SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 13

SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 13
13. nóvember 2011 13 Áhöfnin á gríska fraktskipinuCaptain Theo rak upp stór augufyrir nákvæmlega hálfri öldþegar hún sigldi óvænt fram á ellefu ára gamla stúlku á pínulítilli kork- fleytu á Providence-sundi suður af Flór- ída. Stúlkan, Terry Jo Duperrault, var með meðvitund en verulega af henni dregið eftir fjóra sólarhringa á floti í sjónum. Hún var umsvifalaust hífð um borð en skip- verjum og síðar lögreglu varð ekki um sel þegar stúlkan rakti hræðilega sögu sína. Hún var á þessa leið: 8. nóvember 1961 leigði faðir Terry Jo, dr. Arthur Duperrault sjónglerjafræðingur frá Green Bay, Wis- concin, seglskútuna Bluebelle í Fort Lau- derdale, Flórída, ásamt eiginkonu sinni, Jean, og þremur börnum, Brian fjórtán ára, Terry Jo ellefu ára og Renee átta ára, til að sigla í frí á Barbados. Skipstjóri var flughetja úr heimsstyrjöldinni síðari og Kóreustríðinu, hinn 44 ára gamli Julian Harvey. Einnig var um borð nýbökuð eig- inkona hans, Mary Dene, tíu árum yngri. Vaknaði við harmakvein Allt gekk að óskum á leiðinni til Barbados en á heimleiðinni varð fjandinn laus. Að- faranótt 12. nóvember hrökk Terry Jo upp við ægileg óhljóð í skútunni. Þegar hún fór á fætur til að aðgæta hvað væri á seyði skipaði Harvey skipstjóri henni að halda sig í káetunni. Stúlkan gegndi því ekki og þegar hún gægðist upp á þilfarið blasti við henni skelfileg sjón: Móðir hennar og bróðir lágu þar hreyfingalaus í blóði sínu. Terry Jo lagði saman tvo og tvo og gerði ráð fyrir að Harvey myndi ráðast á sig líka. Hann var í miðjum klíðum að sökkva skipinu þegar Terry Jo skaust framhjá honum, leysti pínulitla korkleytu og henti sér fyrir borð. Harvey brá sér frá, líklega til að sækja hníf, en á meðan tókst Terry Jo að komast undan. Ekki er ljóst hvers vegna hann myrti hana ekki líkt og for- eldra hennar og bróður en sennilega hefur hann talið að hún myndi drukkna þegar skútan sykki. Önnur kenning er sú að Terry Jo hafi óvart losað taugina á björgunarbáti skút- unnar, sem Harvey ætlaði að nota til að bjarga eigin skinni, og hann í framhaldinu stokkið beint um borð af ótta við að bát- urinn flyti á brott án hans. Sjálf man Terry Jo atburðarásina ekki nákvæmlega enda undir gríðarlegu álagi, aðeins ellefu ára gömul. Skipstjórinn fannst daginn eftir ásamt líki yngri Duperrault-systurinnar, Renee. Gaf hann lögreglu þá skýringu að eldur hefði komið upp í skútunni og hann einn bjargast. Hann hefði séð Renee á grúfu í sjónum og reynt að blása í hana lífi – án árangurs. Krufning leiddi í ljós að Renee hafði drukknað. Á þeim tímapunkti voru engar for- sendur til að rengja frásögn Harveys enda þótt einhverjum hafi eflaust þótt skrýtið að skipstjórinn einn kæmist lífs af. Án vatns og matar Terry Jo barst með straumnum í fjóra sól- arhringa án vatns og matar á hafsvæði, þar sem krökt er af hákörlum. Hún mátti þola steikjandi hita á daginn en nístingskulda á næturna. Þegar áhöfnin á Captain Theo fann hana hallaði hún sér stíf aftur í kork- fleytunni með hendur á hnakka. Fæturnir stóðu fram úr. Skjannahvítt hárið, sem glóði í sólinni, var í hróplegu ósamræmi við illa sólbrennt andlitið. Einn skipverja tók mynd af Terry Jo á korkfleytunni og fór hún eins og eldur í sinu um