt Klappliðið mikla sönghátíð og bauð til hennar kórfélögum og velunnurum kórsins. Eingöngu voru sungin lög upp úr Laga- textabúri Klappliðsins, sem hef- ur að geyma texta sem nánast allir eru eftir Eirík og hann lék undir af sinni alkunnu snilld. Nú að leiðarlokum verður þessi stund okkur öllum ógleymanleg. Klappliðið þakkar Eiríki trausta vináttu og ánægjulegar samverustundir á liðnum árum og saknar vinar í stað. Sól gyllir gáru og glóa nú ský bjartur er dagur á dröfn. Bátur á báru er borinn á ný utan af hafi í höfn. (EG) Við sendum Þorgerði, börnum þeirra og barnabörnum, svo og öðrum aðstandendum hugheilar samúðarkveðjur. F.h. Klappliðsins, Ágúst Ágústsson. Félagar í Rótarýklúbbi Reykjavíkur – miðborg kveðja góðan félaga og vin, Eirík Guðnason. Traust handtak, ljúft og yfir- vegað viðmót voru einkennandi fyrir Eirík. Hann var oft hnytt- inn í tilsvörum á sinn hógværa hátt og var góður hlustandi. Það var ánægjulegt að umgangast hann og kynnast viðhorfum hans og lífssýn. Eiríkur gekk í klúbbinn í nóv- ember 1995. Hann var áhuga- samur í starfi klúbbsins og lagði sitt af mörkum til þess að efla það. Hann gegndi m.a. starfi for- seta starfsárið 1998-1999. Fyrir nokkrum árum tóku Eríkur, Þorgerður og fjölskylda að sér norskan rótarýskipt- inema, Hanne. Það var mikil gæfa fyrir Hanne, því hjá þeim eignaðist hún íslenska fjölskyldu sem hefur haldið tengslum og tryggð við hana ávallt síðan. Þær móttökur voru klúbbnum til mik- ils sóma. Mannkostum búinn. Skilur eftir minningar og góðan vitnisburð um gott vinarþel. Hans verður saknað í röðum okkar félaganna í RRM. Við vottum fjölskyldu Eiríks samúð og kveðjum hann með þakklæti fyrir góða samferð. Fyrir hönd félaga í Rotarý- klúbbnum Reykjavík – miðborg, Margrét Theodórsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.