Morgunblaðið - 23.12.2011, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2011
Dansk julegudstjeneste
holdes i domkirken lørdag den 24. december kl.
15.00 ved pastor Þórhallur Heimisson.
Danmarks ambassade.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Markaðurinn fyrir vel staðsettar
eignir á verðbilinu 100 til 200 millj-
ónir króna er góður. Flestallar eignir
í þessum verðflokki hjá okkur eru
seldar. Ég hef ekki á hraðbergi
hversu mörg húsin eru sem við höf-
um tekið til sölu í Þingholtunum, á
Ægisíðu og í Vesturbænum en flest
eru seld,“ segir Sverrir Kristinsson,
framkvæmdastjóri Eignamiðlunar,
um eftirspurn eftir eignum í þessum
verðflokki að undanförnu.
„Ef húsið er á góðum stað, er vel
skipulagt og verðið rétt eru söluhorf-
ur góðar. Við auglýsum eftir eignum
og höfum til dæmis ekki fengið neina
eign í Þingholtunum af þeirri gerð
sem við höfum verið að leita að, þá á
verðbilinu 100-150 milljónir. Það hef-
ur ekkert komið inn af slíkum eign-
um til okkar síðustu mánuði.“
Merkir ekki verðrýrnun
En hvernig hefur verðið þróast?
„Það er afstætt við hvað á að miða.
Verðlag er nokkuð stöðugt, myndi ég
segja. Ég merki ekki verðrýrnun á
síðustu tveim misserum enda er
framboðið ekki það mikið. Verðið
getur ekki lækkað meira þegar eftir-
spurn er meiri en framboð. Svo þarf
að taka mið af lóðar- og byggingar-
kostnaði. Miðað við þá sölu sem er í
gangi núna geri ég frekar ráð fyrir
að það verði skortur á íbúðum eftir
rúmt ár. Eftirspurnin á ýmsum eign-
um er oft miklu meiri en framboð.
Það mikla framboð af íbúðum sem
var eftir efnahagshrunið, stundum
kallað offramboð, er ekki lengur fyr-
ir hendi. Í grónum hverfum er skort-
ur á flestum stærðum og gerðum
íbúða, þar með talið einbýlishúsum
og sérhæðum“ segir Sverrir.
Stefnir í skort á eignum
Jónas Hólmgeirsson, fjármála- og
sölustjóri hjá fasteignasölunni ÁS,
hefur selt eina eign fyrir ríflega
hundrað milljónir í ár. Vel staðsett-
ar, dýrari eignir á réttu verði seljist.
„Það hefur verið ágætis hreyfing á
dýrari eignum, á verðbilinu frá 40 og
upp í 75 milljónir, og svo aftur á
minni eignum. Stór hluti af sölunni
hefur verið yfirtaka á hundrað pró-
sent lánum. Það hefur hins vegar
verið lítið um skipti. Ef verðið er
ekki spennt upp úr öllu valdi er salan
nokkuð góð. Verðið er farið að
styrkjast. Með sama áframhaldi er
útlit fyrir að eftirspurnin verði orðin
meiri en framboðið vorið 2013.“
Skortur á lúxus-
einbýlishúsum
Góð hreyfing á dýrustu eignunum
Ljósmynd/Fredrik Holm
Glæsihýsi Ásett verð á þetta hús í Skildinganesi er 190 milljónir króna.
SVIÐSLJÓS
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Þegar Hafnarfjarðarbær samdi við
Depfa-bankann um 13 milljarða lán
til bæjarins setti Hafnarfjarðarbær
óseldar lóðir sínar sem veð fyrir lán-
inu, auk hlutar í HS Veitum og
skuldabréfi frá Magma Energy Swe-
den. Þegar veðsettar eignir eru seld-
ar þarf að aflétta veðinu, yfirleitt
með því að greiða lánið upp.