heiminn. Terry Jo varð á augabragði frægasta ellefu ára stúlka í heimi. Tvísýnt var um líf Terry Jo og henni komið í ofboði á spítala í Miami. Hún braggaðist fljótt. Strax kom á daginn að sögum þeirra Harveys skipstjóra bar ekki saman. Þeim síðarnefnda krossbrá líka þegar hann frétti að Terry Jo hefði fundist á lífi. Hélt hann rakleiðis á mótel í grennd- inni, þar sem hann svipti sig lífi með rak- vélarblaði. Sannað þótti að hann hefði ráðið eig- inkonu sinni og fjórum meðlimum Duper- rault-fjölskyldunnar bana þessa örlaga- ríku nótt á Bluebelle. Hvers vegna veit enginn en lögreglu þótti líklegasta skýr- ingin sú að Harvey hefði ætlað að myrða eiginkonu sína til að hirða líftryggingu hennar en einhver úr Duperrault- fjölskyldunni staðið hann að verki. Fyrir vikið hefði hann ætlað að losa sig við vitn- in. Þessi kenning verður aldrei sönnuð en það þykir renna stoðum undir hana að nokkrum árum áður hafði Harvey komist á undraverðan hátt lífs af úr bílslysi, þar sem fyrri eiginkona hans og móðir hennar létust. Þá höfðu bæði snekkja og vélbátur í hans eigu sokkið við dularfullar aðstæður og hann hirt veglegar bætur. Harvey var sexgiftur. Sagði söguna fyrst í fyrra Terry Jo kallar sig nú Tere Duperrault Fassbender og er orðin 61 árs. Hún átti að vonum erfitt uppdráttar eftir atvikið en ættingjar tóku hana að sér. Hún hefur lengst af lifað venjulegu lífi utan sviðs- ljóssins. Tere Duperrault Fassbinder tjáði sig fyrst að nokkru marki um þessa hræðilegu upplifun á síðasta ári í bók sem hún skrif- aði í félagi við sálfræðinginn Richard Log- an, Alone: Orphaned on the Ocean. „Fólki var snemma sagt að ræða atburð- inn ekki við mig og fyrir vikið gafst mér aldrei ráðrúm til að tala um hann,“ sagði hún í samtali við sjónvarpsþáttinn NBC Today, þegar hún kynnti bókina. „Ég hef aldrei hætt að hugsa um þetta.“ Spurð hvers vegna Harvey hafi þyrmt henni svaraði hún því til að líklega hafi hann talið að hún myndi sökkva í sæ með skútunni. Sem fyrr segir lagði hann ekki heldur til systur hennar. Duperrault Fassbender kvaðst í samtal- inu við Today ekki hafa verið skelkuð meðan hana rak um hafið. „Ég var útivist- arbarn og unni vatninu. Ég átti líka mína trú, ég trúði á Guð og bað hann að vernda mig. Ég býst við að ég hafi bara fylgt straumnum.“ Áfallahjálp þekktist ekki á þessum tíma og Duperrault Fassbender kveðst ekki hafa fengið mikla sálfræðiaðstoð eftir atvikið. Á hinn bóginn hafi ritun bókarinnar verið ígildi bestu meðferðar. „Ég trúi að mér hafi verið þyrmt af einhverri ástæðu og sú ástæða er að ég eigi að hjálpa öðru fólki. Vonandi verður bókin til þess að hjálpa einhverjum – veita þeim innblástur.“ Litla stúlkan og hafið Ellefu ára stúlka, Terry Jo Duperrault, varð heimsfræg á svipstundu þegar hún fannst eftir fjóra sólarhringa á pínulítilli korkfleytu í hafinu suður af Flórída fyrir 50 árum. Hún hafði sloppið úr klóm óðs manns sem myrti fjölskyldu hennar. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Tere Duperrault Fassbender í dag. Morðinginn, Julian Harvey. Myndin fræga sem skipverji á Captain Theo tók af Terry Jo á korkfleytunni sem bjargaði lífi hennar. Foreldrar og systkini Terry Jo sem féllu fyrir hendi Harveys. Terry Jo öll að koma til á sjúkrahúsinu. Terry Jo á sjúkrahúsinu í Miami.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.