Morgunblaðið - 23.12.2011, Qupperneq 6
BAKSVIÐ
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Það eru ekki allir svo heppnir að
geta setið prúðbúnir með fjölskyld-
unni við matarborðið klukkan sex á
aðfangadagskvöld og borðað indæl-
is steik áður en skipst er á gjöfum.
Hjálparstofnanir aðstoða þá sem
eiga enga að eða eru í þeim aðstæð-
um að geta ekki haldið jól heima.
Konukot, næturathvarf fyrir
heimilislausar konur, er opið allan
sólarhringinn yfir jólahátíðina og
áramótin. Ekki er vitað hversu
margar konur munu dvelja þar en
þær hafa verið þónokkrar undan-
farin ár. „Það er reynt að skapa
heimilislega hátíðarstemningu sem
hefur tekist mjög vel. Sjálfboðaliði,
sem er kokkur, eldar fyrir konurn-
ar á aðfangadagskvöld og allar fá
þær gjafir,“ segir Katla Þorsteins-
dóttir framkvæmdastjóri Rauða
krossins í Reykjavík og bætir við að
það séu velviljuð fyrirtæki og ein-
staklingar sem gefi mat og gjafir til
Konukots.
Í aðdraganda jólanna hefur
Rauði krossinn verið í samstarfi við
Hjálparstarf kirkjunnar um jólaút-
hlutun. Þá verður hjálparsíminn
1717 opinn allan sólarhringinn eins
og venjulega. „Yfir jólavikuna í
fyrra voru 703 símtöl í hjálparsím-
ann, eða nálægt 100 á dag. Eftir
áramót er svo oftast enn meira
hringt,“ segir Katla. Það er ein-
mana fólk sem sumt á engan að sem
hringir mikið í hjálparsímann og er
afar þakklátt fyrir að geta rætt sín
mál við einhvern.
Vaktsími á Stígamótum
Að minnsta kosti tvær konur
dvelja í Kristínarhúsi, athvarfi
Stígamóta, yfir jólahátíðina. Fleiri
konur geta bæst í hópinn með
litlum fyrirvara. Þar verða starfs-
menn á vakt um jólin og elda og
borða jólamatinn með konunum.
Hluti af jólamatnum kemur frá
Mæðrastyrksnefnd, annað sem til
þarf kaupa Stígamót.
Kristínarhús var opnað nú í haust
og er sérstaklega ætlað fyrir konur
á leið úr vændi og/eða mansali en
hýsir líka fólk utan af landi sem vill
sækja viðtöl til Stígamóta eða aðra
sem eru að jafna sig eftir að hafa
upplifað ofbeldi. Þar er hægt að
dvelja til lengri eða skemmri tíma.
Á Stígamótum er lokað á milli
jóla og nýárs, það opnar aftur 2.
janúar. Vaktsími er opinn allan sól-
arhringinn og þar svara ráðgjafar
símtölunum.
Gistiskýlið fullskipað um jólin
Starfsemi Samhjálpar er um-
fangsmikil og verður hún að mestu
hefðbundin yfir hátíðirnar á flest-
um stöðum. Á Kaffistofu Samhjálp-
ar í Borgartúni er opið á Þorláks-
messu, aðfangadag, jóladag,
gamlársdag og nýársdag frá klukk-
an tíu til tvö, heitur matur er borinn
fram í hádeginu. Að sögn Mörtu
Hauksdóttur hjá Samhjálp verður
jólamatur og jólakaffi á boðstóln-
um. Um hundrað manns sækja
Kaffistofu Samhjálpar að meðaltali
á degi hverjum en um jólin er gesta-
fjöldinn heldur minni.
Gistiskýlið í Þingholtsstræti er
fyrir heimilislausa karlmenn og þar
er opið eins og venjulega alla hátíð-
isdagana. Marta segir það yfirleitt
fullskipað yfir jólin en þar eru 20
rúm. Þá er Samhjálp með opið í
Hlaðgerðarkoti, á áfangaheimilun-
um Brú og Sporinu og á stuðnings-
býlinu á Miklubraut. „Allir þeir sem
eru hjá okkur fá jólamat og pakka
sem inniheldur einhvern lítilsháttar
glaðning,“ segir Marta.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Jólaskreyting Allar konur í Konukoti, sem er næturathvarf fyrir heimilislausar konur, fá jólagjafir og þar er heimilisleg hátíðarstemning.
