SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 38
38 13. nóvember 2011
Heklueldarnir ruddust fram án þess að fjallið gerði nokk-ur boð á undan sér sl. sunnudag, en engir jarðskjálftarurðu fyrr en í sömu mund og Hekla þverklofnaði afnærri 5 km langri sprungu á sama stað og í Heklugosinu
1947 sem er talið með stærstu gosum í heimi,“ sagði í frétt í Morg-
unblaðinu 19. ágúst 1980. Gosið í fjallinu hófst laust eftir hádegi
sunnudaginn 17. ágúst og fylgdist fólk á Suðurlandi með þegar bólst-
ur yfir fjallinu bókstaflega tútnaði út. Varð hærra og stærra með
hverri stundinni sem leið þannig að fólki mátti fljótt ljóst vera að
eitthvað óvenjulegt var á seyði.
„Ég hef augu mín til fjallanna,“ segir í Biblíunni. Fólk leit á aust-
urloftið og sá mökkinn sem var líkastur kjarnorkusprengingu. Eng-
inn átti kannski von á Heklugosi, enda aðeins tíu ár frá síðasta gosi.
Ekki voru á þessum tíma komnir til sögunnar jafn nákvæmir og góð-
ir jarðskjálftamælar og í dag sem hafa nánast sagnaranda, það er að
geta sagt fyrir um óorðna hluti og nánast á hvaða mínútu hin rámu
regindjúp muni ræskja sig. Svona er veröldin breytt.Heklugosið 1980 hófst á sunnudegi og eðlilega streymdi fólk austur til að fylgjast með sjónarspili hamfara.
Ljósmynd/Kristinn Ólafsson.
Myndasafnið 19. ágúst 1980
Ég hef augu mín
til fjallanna
Önnur þáttaröð bresku þáttanna Luther er á dagskráRÚV á þriðjudagskvöldum. Leikarinn Idris Elba er ítitilhlutverkinu í þessum svakalega spennandilögguþáttum frá BBC. Luther er lögregluforingi,
mjög harður nagli, sem er einstaklega hæfileikaríkur en fer ekki
alltaf eftir settum reglum (eins og allar góðar sjónvarpslöggur).
Hann eltist við fjöldamorðinga og þarf að setja sig í sjúkan hug-
arheim þeirra og á í einkennilegu sambandi við fyrrum ofsækj-
ara sinn, sem er nú í fangelsi. Hann á líka í vandræðum með
einkalífið á köflum (eins og allar góðar sjónvarpslöggur) en er
þó ekki drykkfelldur. Hann er mjög einbeittur í starfi sínu og er
það bæði blessun og bölvun fyrir þá sem standa næst honum.
Luther hefur slegið í gegn austanhafs og vestan og er BBC
nýbúið að staðfesta að þriðja þáttaröðin verði tekin upp.
Var gefið „stelpunafn“ en skipti
Idris Elba er fæddur Idrissa Akuna Elba, 6. september árið 1972
og er því 39 ára. Hann ólst upp í austurhluta London. Faðir
hans er frá Sierra Leone og móðir hans frá Ghana. Hann er fót-
boltaaðdáandi og hefur haldið með Lundúnaliðinu Arsenal frá
15 ára aldri. Hann breytti nafni sínu á unga aldri í Idris úr
Idrissa eftir að hann uppgötvaði að það væri stelpulegt nafn og
líktist nöfnum á borð við Melissa og Clarissa. Það er þó ekkert
stelpulegt við Elba sem er karlmannlegur að vexti og 190 cm á
hæð.
Elba fékk NAACP-verðlaun sem besti leikarinn fyrir hlutverk
sitt í fyrstu þáttaröð Luther auk þess að vera tilnefndur til Gol-
den Globe-verðlauna. Svo lék hann líka gestahlutverk í þátt-
unum The Big C sem voru á dagskrá RÚV og fékk fyrir leikinn
Emmy-tilnefningu. Þær voru reyndar tvær í ár því hann var
líka tilnefndur fyrir Luther.
Áður en hann lék Luther varð hann þekktur í hlutverki sínu
sem Russell „Stringer“ Bell í bandarísku spennuþáttunum
The Wire frá NBC. Hlutverkið ávann honum marga aðdá-
endur en í þeim talar hann auðvitað með bandarískum
hreimi þrátt fyrir að vera breskur sjálfur og þykir takast vel
upp. Hann notar oft bandaríska hreiminn þegar hann ræðir
við aðdáendur The Wire til að valda þeim ekki vonbrigðum.
Elba hefur leikið í mörgum kvikmyndum og þáttum eins
og RocknRolla í leikstjórn Guys Ritchie, Kvenspæjarastofu
Leikarinn Idris Elba hefur aflað sér margra
aðdáenda fyrir hlutverk sín í þáttum á borð
við The Wire og Luther. Hann er líka plötu-
snúður og tónlistarmaður og fótbolta-
aðdáandi sem heldur með Arsenal.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Maðurinn á
bak við Luther
Frægð og furður
Idris Elba í hlutverki
lögregluforingjans Luthers.
Hér er Idris Elba,
DJ Big Driis,
að plötusnúðast
með vini sínum
Shogun.