Samningurinn er til fjögurra ára
með vaxtagreiðslum á þriggja mán-
aða fresti.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var á lokastigum samnings-
gerðarinnar við Depfa rætt um að
langstærstur hluti söluverðs lóðanna
myndi renna til Depfa-bankans um
leið og þær yrðu seldar, þ.e. áður en
kæmi að því að greiða höfuðstólinn.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Guðmundur Rúnar Árnason,
bæjarstjóri Hafnarfjarðar, að trún-
aður ríkti um efni samningsins við
Depfa og hann neitaði að gefa upp
hvort söluverðið rynni til bankans.
Þurfa fé til framkvæmda
Valdimar Svavarsson, oddviti
sjálfstæðismanna í bæjarstjórn, seg-
ist virða trúnað vegna samningsins
en á hinn bóginn geti hver sem er
sagt sér það sjálfur að ef lóð er veð-
sett vilji sá sem á veðið fá eitthvað í
sinn hlut ef lóðin er seld.
Valdimar segir að ef söluverð lóð-
anna renni beint til Depfa-bankans
dragi það mjög úr svigrúmi bæjarins
til uppbyggingar í nýjum hverfum.
Hann bendir á að í nýju hverfi á Völl-
unum, Völlum 7, sé búið að leggja
götur, gangstéttir og setja niður
ljósastaura. „Það á samt eftir að
ganga frá ýmsu þarna. Það þarf að
byggja eitt stykki skóla sem kostar
kannski 1-1½ milljarð og sennilega
tvö dagheimili sem kosta 500 millj-
ónir hvort,“ segir hann. Til skamms
tíma yrðu slíkar framkvæmdir mjög
íþyngjandi fyrir bæinn ef andvirði
lóðanna rynni strax til bankans, jafn-
vel þótt tekjur af fleiri íbúum myndu
skila sér smátt og smátt í bæjarsjóð.
Í þinglýstum skjölum vegna lóð-
anna kemur fram að verði vanefndir
á lánasamningnum geti Depfa þegar
í stað gengið að veðum sínum.
Gefa ekki upp hvert söluverð rennur
Hafnarfjarðarbær veðsetti Depfa óseldar lóðir bæjarins
Rætt var um að söluverð lóða myndi renna til Depfa
Morgunblaðið/Golli
Hafnarfjörður Lóðirnar veðsettu.
Þegar Hafnarfjarðarbæ tókst ekki
að borga lán frá Depfa-bankanum í
apríl sl. voru tvö önnur lán hjá
bankanum einnig gjaldfelld. Valdi-
mar Svavarsson, oddviti sjálfstæð-
ismanna, hefur reiknað út að ef
bænum hefði tekist að komast hjá
gjaldfellingu hefði hann getað
sparað sér einn milljarð króna.
Ástæðan er sú að nýju lánin bera
mun óhagstæðari vexti en eldri
lánin.
Valdimar minnir á að fyrsta lán-
ið sem féll á gjalddaga hafi verið
upp á 4,3 milljarða, annað lán upp
á rúmlega 5 milljarða hafi verið á
gjalddaga í byrjun árs 2012 og
þriðja lánið, upp á þrjá milljarða,
hafi verið á gjalddaga árið 2018.
„Öll þessi lán voru á mjög góðum
kjörum,“ segir
hann.
Valdimar seg-
ist ekki þurfa
að brjóta trún-
að varðandi
vaxtakjör á nýja
láninu, allir geti
séð það í hendi
sér að þau séu
óhagstæðari en
þau gömlu og geti miðað við þau
kjör sem séu almennt í boði.
Vaxtamunur á gömlu lánunum og
þeim nýju nemi nokkrum pró-
sentustigum. Ef eingöngu sé mið-
að við lánið sem hefði átt að borga
árið 2018 næmi aukinn kostnaður
nærri 100 milljónum á ári. Samtals
mætti gera ráð fyrir um milljarði.