Margir rétta hjálparhönd
Fjöldi nýtir sér starfsemi hjálparsamtaka yfir jól og áramót Reynt að
skapa heimilislega hátíðarstemningu Búast við 100 símtölum á dag í 1717
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2011
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Fulltrúar Landhelgisgæslunnar eru
nú staddir í Noregi til þess að skoða
þyrlu sem Gæslunni stendur til boða
að leigja frá ára-
mótum en björg-
unarþyrlan TF-
LÍF fer í end-
urbyggingu 9.
janúar næstkom-
andi og verður
þar með ekki til
taks í þrjá mán-
uði. Þetta stað-
festir Georg Kr.
Lárusson, for-
stjóri Landhelg-
isgæslunnar, í samtali við Morg-
unblaðið.
Tvö tilboð bárust í útboði vegna
leigu á annarri þyrlu í stað TF-LÍF
en aðeins annað tilboðið, áðurnefnt
tilboð frá Noregi, kemur í raun til
greina meðal annars vegna þess að
þyrlan í hinu tilboðinu er ekki af
þeirri tegund sem óskað var eftir.
Georg segir að nú eigi eftir að koma í
ljós hvort samningar náist um leigu
á þyrlunni og að vonir standi til þess
að það liggi fyrir á milli jóla og ný-
árs.
Takmarkar möguleikana
Aðspurður segist Georg telja að
norska þyrlan geti uppfyllt þarfir
Landhelgisgæslunnar þrátt fyrir að
hana skorti bæði útbúnað til notk-
unar á nætursjónaukum og sjálf-
virkan búnað til þess að halda henni
stöðugri í loftinu meðan á björg-
unaraðgerðum stendur. Sú stað-
reynd þýði vissulega að þyrlan sé
háð meiri takmörkunum en þær
þyrlur sem Gæslan ráði yfir eins og
staðan sé í dag, þær geti til dæmis
þýtt að ekki verði hægt að beita
þyrlunni í björgunarstörfum við
ákveðnar aðstæður, en það sé engu
að síður ekki frágangssök.
Norska þyrlan er heldur ekki
búin spili til þess að sigmenn geti
komið fólki til bjargar og híft það
upp í hana. Georg segir að það komi
þó ekki að sök þar sem Landhelg-
isgæslan eigi spil sem hægt verði að
setja um borð í þyrluna komi til þess
að hún verði leigð.
Aðspurður hvað gerist ef ekki
nást samningar um leigu á norsku
þyrlunni segir Georg að þá verði að-
eins ein þyrla til staðar hér á landi á
meðan TF-LÍF verður frá. Menn
séu þó bjartsýnir á að sú staða muni
ekki koma upp.
Vonast eft-
ir lendingu
í tæka tíð
Óvíst hvort tekst
að fá björgunarþyrlu
Georg Kr.
Lárusson
Hjá Hjálpræðishernum í Reykja-
vík verður hin hefðbundna jóla-
veisla kl. 18 á aðfangadagskvöld.
Þar verður boðið upp á lambalæri
og ís með tilheyrandi og allir fá
gjöf við heimferð, að sögn Marg-
aret Saue Marti majór. Yfir 60
voru búnir að skrá sig í matinn í
gær og ljóst að margir ættu eftir
að bætast við. Í fyrra voru um
130 í matnum, gestir og sjálf-
boðaliðar. Hjálpræðisherinn í
Reykjanesbæ er líka með mat á
aðfangadag og í hann voru yfir
80 skráðir í gær. Þannig að það
gætu orðið yfir 200 manns sem
Hjálpræðisherinn fæðir annað
kvöld. „Á jóladag er hádeg-
ismatur og samkoma og á nýárs-
dag er samkoma og opið hús og
matur í dagsetrinu á Eyjaslóð,“
segir Margaret. Allir geta skráð
sig í matinn og segir Margaret
fólk koma af ýmsum ástæðum.
Með yfir 200 manns í jólamat
HJÁLPRÆÐISHERINN
Blóðgjafar höfðu síðasta tækifærið fyrir jól í gær til að mæta í Blóðbank-
ann og meðal þeirra var Hurðarskellir, sem skellti sér á borðið hjá Ernu
Björk Guðmundsdóttur, deildarstjóra blóðtöku. Næst verður bankinn op-
inn nk. þriðjudag en helst vantar blóð í flokkunum O+, AB- og AB+.
Hurðaskellir gaf blóð
Morgunblaðið/Ómar
Skannaðu kóðann til
að sjá myndskeið úr
Blóðbankanum.