SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 12
12 13. nóvember 2011
Miðvikudagur
Ásdís Rósa Þórð-
ardóttir veltir fyrir sér
áhrifum TOYS’R’US
bæklingsins á lítil
hjörtu um allan bæ.
Nettur tryllingur!
Helga Vilborg Sig-
urjónsdóttir fékk
ánægjulegt símtal
rétt í þessu frá konu
sem var í þann mund
að hengja upp auglýsingu í sjopp-
unni á horninu því móðir hennar
hafði fundið úr á Sogaveginum og
sá þá mína auglýsingu! Hún bara
kom svo með úrið til mín! Greini-
lega heiðarlegt fólk hér í hverfinu :)
Brynjólfur Þór
Guðmundsson Nú er
ég númer tvö í röð-
inni. En hvert var ég
aftur að hringja?
Fimmtudagur
Andrés Jónsson Er
kannski kominn tími
til að róa okkur að-
eins í þessari eft-
irlits-áráttu? Er ekki
hægt að treysta því að kennarar í
grunnskólum láti vita ef maturinn í
skólunum er eitthvað vafasamur?
Fésbók
vikunnar flett
Þó að 4G/LTE-tæknin sé ekki orðin að
eiginlegri símtækni á meðan engir eru
símarnir, þá er þegar hægt að fara að
nota hana fyrir gagnaflutninga og þá
ekki bara á talsvert meiri hraða en í 3G-
kerfum, heldur líka á mun meiri hraða en
almennt er boðið upp á í ADSL-kerfum
símafyrirtækjanna, svo dæmi séu tekin.
Þeir sem eru orðnir langeygir eftir ljós-
leiðara, og þeir eru býsna margir hygg
ég, gætu því heldur en ekki aukið lífs-
gæði sín með 4G-pung.
Að því sögðu þá er ekki ljóst hvenær
Nova og/eða önnur símafyrirtæki fara að
selja aðgang að 4G-netinu, því enn á eft-
ir að gefa út leyfi til að reka kerfi á 1800-
netinu. Þar stendur á Póst- og fjar-
skiptastofnun, en þar á bæ eru menn að
meta hvaða leið eigi að fara; á að bjóða
leyfin út eða hafa fegurðarsamkeppni? Á
meðan menn eru að velta því fyrir sér
verða aðeins tilraunir í boði en ekki raun-
verulegur hraði, því miður.
Áhugasamir geta svo kynnt sér mögu-
leika 4G-kerfisins í höfuðstöðvum Nova,
er þar er búið að setja upp sannkallað
fyrirmyndarheimili.
Stökk í símtækni
4G-Ísland, óska-
landið, hvenær
kemur þú?
Það eru ekki
til 4G símar
í Evrópu en
það er hægt
að fá allt í
Ameríku -
HTC Thun-
derBolt 4G
Þó að hér sé rætt um farsímatækni eru ekki til neinir 4G-
símar á markaði sem stendur. Aftur á móti eru komnir í
sölu netpungar eins og sá sem sést hér til hliðar,
Huawei E392, sem var fyrsti 4G-pungurinn á
markað, enda sjá menn fyrir sér að aðal-
fjörið verði á því sviði í það minnsta
framan af.
Fjórða kynslóðin, 4G, er líka kölluð LTE í brans-
anum til að undirstrika að allt er þetta ein
og sama fjölskyldan, 2G (GSM), 3G og
4G. Hraðinn er þó margfalt meiri í
staðlinum, niðurhalshraði er
allt að 100 Mbitar (125
kílóbæti á sekúndu)
og upphal allt að
50 Mbitar, sem
er um það bil tí-
falt meiri hraði
en í 3G.
Nova er
búið að
koma sér upp
tveim sendum fyrir
4G og er nú í tilraunum
með kerfið. Það er rekið á
1800 MHz tíðni og næst
prýðilega að mér skilst í
miðbæ Reykjavíkur og eins á
svæðinu í kringum höfuð-
stöðvar Nova í Lágmúlanum.
Kerfið er rekið á 1800 MHz
tíðnisviðinu, með 20 MHz
bandvídd.
Ekki er bara að
sendihraði sé mun
meiri í 4G/LTE-kerfum,
heldur er biðtími, sá tími sem
fer í það að tengjast kerfinu, senda
beiðni um gögn og taka við svarinu, mun
styttri en í 3G-kerfum. Að sögn er mun-
urinn allt að þrefaldur sem hefur mikið
að segja um upplifun notandans, hann
þarf ekki að bíða eins lengi eftir því að
eitthvað gerist.
Fjórða kynslóðin
Það tók býsna langan tíma að skipta frá gamla GSM-símanum í margmiðl-
unarundur sem þriðju kynslóðar símar eru í dag. Það tekur væntanlega
skemmri tíma að skipta yfir í fjórðu kynslóðina sem Nova kynnir eftir helgi.
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is