Gjaldfelling kostaði milljarð
MUN VERRI VAXTAKJÖR Á NÝJA LÁNINU EN ÞEIM GÖMLU
Valdimar
Svavarsson
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Hin 19 ára gamla Melanie Ubaldo
útskrifaðist með hæstu einkunn á
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti á þriðjudag.
Hún lauk námi á myndlist-
arkjörsviði listnámsbrautar og hlaut
hún þrenn verðlaun auk þess að vera
dúx skólans. Þannig fékk hún verð-
laun fyrir góðan árangur í listasögu
sem kanadíska sendiráðið veitti,
myndlist og verðlaun frá Soroptim-
istaklúbbi Fella- og Hólahverfis fyr-
ir að vera sú stúlku sem var hæst á
stúdentsprófi.
Íslenska með Íslendingum
Árangur Melanie er ekki síst
merkilegur fyrir þær sakir að aðeins
fimm ár eru síðan hún flutti til Ís-
lands frá Filippseyjum. Þegar hing-
að kom kláraði hún 8. og 9. bekk í
Fellaskóla og tók þá samræmt próf.
Hóf hún þá IB-nám við
Menntaskólann í
Hamrahlíð en eftir tvö
ár þar skipti hún yfir í
FB vegna listaáhuga
síns.
Melanie fór ekki í ís-
lenskutíma fyrir útlend-
Melanie segir að fyrstu tvö árin sem hún bjó á Íslandi hafi hún ekki talað
mikla íslensku og að hún hafi verið feimin við það. „Svo byrjaði ég að
spila tennis og umgangast fólk á mínum aldri. Þá var ég ekki lengur feim-
in við að tala því að það var bara íslenska allan tímann á æfingunum,“
segir Melanie.
Síðan þá hefur hún einnig verið að kenna ungum krökkum
tennis hjá íþróttafélaginu Víkingi þar sem hún notar íslensku
mikið. „Það er svo fyndið að krakkarnir eru rosalega fljótir að
leiðrétta fólk ef það talar eitthvað rangt,“ segir hún og hlær.
Síðasta árið hefur Melanie þó ekki stundað íþróttina mikið þar
sem hún hefur átt annríkt í skólanum og í myndlistinni.
Krakkarnir fljótir að leiðrétta
FEIMNIN VIÐ AÐ TALA FÓR Í TENNISTÍMUNUM
inga heldur fór hún beint í venjulega
íslenskutíma í skólanum. Þrátt fyrir
það segir hún að það hafi ekki verið
neitt mál. „Það gekk bara ágætlega
vel. Það átti ágætlega við mig að
læra íslenskuna,“ segir Melanie.
Myndlist og gjörningar
„Ég hef áhuga á að verða mynd-
listarkona. Ég er mikið að mála og
að sinna gjörningum,“ segir Mel-
anie. Hún hefur mikinn áhuga á lík-
amsmálun en lokaverkefnið hennar í
skólanum fólst í því að hún málaði á
húð litla bróður síns og var verkið
meðal annars sýnt í Gerðubergi. Tit-
ill verksins er „You get so alone at
times it just makes sense“ og kemur
úr ljóði bandaríska ljóðskáldsins
Charles Bukowski segir Melanie.
„Ég ætla að sækja um í listahá-
skólum alls staðar, erlendis líka,“
segir Melanie þegar hún er spurð
hvað framtíðin beri í skauti sér. Hún
segist mestan hug hafa á því að kom-
ast inn í skóla á Englandi.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Dúx Melanie Ubaldo var með hæstu einkunn á stúdentsprófi við útskrift á haustönn í Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti. Hún hefur aðeins búið á Íslandi í fimm ár en engu að síður var hún á meðal þeirra hæstu í íslensku í skólanum.
Hugurinn stefnir á
myndlistarnám úti
Melanie Ubaldo er dúx Fjölbrautaskólans í Breiðholti