SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 19

SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 19
13. nóvember 2011 19 þetta nógu langt í þessum aðstæðum. „Við göngum. Útsýnið er takmarkað. Við erum ekki aðeins blinduð af þoku og rigningu, heldur líka af tárum okkar.“ Staðurinn þarsem Ido beið þess að björg- unarmennirnir fyndu hann er einmana- legur og eyðilegur. Aska og bráðnandi snjór blandast saman. Nir, Eyal og Ifat safna steinum í vörðu sem þau setja minningarskjöldinn á. „Í ósnortinni náttúrunni utan gönguleiðarinnar reis- um við minnismerkið. Á staðnum þar sem við misstum Ido, gerum við nafn hans ódauðlegt. Minninguna um hann.“ Á hverju ári, stoppa þúsundir af ferða- mönnum við minningarskjöld Ido Kein- an. Skjöldurinn minnir á hversu auðsær- anlegt og endanlegt mannslífið er. Það er misjafnt hvers fólkið minnist þegar það stoppar við vörðuna. Ein þeirra sem stoppa er belgíska konan Debbie Sanders sem missti föður sinn við sjálfsmorð hans árið 2008. „Í hvert sinn sem maður heyr- ir sögu um missi finnur maður sársauk- ann miklu dýpra af því að maður hefur upplifað hann sjálfur. Margar tilfinningar bærast með manni. Manni verður hugsað til þess hvernig þeim sem misstu líði núna.“ Sem reynd útivistarkona áttar Debbie sig á því að örlög Ido hefðu getað verið hennar eigin. „Að ganga á fjöll er gaman svo framarlega sem veðrið er gott. Svona minningarskjöldur gerir manni grein fyrir því að mikil ábyrgð er á herð- um manns, en maður þarf líka svolitla heppni. Stundum getur maður bara verið á óheppilegum stað á óheppilegum tíma.“ Á vefsíðu Keinan hefur Debbie kveikt á stafrænu kerti sem merki um samúð sína. „Sú staðreynd að þau hafa opnað þessa vefsíðu er til merkis um að það skipti þau máli að finna samúð ann- arra í sorg sinni. Að minnast persón- unnar er mikilvægt því stundum er eng- inn lengur tilbúinn að ræða missinn eftir nokkra mánuði. En sorgarferli þeirra nánustu er mörg ár, ekki nokkrir mán- uðir.“ Laugavegur er ein af fallegustu göngu- leiðum heimsins. Þetta er erfið gönguferð í ævintýralegu landslagi. Vegna eld- fjallavirkninnar þá gutlar, snarkar og vellur í jörðinni á leiðinni. Brennisteins- gufa málar snjóþakin fjöllin með öllum litum regnbogans. Á milli leyndardóms- fullrar þokunnar og mistursins, meðfram gönguleiðinni er varða sem á er skjöldur. Á hann er grafið: „In loving memory of Ido Keinan who passed away in a blizz- ard so close to the safe hut nearby. Yet so far at only 25 years old. June 27th, 2004.“ Ljósmynd/Pieter Bliek Lokatakmark Keinan var þessi skáli en hann lést í aðeins nokkur hundruð metra fjarlægð frá honum.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.