SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 31

SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 31
13. nóvember 2011 31 Alex Stepney var markvörðurManchester United á árunum1966-78. Hvað henti hanneitt sinn í leik gegn Birm- ingham árið 1975 þegar hann var að senda samherjum sínum í vörninni tón- inn? 1. Hann missti málið. X. Hann beit framan af tungunni á sér. 2. Hann fór úr kjálkalið. Þessa ágætu spurningu og 1.799 aðrar er að finna í Fótboltaspilinu sem komið er út hjá Bókaútgáfunni Hólum. Höf- undur er Guðjón Ingi Eiríksson. „Hugmyndin að Fótboltaspilinu kviknaði meðan við fjölskyldan vorum að spila Fimbulfamb milli jóla og nýárs í fyrra,“ segir Guðjón. „Þá fór ég að hugsa um að gaman væri að setja saman fótboltaspil á víðum grunni.“ Engum sem þekkir Guðjón þarf að koma á óvart að honum hafi fyrst dottið fótbolti í hug þegar hann langaði að búa til spil. Hann hefur verið viðloðandi hina göfugu íþrótt alla tíð, sem leik- maður, þjálfari og höfundur knatt- spyrnubóka. „Ég er forfallinn áhuga- maður um fótbolta og verð meðan ég lifi,“ segir hann til að taka af öll tví- mæli. Hillumetrar af sparkbókum Spurður hvort hann hafi verið með spurningarnar meira og minna í koll- inum hlær Guðjón. „Ekki segi ég það. Auðvitað var ég með eitthvað af þessum spurningum í kollinum en þurfti samt að sannreyna þær allar. Það fór dágóður tími í það. Síðan á ég heilu hillumetrana af bókum og tímaritum um fótbolta og blaðaði mikið í því efni, fjölskyldunni til mismikillar ánægju,“ segir hann og hlær. Þegar mest lá við mun stofan á heimilinu hafa verið ein alls- herjar fótboltaskrudda. Guðjón samdi síðustu spurninguna í lok júní en beið með að setja spilið í prentun þangað til eftir að félaga- skiptaglugganum í Evrópu var lokað 31. ágúst. „Það var eins gott,“ segir hann, „ég þurfti að breyta nokkrum spurn- ingum eftir að þeim viðskiptum öllum var lokið.“ Spurningarnar eru frá ýmsum tímum en að sögn Guðjóns heyrir um 80% þeirra til þessari öld. „Ég hef þann hátt- inn á til að ná til yngri fótboltaáhuga- manna. Ég hef þegar reynt spilið á nokkrum krökkum og fann að það hitti í mark.“ Að því sögðu fá nördin vitaskuld sitt- hvað við sitt hæfi líka. „Þótt Fótbolta- spilið sé fjölskylduspil má það ekki vera of létt. Þetta er spil fyrir alla aldurs- hópa, tólf ára og upp úr.“ Spurður um fyrirmyndir kveðst Guð- jón einkum hafa horft til Sparðatínslu (e. Trivial Pursuit). Komast þarf á höf- uðreiti, sex talsins, til að næla í skífu utan um leikpeðið. „Ég hef alltaf haft afskaplega gaman af Trivial Pursuit og flestir þekkja leikreglurnar vel. Fyrir vikið þótti mér tilvalið að byggja á þeim grunni,“ segir Guðjón sem fékk ýmsar gagnlegar ábendingar varðandi leik- spjaldið. APOEL tapaði 16:1 Flokkarnir eru sex: Enski boltinn; ís- lenski boltinn; Evrópukeppnir fé- lagsliða; landsliðin; út um víðan völl og 1X2. Í síðastnefnda flokknum eru þrír svarmöguleikar gefnir en aðeins einn réttur. Það þýðir ekkert að þrítryggja! 300 spurningar eru í hverjum flokki og segir Guðjón íslenska boltann og Evrópukeppnir félagsliða hafa verið erf- iðustu flokkana að fylla. „Það eru mikið til sömu félögin sem hafa verið að vinna þessi mót og fyrir vikið þurfti ég að kafa svolítið dýpra. Ég lærði margt á því.“ Þegar Guðjón er beðinn að nefna dæmi tilgreinir hann kýpverska liðið APOEL frá Nikósíu sem farið hefur mik- inn í Meistardeildinni á þessu hausti. „Það hefur ekki alltaf gengið svona vel hjá því liði en APOEL á stærsta tapið í Evrópukeppni, tapaði 16:1 fyrir Sport- ing Lissabon veturinn 1963-64.“ Alfarið unnið á Íslandi Fótboltaspilið er alfarið unnið á Íslandi, samið, hannað og prentað. Hyggur Guðjón það fátítt. Ekkert fyrirtæki hér á landi tekur að sér að raða spjöldum í spil af þessu tagi og þurfti Guðjón ásamt tylft aðstoðarmanna að sjá um það verk sjálfur. Það tók drjúgan tíma enda fyrsta upplagið 3.000 spil. Spilið er komið í verslanir og Guðjón er þegar farinn að fá viðbrögð. „Við- tökur hafa verið jákvæðar fram að þessu og vonandi verður Fótboltaspilið jóla- gjöf fótboltaáhugamannsins í ár ásamt Íslenskri knattspyrnu eftir Víði Sigurðs- son. Þá bók kaupi ég að minnsta kosti alltaf.“ Guðjón Ingi Eiríksson með Fótboltaspilið. Verður það jólagjöf sparkelskra í ár? Morgunblaðið/Golli Missti Alex Stepney málið? Fótboltaspilið nefnist nýtt borðspil fyrir 12 ára og eldri eftir Guðjón Inga Eiríksson. Einkunnarorðin eru skemmtilegt, spenn- andi, fræðandi og vonast höfundur til að spilið eigi eftir að höfða til sparkunnenda á öllum aldri. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Alex gamli Stepney einbeittur að vanda. Menn þurftu ekki hanska á þessum árum. Sunnudagsmogginn fékk leikmenn ársins á Íslandsmótinu í knattspyrnu, í karla- og kvennaflokki, til að svara einu spurningaspjaldi úr Fótboltaspilinu. Rétt svör: 1. Nemanja Vidić, 2. Guðrún Jóna Krist- jánsdóttir, 3. Manchester United og Manchester City, 4. Nígería, 5. Anderlecht og 6. David Batty. 1. Veit ekki. 2. Er það ekki bara Karl, sem þjálfar þær núna? Man ekki hvers son hann er. 3. Manchester United og Manchester City. 4. Nígería. 5. Club Brugge. 6. Gillespie. 2 rétt svör. Hannes Þór Halldórsson 1. Nemanja Vidić. 2. Heitir hann Jón? 3. Manchester United og Manchester City. 4. Egyptaland. 5. Anderlecht. 6. Gillespie. 3 rétt svör. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.